Fálkinn - 21.03.1966, Side 41
900 KRÚNA VERÐLAUN
AFORÐI
Verðlaun í 7. umferð hljóta: Kolbrún Hreiðars, Safamýri
46, Reykjavík, 165 stig. Steinunn Guðjónsdóttir, Baróns-
stíg 39, Reykjavik, 162 stig. Sigurður Magnússon, Hverfis-
götu 14, Hafnarfirði, 161 stig.
Lausn Kolbrúnar: eyjarbát — yrja — játar — art —
breyta — átur — treyja — urta — rytja.
Lausn Steinunnar: eyjabát — ytra — játar — art —
brytja — átur — treyja — utar — rytja.
Lausn Sigurðar: eyjabát — ytra — játar — art — brytja
— áta — treyja — utar — rytja.
SAMT.
\s \ \J
s's \
V \s X KJ
V \ x \ \
X V k^ \ X
Fh X v \ k
k V V k k
k V \s \
Næsta þraut:
Næsta lykilorð er PASSÍUHÁR. Nýjum þátttakendum
skal bent á, að eingöngu má nota þá stafi sem koma fyrir
í lykilorðinu og ekki oftar í hverju orði en þá er að finna
í lykilorðinu. Ekki má nota i fyrir í, a fyrir á, o. s. frv.,
og ekki i fyrir y, þá ekki persónuheiti eða staðaheiti, heima-
tilbúin orð eða orðskripi. Rita skal orð samkvæmt ríkj-
andi stafsetningarreglum.
Verðlaun:
Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 300,00 fyrir
hverja lausn, en þær eru dregnar úr fimmtán hæstu rétt-
Samtals:........... ..
Nafn: ...................................................
Heimilisfang: ...........................................
um lausnum. Skilafrestur er tvær vikur. Gerið svo vel að
merkja umslagið ORÐ AF ORÐI 11.
Utanáskrift: Vikublaðið Fálkinn, pósthólf 1411, Reykjavík.
i stjörnurnar
Kæri Astró!
Ég hef mikinn áhuga á að vita eitthvað um framtíðina. Ég
er í skóla ennþá og hef ekki nein sérstök áform um fram-
tíðina. Ég hef samt ekki hugsað mér að leggja út i lengra
nám heldur fá mér einhverja vinnu næsta sumar. Hvað held-
Ur þú að mundi vera bezt fyrir mig? Ég hef ekki nein sérstök
áhugamál og veit stundum ekki hvað ég á að gera með tím-
ann. Ég fer ekki mildð út að skemmta mér, ég hef ekki mikinn
áhuga á strákum. En það er eitt sem ég hef mikinn áhuga
á og það eru ferðalög. Heldurðu að ég ferðist mikið um
sevina? Svo langar mig til að vita eitthvað um ástamálin og
svo þetta sem allir spyrja um.
Með fyrirfram þökk.
Lona.
Svar til Lonu:
Þótt þú hafir ekki sérstakan
áhuga á að skemmta þér þá
skaltu endilega blanda geði við
jafnaldra þína og útiloka þig
ekki frá félagslífi þeirra. Það
er ekki gott fyrir unga stúlku
með þina skapgerð að vera
alltof mikið ein eða innan um
þér eldra fólk. Reyndu að
finna þér áhugamál. Ég held
t. d. að þú mundir hafa gagn
og gaman af að teikna og mála.
Einnig væri ekki úr vegi fyrir
þig að fylgjast dálítið vel með
nýjungum á sviði tízkunnar og
kynna þér ýmislegt í sambandi
við hana. Þú munt eiga eftir
að ferðast mikið og þó aðallega
í sambandi við starf sem þú
kemur til með að vinna við
eftir að þú hefur gifzt. Þú
munt ávallt vinna úti jafnhliða
heimilinu, og einnig mun verða
töluvert félagslíf í sambandi
við atvinnu þína, og þú munt
þurfa að vera mikið á ferðinni.
Þér finnst þetta kannski ekki
líklegt eins og er, en 1970
verða miklar breytingar í lífi
þínu. Þú ættir endilega að
nota tímann fram að því til að
læra, það mun verða þér nauð-
synlegt síðar að kunna skil á
ýmsu varðandi menningarmál
og margt fleira, svo þú skalt
viða að þér eins miklum og
fjölþættum fróðleik og þér er
unnt. Hjónaband þitt mun á
margan hátt verða til þess að
þú færð aukin tækifæri. Það
er rétt að þú hefur ekki mik-
inn áhuga á karlmönnum og
ekki er hætt við að þú stigir
hliðarspor í hjónabandinu, en
gæta verður þú þess að vera
ekki afbrýðisöm út í maka
þinn af tilefnislausu. Það gæti
spillt miklu fyrir þér. Þú hefur
ríka kærleiksþrá og ert einlæg
þegar um ástamál er að ræða.
Þegar þú bindur þig er það
band sem þú vilt að haldi og
munt ávallt gera þitt til að svo
megi verða. Þú ert mikil fjár-
málamanneskja en ekki verð-
ur sagt að þú sért heimilis-
manneskja. Það væri betra fyr-
ir þig að eignast ekki mörg
börn því hætt er við að þau
lendi í öðru sæti vegna vinnu
þinnar, sem þú munt ávallt
setja fyrsta. Ég mun ekki
benda þér á neitt sérstakt í
sambandi við atvinnu það verð-
ur þú hvort eð er að finna út
sjálf.
FÁLKINN 41