Fálkinn - 25.04.1966, Page 9
Skósmiður í Svíþjóð hefur komizt að þeirri merkilegu niður-
stöðu að brennivínssýki orsakist af vitlau: ri hormónastarf-
semi og orsakanna sé að leita í augunum. Þetta er mjög
flókið mál að útskýra, enda tók það skósmiðinn átta ár
að komast að niðurstöðu og naut hann þó hjálpar færra
augnlækna. Eiginlega mætti segja, að samkvæmt kenningu
Lars Korhonen, en svo heitir maðurinn, líti sá brennivíns-
sjúki ekki réttum aUgum á brennivínið og lækningin er
einfaldlega „brennivínsgleraugu“. Myndin er af skósmiðn-
um með brennivínsgleraugun.
300 mill|ónii* í eldinn
Hefðu frímerkjasafnarar fengið að vera viðstaddir athöfn-
ina sem sýnd er hér á myndinni, er hætt við að þeir
hefðu grátið brimsöltum tárum og lagt lífið í sölurnar
til að koma í veg fyrir framkvæmd hennar. Maðurinn
er nefnilega að brenna 100,000 örkum af gölluðum frí-
merkjum, sem brezka póstþjónustan vildi ekki nota. Frí-
merkin voru að nafnverði um 300 milljónir íslenzkra króna
og þó ekki hefði tekizt að krækja í nema nokkur þeirra,
hefði sá hinn sami ekki þurft að kvíða ellinni. Brennslan
fór fram undir ströngum lögregluverði.
BREMIVmSGLERArGr
NÚ ER VANDALÍTIÐ AÐ VIÐHALDA UNGU ÚTLITI OG AUKA
Á FEGURÐ SÍNA
EINFALDLEEA MEÐ ÞVÍ AÐ NDTA SNYRTIVÖRURNAR FRÁ:
REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆGU GÆÐAVDRUR OG SANN-
FÆRIZT UM ÁHRIFAMÁTT ÞEIRRA
FÁST I FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM
SIMYRTIVÖRLR HF. HEILDVERZLUN SlMI. 11020 - 11021
FALKINN
9