Fálkinn - 21.03.1966, Page 19
DRESS
.... eftir Lis Smith
inn kreppir, er hægt að laga
hann.
Sp.: Á hvers konar fötum
hefurðu mestar mætur?
U. A.: Mér finnst bezt að
vera í peysum. Ég á víst
einar tvö hundruð og tutt-
ugu. Og ég verð að kaupa
mér eitthvað af þessum
sokkabuxum hér í New
York vegna þess að ég þoli
ekki að ganga með þetta
sokkabandarusl, sem hringl-
ar um fótleggina á manni.
Mér þykir gott að vera í
nankinsbuxum og ég á einar,
sem eru tíu ára gamlar. í
París gat ég fengið dýrðleg
föt frá öllum beztu tízku-
húsunum, en ég hafði engan
tíma til að láta sauma á
mig. Og ég verð að láta
sauma á mig vegna þess, að
ég er of breið um herðarn-
ár og' mjó um mjaðmirnar
til þess að ég geti notað til
búin föt. Reyndar finnst
mér bezt að vera í gömlum
frottébaðslopp og ganga ber-
fætt. Meðan verið var að
kvikmynda The Tenth Vict-
im, var alltaf verið að hóta
mér: Or-sulla, ef við sjáum
þig aftur í þessari gömlu
druslu, þá brennum við
hana.
a Sp.: Hefurðu gaman af
skartgripum?
U. A.: Ég hef gaman af
að horfa á þá, en ég ber þá
sjaldan á mér. Ég er nú að
sitja fyrir á auglýsinga-
myndum í fötum, sem
Chrystya Olenska gerir fyr-
ir Harrie Carnegie og það er
ekki fallega gert að sýna
mér þessi dásamlegu föt,
vegna þess að ég vil eiga
þau. Svo eru þau tekin
burt, það er eins og að taka
sælgæti frá barni. Það má
ekki freista mín. Ég lét
mynda mig í þessari regn-
kápu fyrir franska tímaritið
Marie Claire og ég sagði
þeim, að ég yrði að eignast
hana, svo þeir létu mig hafa
hana.
Sp.: Ég sé að þú takmark-
ar þig ekki við föt. (Hún
var að næla sér í rækjur af
diski förðunarmannsins.)
U. A.: Ég verð svo fljótt
leið á að borða sama matinn.
Það er mikið áfall fyrir mig,
ef allir við borðið panta það
sama. Ég ætlaði eiginlega
ekkert að borða, en . . .
Sp.: Hvað finnst þér um
viðbrögðin við hinum marg-
umtöluðu nektarkvikmynd-
um af þér í Playboy?
U. A.: Það var enginn
neyddur til að horfa á þær
og við þá, sem ekki þola
þær, segi ég: horfið ekki á
þær. Þetta voru góðar mynd-
ir og alls ekki ósiðlegar.
Hvað var svo sem á þeim?
Það var líkami. Það geta
allir gengið um naktir mín
vegna ef þeir vilja — ekk-
ert vekur hneykslun eða
gremju hjá mér svo framar-
lega sem ég er ekki þátttak-
andi í því gegn vilja mín-
um.
Sp.: Hver eru viðbrögð
þín við spurningunum um
hjónaband þitt?
U. A.: Samband tveggja
einstaklinga er mörgum
erfiðleikum bundið. En það
er einkamál mitt og eigin-
manns míns.
Sp.: Þar sem þú hafðir
engan áhuga á kvikmynda-
tilboðum lengi framan af
hvað finnst þér þá um allan
þennan gauragang, sem í
kringum þig er núna?
U. A.: Ég hef ekkert við
starfið að athuga þegar ég
er að leika, en þetta finnst
mér erfitt. (Hún átti við
viðtalið.) Ég fylgist ekkert
með þessum blaðaskrifum
hvort sem er og ég hef svo
mikið að gera, að ég veit
ekki einu sinni hvað er að
gerast í heiminum, hvað þá
heldur með sjálfa mig, vesal-
Framh. á bls. 33.
Ursula hvílist ásamt Jean Paul
Belmondo milli atriða í kvik-
myndinni „Kínversk œvintýri
í Kína".
FALKINN
19