Fálkinn - 21.03.1966, Qupperneq 24
vitneskju um hvað um væri að vera.
Langflestar verða konurnar viti sínu
fjær af hræðslu. Þegar þær standa
augliti til auglitis við böðulinn. Það
eru aðeins örfáar undantekningar eins
og Anna Antonio og Ruth Ellis, sem
var hengd í Englandi árið 1955 fyrir
að hafa skotið elskhuga sinn.
Margar skröksögur hafa komizt á
kreik í dagblöðum og tímaritum um
Ruth Ellis. Ef til vill mest vegna þess,
að hún var óvenjulega fögur kona.
Staðreyndin er sú, að allan mánuðinn,
sem hún beið dauða síns, var hún róleg
og sýndi fá merki um ótta.
Hún hafði skotið elskhuga sinn í af-
brýðiskasti og um morguninn 16. júlí
1955 átti hún að gjalda fyrir það með
sínu eigin lífi. Þessi fagra ljóshærða
kona stóð á fætur þegar klefadyrnar
opnuðust og böðullinn, Albert Pierre-
point kom inn.
Ruth Ellis brosti og heilsaði honum.
Hún var bundin, en það varð engin
þörf fyrir gæzlukonurnar tvær — hún
gekk sjálf með lyftu höfði til gálgans,
og tók sér stöðu undir reipinu. Pierre-
point færði hana til um einn eða tvo
þumlunga.
— Er það gott þannig? spurði Ruth
Ellis og leit á fallhlerann undir sér.
Böðullinn svaraði ekki Hann dró
svörtu hettuna yfir höfuð hennar — og
broti úr sekúndu seinna hvarf hún inn
í eilífðina.
Ruth Ellis var undantekning frá regl-
unni. Hún lét lífið með stóiskri rósemi
á meðan gervallt England bað þess, að
hún yrði náðuð. Það fór á annan veg
hjá Styllou Christofi. Þessi 52ja ára
gamla kona frá Kýpur kom til þess að
búa hjá syni sínum og þýzkfæddri konu
hans, Hella. Þau hjónin áttu þrjú börn.
Frú Christofi varð óð af afbrýði gagn-
vart hinni laglegu tengdadóttur sinni
og þegar sonurinn bað móður sína að
fara frá þeim í júlí 1954, kæfði hún
tengdadótturina og gerði tilraun til að
brenna líkið.
Kaldan og næðingssaman desember-
morgun sama ár opnuðust klefadyrnar
í Hollowayfangelsinu og böðullinn kom
til að sækja hana. Hún húkti úti í einu
horninu, skjálfandi af ótta, ófær um að
standa á fætur, æpti og sló til gæzlu-
kvennanna, sem reyndu að ná henni.
Þrjá menn þurfti til að halda henni
meðan böðullinn fjötraði handleggi
hennar niður með hliðunum. Síðan urðu
þeir að mestu leyti að bera hana og
halda henni uppréttri þar til böðullinn
hafði komið reipinu fyrir um háls henn-
ar.
Aftaka konu hefur ávallt djúptækari
áhrif á fólk en þótt karlmaður sé líf-
látinn — og það án tillits til þess,
hve illvíg hún hefur verið. í Ameríku
er aftökudegi konu ávallt haldið leynd-
um til þess að komast hjá vandræðum.
Framh á bls 24.
Það var afbrýði sem knúði
frú Christofi til að myrða
tensrdadóttur sína.
24 FÁLKINN