Vaka - 01.04.1927, Side 13
tVAKA]
MUSSOLINI.
12a
menn sína með bareflum og hafði oft sýnt fjandmönn-
um sinum í tvo heimana! Mussolini virðist ekki hafa
veitt það örðugt að steingleyina hinni upphaflegu stefnu-
skrá fascista, þegar er hann hafði veður af þessu liugs-
anaslangri meðal yfirstéttanna. Það var og, að honum
hafði mistekizt herfilega að vinna verkalvðinn undan
foringjum jafnaðarmanna. í flokk hans gengu aðallega
miðstéttamenn, æstir þjóðernissinnar, undirforingjar og
hermenn, sem voru atvinnulausir eftir ófriðinn, o. s. frv.
En nú sá hann sér leik á borði og nýjar brautir til vegs
og valda, og þurfti þá ekki langan tíma til umhugsun-
ar. Því að ef nokkuð er víst um þenna mann, þá er það
þetta, að valdagirndin brennur í blóði hans sem ó-
slökkvandi eldur.
Haustið 1920 fóru fram bæja- og sveita-stjórnar-
kosningar á Ítalíu. Giolitti sat þá að völdum, en var ekki
fastur í sessi og þótti mikið undir, hvernig þessar kosn-
ingar færu. Hann greip þá til þess ráðs, að taka fascista
í sina þjónustu, en ætlaði sér vitanlega að snúa þegar
við þeim baki, er hann hefði haft not af þeim. Mussolini
og hans mönnum voru nú afhent vopri, sem höfðu verið
tekin leynilega úr vopnabúrum ríkisins. Flokkur hans
var þá enn þá svo lítill, að hann gat ekki lagt til at-
kvæðamagn, sem verulega munaði um. En sveitungar
hans, sem nú voru nefndir svartstakkar af bún-
aði sínum, fóru vopnaðir um bæi og sveitahéruð Norð-
ur- og Mið-Ítalíu og kúguðu menn til að greiða atkvæði
svo sem þeim þóknaðist eða hröktu þá frá kjörstað, svo
að þeir gátu ekki neytt kosningarréttar síns. Unnu þeir
vitanlega mörg og hroðaleg ofbeldisverk, en einhvern
veginn atvikaðist það svo, að lögreglan kom nálega
aldrei á vettvang fyr en um seinan.
Næsta ár komst Mussolini á þing og hafði þá nokkurn
flokk um sig, en þó fremur fámennan. Hafði Giolitti
stutt hann og hans menn tit þingsetu, en Mussolini sner-
ist þegar öndverður geg'n honum, og varð hann að leggja