Fálkinn - 21.03.1966, Blaðsíða 35
stundum eftir dómsuppkvaðn-
inguna. Á aftökupallinum hróp-
aði þessi óbrotna kona: — Guð
mun refsa ykkur fyrir að líf-
láta saklausa konu. Ég bið guð
að hefna mín.
Juanita „greifafrú“ Spinelli
var ein af forhertustu og
miskunnarlausustu morðingj-
um, Ameríku; henni hlotnaðist
einnig sú frægð, að verða
fyrsta konan, sem tekin var af
lífi í Californíu-fylki, þann 22.
nóvember 1941.
Frú Spinelli stjórnaði bófa-
flokki. Hún var 52ja ára og
þriggja barna amma, þegar
hún var leidd til gasklefans.
— Ég er lífseig, sagði hún
og glotti við böðlinum. — Þú
gerðir réttast í að hafa skammt-
inn í sterkara lagi.
Hylkin féllu niður í sýru-
geymana og um stund virtist
vitnunum, sem frú Spinelli
hefði ratazt rétt á munni. Hún
dó ekki — hjarta hennar sló
fast og reglulega í tíu mínút-
ur og þrjátíu sekúndur. Svo
langan tíma hefur aldrei,
hvorki fyrr né síðar, tekið að
lífláta neinn í gasklefanum.
Þegar læknirinn festi hlustun-
artækið yfir hjarta hennar,
fann hann límda þar mynd af
syni hennar og barnabarni.
67 vitni voru viðstödd og
þau stóðu öll við gluggana
fimm, sem eru á hinum græn-
málaða aftökuklefa. Frú Spi-
nelli sat í öðrum stólnum, sem
þar var inni, með hlustunar-
tækið fest yfir hjartanu. Úr
því var leiðsla um loftþétt op
á klefaveggnum, að eyra fang-
elsislæknisins. Hann var sá
sem gefa átti til kynna að
konan væri látin.
Vitnin sáu varir hennar bær-
asf eins og í bæn. Svo heyrð-
ist hún hósta og höfuð hennar
hné niður á bringuna, en hún
lyfti því aftur með erfiðismun-
um. Þau heyrðu hásan andar-
dr,átt hennar, sáu höfuðið hniga
lengra og lengra niður og húð-
ina taka á sig gráleitan blæ.
Þessar vítiskvalir lifði hún í
tíu og hálfa mínútu!
Þannig er dauðinn í gasklef-
anum og því eru uppi háværar
raddir í Ameríku um, að verði
dauðarefsing ekki afnumin,
verði gálginn látinn taka við
af gasklefanum.
Mörgum er dauðaklefinn
verri hegning en nokkuð ann-
að, verri en sjálf aftakan. Fáir
menn hafa liðið aðrar eins
Þjáningar og Donald Duncan
Moodie. Hann var sekur fund-
inn um að hafa ráðið konu
sinni bana, var dæmdur til
dauða, áfrýjaði og var látinn
laus — eftir að hafa setið í
dauðaklefanum í Pretoria, S-
Afriku í marga mánuði.
Ríkissaksóknarinn var mjög
óánægður með úrslitin. Áfrýj-
unin hafði verið tekin til
greina, vegna þess að lögreglu-
maður hafði verið viðstaddur
er kviðdómurinn sat á ráð-
stefnu. Ríkissaksóknarinn gaf
út nýja handtökuskipun á Moo-
die, sem var ungur maður og
hann reyndi að flýja.
Lögfræðingar hans fullviss-
uðu hann um, að ekki væri
hægt að dæma sama manninn
tvisvar fyrir sama afbrot og
Moodie kom aftur, sannfærður
um að dómarinn myndi vísa
málinu frá. Málinu var ekki
vísað frá. Það var tekið upp
að nýju og Moodie var enn
dæmdur til dauða.
Eins og venja er til í Central-
fangelsinu í Pretoria, þar sem
allar aftökur í Suður-Afríku
eiga sér stað, fékk Moodie boð,
þrem dögum fyrir heimsókn
böðulsins, um að áfrýjun hans
hefði verið synjað.
— Eruð þér einmana? spurði
presturinn hann daginn áður
en hann skyldi hengdur, 27.
júní 1962.
— Enginn er einmana í
dauðaklefanum, svaraði Moo-
die. — Dauðinn er minn tryggi
förunautur.
Foreldrum hans var leyft að
sjá hann klukkustund áður, en
þegar þau komu til klefa hans,
fundu þau hann meðvitundar-
lausan á gólfinu. Með ein-
hverju móti hafði Moodie kom-
izt yfir töflur og tekið inn
drjúgan skammt. Faðir Moo-
dies rannsakaði hann og fann
að hann var látinn. Um leið
og foreldrunum var vísað út
úr klefanum, kom böðullinn.
Hann lét flytja hinn lótna —
eða meðvitundarlausa — Moo-
die til gálgans og hengdi hann.
Foreldrarnir kröfðust opin-
berrar rannsóknar til þess að
fá úr því skorið, hvort sonur
þeirra hefði verið látinn áður
en hann var hengdur eða ekki,
en dómsmálaráðherrann neit-
aði.
Enn leikur vafi á því, hvort
Moodie hafi verið látinn þegar
hann var borinn til gálgans,
en hinn alræmdi kanadíski böð-
ull, sem þekktur er undir nafn-
inu Arthur Ellis en heitir í
raun og veru Arthur English,
hefur hengt ekki aðeins einn,
heldur tvo menn, sem voru
látnir.
-K
i
m
Qjj
□ □
PHILIPS
n
PHILIPS
JAPNGÓÐ PYRIR TON OG TAL
GERÐ PYRIR BATTERI
OG VENJULEGAN STRAUM - llo/22o
SPOLURNAR SETTAR I
MEÐ EINU HANDTAKI - (MAGASIN)
HANDHÆG - LÆGILEG - SKEMMTILEG
mrA ími1 c a
SKÓLAVORÐUSTÍG 8 SÍMI 18525
FALKINN
35