Fálkinn - 21.03.1966, Qupperneq 33
manni, hafði hún rótgróna
andúð á því að heimsækja krá
staðarins með Desmond. Kon-
urnar á Kings Lacey höíðu
aldrei farið' til „The Speckled
Boar“ og hún fann óljóst til
þess, að það myndu vera svik
við afa hennar og ömmu. Og
hvað gerði það til? myndi
Desmond hafa spurt. Ja, hugs-
aði Sara í augnabliks gremju,
það ætti hann að geta skilið.
Það var ekki hægt að særa
tilfinningar slíks ágætisfólks,
eins og afi og amma voru, nema
bráða nauðsyn bæri til. Þau
höfðu verið forkunnar indæl
að leyfa henni að lifa sínu eigin
lífi þrátt fyrir það að þau gætu
alls ekki skilið hvers vegna
hún vildi búa í Chelsea. En
vitanlega átti hún Em það að
þakka. Afinn hefði aldrei leyft
henni það, hefði hann mátt
ráða.
Sara Æki í neinar graf-
götur um afstöðu afa síns. Það
var ekki að hans ráðum, sem
Desmond var boðið til þeirra
á jólunum. Það hafði Em séð
um og Em var indælasta amma
í ailri veröldinni.
Þegar Desmond var farinn
til að aka bílnum út, stakk
Sara aítur kollinum inn í stof-
una.
— Við ætlum til Market
Ledbury, sagði hún. — Okkur
datt í hug að fá okkur glas í
„The White Heart“.
í rödd hennar var óljós ögr-
unarhreimur, en frú Lacey
virtist ekki táka eftir því. —
Já, gerðu það væna mín, sagði
hún. — Það verður áreiðan-
lega skemmtilegt. David og
Diana hafa farið út í göngu-
ferð, sé ég. Ég er sannarlega
fegin að ég skyldi bjóða henni
hingað um jólin. Það er ömur-
legt að verða ekkja svona ung
— aðeins tuttugu og tveggja
ára — ög ég vona innilega að
hún gifti sig sem fyrst aftur/
• Ursula Andress
Framh. af bls. 19.
inginn. Ég hafði ekki einu
sinni tíma til að verzla meðan
ég var í Róm og ég borðaði
aðeins tvisvar sinnum úti
meðan verið var að kvikmynda
Victim. Allt í einu er allt á
fleygiferð. Þeir vilja fá mig
í þetta. Þeir vilja fá mig í hitt.
Sp.: Finnst þér, að áhugi
þeirra sé á þér sem leikkonu
eða sem kynferðistákni?
U. A.: Tja, það er alltaf verið
að reyna að mynda á mér
brjóstin eða bakhlutann. „Nei,“
segi ég. „Brostu,“ segja þeir.
„Nei,“ segi ég aftur. Ef ég er
ekki í skapi til að brosa þá
brosi ég ekki. Ég vil heldur
ekki hafa brjóst og bakhluta
til sýnis hvar sem er. Ég hef
enga trú á að flagga þeim mál-
um. Ennþá minni trú hef ég
á allri sýndarmennsku í sam-
bandi við þau.
Sp.: Hvers óskarðu þér af
lífinu?
U. A.: Að vita það, sem hægt
er að vita, sjá það, sem hægt
er að sjá, ferðast og kaupa allt,
sem mér þykir fallegt. Mér
leiðist aldrei — aldrei nokkurn
tíma. Ég hef alltaf í hundrað
þúsund horn að líta.-Ef ég er
ekki að vinna þá er ég önnum
kafin við eitthvað annað. Ég
þyrfti að hafa fimmtíu klukku-
stundir í sólarhringnum.
Sp.: Geturðu metið sjálfa
þig fyrir mig?
U. A.: Ég skil ekki sjálfa mig
mjög vel. Ég er mjög tauga-
spennt. Tilfinningarnar koma
og fara skyndilega. Það sem ég
finn, myndi ég vilja koma orð-
um að eða leika á píanóið. En
mig vantar orð og ég kann ekki
að leika á píanó. Því hlæ ég
og æpi í staðinn. Ég læt til-
finningar mínar í Ijósi meir
en flestir aðrir. Ég hef enga
stjórn á þeim. Ég get ekki vitað
um viðbrögð mín fyrirfram. Ég
kemst í uppnám út af minnstu
smáatriðum, jafnvel ef einhver
heilsar mér öðruvísi en ég átti
von á. Ég er oft agndofa yfir
minni eigin hegðun. (Við vor-
um að fara fram hjá verzlun
og Ursula sá fuglabúr í glugg-
anum.) Ég vil eiga þau. Þau
eru falleg, en ég vil ekki hafa
dýr í búrum. Nú veit ég! Ég
get notað þau undir blóm.
Sp.: Ein spurning að lokum
— hverja myndir þú sjálf til-
nefna sem fegurstu konu
heimsins?
U. A.: Uss, þetta er bara eitt
af þessum slagorðum. Á morg-
un verður það einhver önnur.
Það eru svo margar fallegar
konur til, hvernig er hægt að
segja um það? Og eins og ein-
hver sagði einhvern tíma,
„hvernig ætti ég að geta það?
Ég hef ekki séð allar konur 1
heimi.“
Þetta, vinir mínir, var örlítill
hluti af Ursulu Andress, stúlk-
unni, sem er alltaf svo síðbúin
að maður hennar, John Derek,
gaf henni úr, sem í stað tölu-
stafa hefur þessa bókstafi: IT
IS LATE LOVE. Aftan á það
HEILDSÖlUBiRGÐIR
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
SÍMI 24120
WALTHER þykir véla
bezt
viltu reyna
WALTHER?
WALTHER hér og
WALTHER þar,
WALTHER alls staðar.
SKRIFSTOFLÁHÖLD
Skúlagötu 63 - Sími 1 79 66