Fálkinn - 21.03.1966, Qupperneq 6
Gaman er að gifta sig
Frœnka Sorayu fyrrverandi keisaraynju í íran
gekk á dögunum í heilagt hjónaband. Það var þó ckki
eins einfalt og einhverjir halda, því brúðhjónin verða
að láta vígja sig fjórum sinnum, áður en allt er klapp-
að og klárt. Maðurinn heitir David Pelham og er
leikhúsumboðsmaður í London og hann gekk með
brúði sína þrisvar fyrir jafnmarga embættismenn.
Fyrsta brúðkaupið var haldið á skrifstofu bæjarfóget-
ans í London. Næsta var haldið með makt og miklu
veldi í mosku þar í borg og hið þriðja í kirkju heil-
agrar Maríu. ÖIIu þessu var lokið af á einum degi,
og áður en þau fara í brúðkaupsreisuna, verða þau
að ganga í það heilaga í fjórða skiptið og þá í íranska
sendiráðinu í London.
ERFUAKULJÐUR
Brezki erfðaaðallinn verður nú
að horfast í augu við vandamál,
sem er vægast sagt mjög óvenju-
lega. Þegar Sempill lávarður Iézt,
rann góss hans allt sjálfkrafa til
einkadóttur hans, en hún getur
að sjálfsögðu ekki erft tignina og
lávarðurinn lætur eftir sig einn
bróður sem stendur næstur þeim
erfðum. Sá er þó hængurinn á,
að bróðirinn, dr. Ewan Forbes —
Sempill, var kvenkyns við fæð-
ingu en skipti um kyn og klæðn-
að þegar hann var um fertugt.
Þá skipti hann einnig um nafn.
Hét áður Elísabet. Nú velta dóm-
stólarnir því fyrir sér, hvort
mögulegt sé að aðalstitill gangi
að erfðum til manns, sem er
fæddur kona! Myndin er af hin-
um umdeilda erfingja, sem virð-
ist þó ekki hafa lagt pilsin alger-
lega á hilluna.
Maðurinn hér á myndinni er þýzkur og á
meira en 800 vindla af jafnmörgum tegund-
um. Þeir eru að stærð allt frá 1,3 sentímetr- '
um upp í rúmlega hálfan metra. Maðurinn
safnar nefnilega vindlum og því helzt hon-
um svo vel á þeim, að hann getur ekki reykt
þá. Þegar hann langar í reyk, tekur hann
undantekningarlaust sígarettuna framyfir.
Hann heitir Bernhard Metzen og er frá Ober-
hausen í V-Þýzkalandi.
Guðlirædd sinfómuliljómsveit
Myndirnar þrjár eru af jafnmörgum meðlimum óvenju-
legustu sinfóníuhljómsveitar Bandaríkjanna. Hún er skipuð
60 nunnum og hefur getið sér mjög gott orð á hljómleika-
ferðum um Bandaríkin. Stjórnendur, sem hafa komizt í
tæri við þessa hljómsveit eru yfir sig hrifnir og segjast
ekki hafa orðið varir við jafnmikinn aga og auðmýkt
hjá nokkurri annarri hljómsveit. Spá þeir henni miklum
frama. Hljómsveitin er upprunnin í klaustri í Gwyned
Valley í Pennsylvaníuríki og það var príorinnan, sem kom
systrunum fyrst á framfæri. Þær höfðu um árabil leikið
saman sér til ánægju og uppbyggingar.
5
FALKINN