Fálkinn - 21.03.1966, Síða 37
DÖNBKU IMAK GÚMÍHANSKARNIR RYÐJA
SÉR BRAUT. ÞEIR. SEM HAFA NDTAÐ IMAK
VILJA EKKI ANNAÐ. - IMAK ÁVALLT MJÚKIR DB
LIPRIR. LÉTTA STÖRFIN. ÞAÐ BDRBAR SIB AÐ
KAUPA IMAK. FÆST í 6 MISMUNANDI GERÐUM.
Heilverzlun AMDRÉSAR GLÐMASOMAR
HVERFISGÖTU 72. SÍMAR 2D54D. 1623D.
SEDRUS sí.
auyiýsir:
Einsmannssveínsófi, stœrS 145 cm lengist
upp í 185 cm með púðunum, sœngurfata-
geymsla undir, stólar fást í stíl við sófann.
SEDRCS sf.
húsgagnaverzlun
Hverfisgötu 50 — Simi 18830
Demantur
Framh. af bls. 11.
London, heldur drottningunni
sjálfri.
Það er ómögulegt að segja
um, hvers virði Cullinan-dem-
anturinn er, hvorki í sinni upp-
runalegu mynd né eftir að
hann var hlutaður í sundur.
hann hefur aldrei verið boðinn
til sölu og verður það varla
nokkurn tíma. Krúnuskartgrip-
irnir sem slíkir verða ekki
metnir til fjár en sérfræðing-
ar gizka á tólf hundruð millj-
ónir króna eða þar um bil.
Aðeins einu sinni hefur ver-
ið gerð tilraun til að stela
krúnudjásnunum og það var
löngu áður en Cullinan-dem-
antinum var bætt við safnið.
Það var í stjórhartíð Karls II,
þegar gripirnir voru í fyrsta
skipti til sýnis. Árið 1671 var
Thomas Blood ofursti gripinn,
þegar hann flýði út úr Tower
of London með veldissprotann
og eina kórónuna. En í stað
þess að vera hengdur og lagð-
ur á hjól og steglur, var hon-
um boðin staða í stjórninni og
honum var meira að segja leyft
að halda óðölum sínum í sveit-
inni.
Danmörk og England eru
einu löndin, sem hafa ríkis-
skartgripi sína til sýnis fyrir
almenning. Sýningin er mikil
upplífgun fyrir hinn drunga-
lega Tower kastala og hana
heimsækja rúmlega 350.000
manns á ári hverju. Mesta at-
hygli vekur að sjálfsögðu
„Stjarna Afríku“.
Ef að líkum lætur mun held-
ur aldrei framar finnast dem-
antur, er jafnast á við hann.
Námusérfræðingar telja að ef
annar demantur af Hkri stærð
skyldi leynast í fylgsnum
námuganganna, þá muni hann
áreiðanlega brotna í fruntaleg-
um aðferðum nútíma námu-
reksturs. Nema því aðeins, að
hann komi í ljós af tilviljun,
eins og Cullinan-demanturinn
þennan ógleymanlega dag í
Transvaal fyrir sextíu árum.
• Ég er saklaus
brigði, hverri hreyfingu, til þess
að koma ekki upp um tilfinn-
ingar sínar? Eða vegna þess hve
Louise var fullkomin fram i
fingurgóma? Það lá eitthvert
kæfandi farg yfir Malingsfors.
Hvað var Ulf að gera í þessu?
Eflaust voru þau Louise ánægð
yfir að fá að vera í friði. Ef ti’
vill sátu þau og brostu ástfang-
in hvort við öðru. Ulf hefði þá
þennan hlýja glampa í augun-
um...
Marianne óskaði að hún hefði
getað verið kyrr í þorpinu.
Aldrei hafði hádegishléið liðið
svo fljótt. Þegar hún og Jans-
son sneru aftur til vinnunnar
fannst henni að brekkan upp að
herrasetrinu væri orðin brattari
en þegar hún gekk hana síðast.
1 trjágöngunum kom bíll á
eftir þeim. Það var Hákon. Það
lifnaði yfir Marianne af gleði
og feginleik. Hann nam staðar
og opnaði bíldyrnar.
— Stökktu inn, Marianne!
sagði hann með ákefð. Ég verð
að tala við þig.
Hann ók Jansson upp að skrif-
stofunni, en sveigði siðan kring-
um garðflötina og ók niður trjá-
göngin.
— Jæja, hvað er það? spurði
Marianne.
— Þú mátt ekki reiðast mér,
Marianne, byrjaði Hákon. Mér
fannst að mér bæri skylda til að
bæta þér það upp að einhverju
leyti, hvað ég var huglaus að
bregðast þér hérna um árið,
þegar verst stóð á fyrir þér. Ég
var töluvert hrifinn af þér, en
ég varð æstur út af ...
— Þvi að ég vildi ekki gang-
ast við glæp, sem ég var saklaus
af?
—■ Það var vitanlega rangt af
mér, en ég var aðeins strák-
hvolpur þá og varð fyrir áhrif-
um af almenningsálitinu... en
það, sem nú hefur sannfært mig
algjörlega er, að þú skulir muna
einstök smáatriði svo greinilega:
rödd þessa manns, hendur hans
og seðlaveskið. Lögreglan var á
sama máli:
Marianne settist teinrétt upp
í sætinu. — Lögreglan?
— Einmitt. Til hvers hélztu,
að ég hefði ætt af stað til Falun
í morgun?
— Hvernig átti ég að vita það?
Fórstu til lögreglunnar?
— Já, en ég þorði ekki að
minnast á það við þig, ef þeir
skyldu skirrast við að aðhafast
nokkuð í málinu. En þegarég var
búinn að segja þeim alla sög-
una, þá lofuðu þeir að rann-
saka herra Vilhelmsson ofur-
litið nánar, ganga úr skugga
um hvenær hann hafi farið til
Hollands og hvort hann hafi
kannski í staðinn heimsótt lítið
þorp, sem aðeins hefur tveim
leigubílum á að skipa og liggur
einhvers staðar nálægt gatna-
mótum Gautaborgarvegarins og
þjóðvegarins.
Marianne sat hreyfingarlaus
og horfði á glettnislegan vanga-
svip hans. Hann var reglulega
fallegur með skeggið sitt! Tárin
runnu niður kinnar hennar, en
hún fann ekki fyrir því.
— Þetta... þetta er blátt
áfram ótrúlegt! hvíslaði hún.
Framh. á bls. 42.
37
FALKINN