Fálkinn - 21.03.1966, Side 42
HVERFISGOTU 16
SÍMI 2-1355
TRULOFUNAR
H
ULRICH FALKNER oullsm
LÆKJARGÖTU 2 2. HÆÐ
M
#'*'• '//(/
S*Gl£2.
□ 0
00
00
dd
EinangriMiargler
Framleitt einungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIDJ/IIM H.F.
Skúlagötu 57 — Símar 23200.
• Ég er saklaus
Framh at bls. 37.
Miðsumar ... Jónsmessunótt ..
Marianne vaknaði við hark
neðan úr trjágöngunum. Hún
stökk fram úr og gægðist út á
milli gluggatjaldanna. Þarna
kom flutningabíli með birkitré
á pallinum. Hann ók kringum
grasflötina og staðnæmdist beint
framan við tröppurnar. Út úr
stýrishúsinu komu Jannis Per
og gamli Tolvmans Olof. Þeir
fleygðu björkunum á jörðina
svo grannar greinar skulfu og
blöð losnuðu. En það skipti engu
máli. Sumarið var rausnarlegt
og gjafmilt! Þegar þeir höfðu
losað birkitrén af pallinum, fór
Jannis Per leiðar sinnar aftur.
— Sjá, blómatíminn kemur,
þá kætast menn og víf ...
Marianne hló. Hver myndi
fremur geta fært glens og há-
tíðablæ til setursins en Tolvmans
Olof, þetta mosagróna, gamla
smiðjutröll. Hún mátti til að
fara út til hans... út til ilm-
andi bjarkanna. Hún sleppti
gluggatjöldunum, hljóp inn í
baðherbergið og tók sér kalt
steypibað til að koma blóðinu
á hreyfingu. Síðan klæddi hún
sig í rósótt pils og hvita blússu.
Eara að Ulf kæmi ekki út! Hann
hafði varla yrt á hana siðan við
kvöldverðinn í Falun. Og sjálf
gat hún ekki fundið neitt til að
tala um við hann. Að finna nær-
veru hans en geta þó ekki nálg-
azt hann ... Það lá ísköld þögn
milli þeirra. Veggur, sem þau
gátu ekki brotið niður. En hún
þráði að lifa aftur þá tíð, þegar
þau gátu talað eðlilega saman,
þegar þau voru vinir. Þegar lítil-
fjörleg orð fengu á sig mikil-
vægan blæ og hin rétta þýðing
þeirra fólst í því, sem ósagt
var.
En milli þess tíma og nútíðar-
innar var hamingjuroðinn á and-
liti Louise ... gat blygðunarsemi
verið klúr?
Marianne ýtti við sjálfri sér.
Hún átti ekki að vera að hugsa
um þetta allt. Ekki að hugsa um
Ulf. Þetta var morgunn þess
dags, sem ... sem allt yrði eins
og vanalega, sagði hún við sjálfa
sig. Ekki að búást við neinu!
Samt sem áður var hún full
eftirvæntingar — eins og mið-
sumarið væri ekki nógu undur-
samlegt i sjálfu sér. Hún gekk
út til gamla smiðsins,
— Góðan daginn og gleðilega
miðsumarshátíð! kallaði hún tii
hans.
— Góðan daginn! Haltu í
björkina fyrir mig, sagði Toiv
mans Olof.
Marianne stakk hendinni á
milli greinanna og hélt grönn
um, gráfjólubláum stofninum að
súlunni. Hann var lifandi og
sléttur eins og silki í höndum
hennar. Henni fannst hún hafa
fengið trúnaðarverkefni. Það var
heiður að fá að aðstoða Tolv-
mans Olof. Við og við góndi
hann á hana undan loðnum
mosabrúnunum. Fingur hans
voru snubbóttir og hnýttir, og
hendurnar grómteknar af sótinu
í smiðjunni. Hann flumbraði
með snærið.
— Á ég að binda birkitrén?
spurði Marianne.
— Nei, það fær hún ekki. Ég
hef bundið miðsumarsbjarkirn-
ar við þessar súlur síðan ég var
barn og það hef ég hugsað mér
að gera framvegis enn í nokkur
ár, svaraði hann.
— Fyrirgefðu, sagði Marianne
lágt. Hún fékk kökk í hálsinn.
Það kom sér vel, að smiðurinn
var ekki skrafhreifur, því hún
hefði ekki getað svarað honum.
Hvernig skyldi hafa verið um-
horfs á Malingsfors, þegar hann
var barn? Hver bjó hér þá?
Henni fannst allt í einu, að hann
myndi vera eldri en Malingsfors.
Hann leit út eins og hann hefði
stigið út úr einhverju berginu
fyrir ævalöngu. En sennilega
var hann aðeins siðasti hlekkur-
inn í langri röð af huldukörl-
um, sem borið höfðu nafnið
Tolvmans Olof Erson i mörg
hundruð ár. Henni fannst hún
geta grillt í hina að baki hans ...
Raddir heyrðust innan úr for-
salnum. Dyrnar opnuðust og
Louise og Ulf komu út með
Hákon í eftirdragi. Þau köstuðu
kveðju á Tolvmans Olof og Mari-
anne og buðu þeim báðum gleði
lega miðsumarshátíð.
— Mikið ljómandi verður
fallegt hérna, hrópaði Louise
hrifin. En hvað Tolvmans Olof
er vænn að skreyta svona vel
hjá okkur.
Smiðurinn tuldraði eitthvað
ofan í bringu sér.
Framh. í næsta blaði
MYNDAMOT HF.
MORGUNBLAÐSHÚSINU SÍMI 17152
ENDURNÝJUM
SÆNGUR OG KODDA
FLJÓT AFGREIÐSLA
HÖFUM EINNIG
GÆSADÚN OG
DRALON SÆNGUR.
Póstsendum
um land allt.
DÚN-
OG FIÐUR-
HREINSUNIN
VATNSSTÍG 3
(örfá skref
frá Laugavegi)
Sími 18740.
PANTIÐ STIMPLANA HJA
FÉLAGSPRENTSMIÐJUNNIHF
SPÍTALASTIG10 V.ÚÐINST0RG
SIMI 11640
42
FALKINN