Fálkinn - 25.04.1966, Síða 28
Sér til hrellingccr hefur Ann Cornwell komizt a5 því, a8 eiginkona frœgs rithöfundar verður aS láta sér lynda
aS vera gerS hornreka, þegar manni hennar er hampaS. En hún er ekki uppnœm fyrir karlmönnum, sem
reyna að stiga í vœnginn vi8 hana, vegna þess a8 þeir halda, a3 hún hafi veriS skilin eftir úti i kuldanum.
Cornwell matat yngsta son sinn. Timothy, og opnar sjálfur munninn — til föSurlegrar fyrirmyndar. Hann
sinnir litt um að aga synina og er umburðarlyndari við þá en kona hans.
EINU sinni í fyrndinni
(það er að segja fyrir
réttum tveim árum) var
hæglátur, óþekktur láglaun-
aður embættismaður, sem
átti konu, þrjá unga syni og
alls ekkert sparifé, sem
dreymdi, að hann væri
skyndilega orðinn auðugur
og frægur. Ekkert sultarlíf
lengur. Nóg af peningum til
að borga alla reikninga.
Ann gæti fengið drauma-
húsið sitt. Hann myndi
kannski kaupa sér eitt eða
tvö pör af þessum skemmti-
legu málmskíðum ...
Dýrðardraumurinn hefur
rætzt, og rithöfundurinn
John le Carré (öðru nafni
David Cornwell) er búinn
að uppgötva, að stundum er
allt annað en auðvelt að búa
við sína eigin velgengni.
Hinar ótrúlega ljóslifandi
persónur í njósnareyfurum
Le Carrés eru sífellt að geta
sér til um kaupverð hverrar
annarrar en komast undir
lokin að raun um eigin verð-
lag. Cornwell sjálfum er nú
ljóst, hvaða gjald hann verð-
ur að greiða fyrir framann.
Þegar ég hitti hann nýlega
hátt uppi í austurrísku Ölp-
unum, þar sem snjóflóð
teppa oft vegina, var hann
að berjast við að halda höfð-
inu upp úr því flóði pen-
inga og frægðar, sem skollið
var yfir hann með löngum
símskeytum, stórgróðavið-
skiptum, viðtölum og heim-
sóknum, bréfum frá óþekkt-
um blómarósum, sem buðu
fram ýmiss konar þægindi,
og Hollywood-er-í-símanum.
Til allrar hamingju eru
milljónarar á hverju strái í
Lech am Arlberg, sem er
skíðastaður í fögru um-
hverfi. Því er það aðeins
umheimurinn, sem beinir at-
hyglinni að þessum feimna,
drengjalega Englending, er
lítur út eins og skólakennari
í Eton (sem hann og var).
Cornwell nýtur dulnefnis-
ins.
Líf hans er saga hins valta