Fálkinn - 21.03.1966, Side 20
(
AGFA umboðið og Fálkinn efna til ljósmyndasam-
keppni, og hefur hún staðið síðan í sumar. Þátttaka hef-
ur ekki verið mikil og af þeim ástæðum var samkeppn-
in framlengd. Nú hefur frestur til að skila myndum i
keppnina verið ákveðinn til 30. apríl, og verður skýrt
frá úrslitum eins fljótt og unnt er eftir þann tíma.
í fyrsta flokk hafa verið valdir fimm þekktir ljós-
myndarar til að glíma innbyrðis við verkefnið „Frá hinni
hliðinni séð.“ Þeir senda inn eina svarthvíta mynd hver
um sig, stærð 18X24 eða 24X30 límd á karton. Veitt
verða ein VERÐLAUN, KR. 5.000,00.
í 2. flokki er verkefnavalið frjálst, og þar geta allir
aðrir en fimmmenningarnir í 1. flokki tekið þátt. Senda
skal svarthvítar myndir, stærð 18X24 eða 30X40, límd-
ar á karton.
Veitt verða þrenn verðlaun. KR. 3.000,00 í PENING-
UM OG KR. 2.000,00 OG KR. 1.000,00 í VÖRUÚTTEKT
hjá ljósmyndavöruverzluninni TÝLI í Austurstræti.
í 3. flokki á að senda inn litfilmur, sem eingöngu
má taka á litfilmuna AGFA COLOR CT 18 (pósitív) og
þar er verkefnið bundið við landslagsmyndir eða myndir
úr atvinnulífi. AGFA umboðið setur það skilyrði ein-
göngu í þessum flokki — í hinum flokkunum ráða menn
hvaða Ijósmyndaefni þeir nota. Vinningar eru þeir sömu
og í 2. flokki. Allir mega taka þátt í þessum flokki,
einnig þeir sem taka þátt i 1. og 2. flokki.
1. flokkur.
í honum taka þátt Oddur Ólafsson, Rafn Hafn-
fjörð, Guðmundur Vilhjálmsson, Ingimundur
Magnússon og Guðmundur Hannesson. Þeir glíma
innbyrðis við verkefnið „Frá hinni hliðinni séð“
og senda inn eina mynd hver. Veitt verða ein
verðlaun, kr. 5.000,00 í peningum.
2. flokkur.
Svarthvitar myndir stærð 18X24 eða 30X40,
frjálst verkefnaval. Veitt verða þrenn verðlaun,
kr. 3.000,00 í peningum og kr. 2.000,00 og kr.
1.000,00 í vöruúttekt hjá ljósmyndavöruverzlun-
inni Týli
3. flokkur. Litfilmur (allar stærðir). Nota skal AGFA Dómnefndin. í dómnefndinni eiga sæti Björn Th. Björnsson, listfræðingur, Hjálmar R. Bárðarson skipaskoð- unarstjóri og Jón Kaldal ljósmyndari. Dómnefnd-
COLOR CT (pósitív) og verkefnið er bundið við in mun gera grein fyrir störfum sínum þegar úr-
landslags- og atvinnulífsmyndir. Veitt verða sams slitin verða birt og ræða almennt um myndirnar,
konar verðlaun og í 2. flokki. sem sendar verða til keppninnar.
SKILYRÐI
AGFA umboðið setur þau skilyrði að myndirnar hafi
ekki verið birtar áður og cnnfremur er birtingarréttur
eða sýningarréttur áskilinn á öllum myndum sem ber-
ast til keppninnar. Þátttakendur eiga að merkja myndir
sínar dulnefni, en nafn og heimilisfang skal fylgja með
í Iokuðu umslagi merktu með sama dulnefni og á mynd-
inni. Litfilmurnar skal merkja á sama hátt og skal
vel um þær búið, helzt að senda þær í glerrörum.
Myndirnar skulu sendar til ritstjórnar Fálkans, Grettis-
götu 8, pósthólf 1411 fyrir apríllok. Starfsfólk Fálk-
ans og AGFA umboðsins tekur ekki þátt í keppninni.
20
FALKINN