Vaka - 01.04.1927, Page 15
; vaka]
MUSSOLINI.
125
kappsamlegast að æsa þjóðernisofsa ítala á undanförn-
um árum. Margir þessara ungu manna voru sannfærðir
um, að föðurlandi þeirra væri ætlað að inna feiknarleg
hlutverk af hendi í þjónustu menningarinnar. Ítalía ætti
eftir að verða enn þá einu sinni forustuþjóðin eða ein
af helztu forustuþjóðum heimsins, bæði í andlegum og
verklegum efnum o. s. frv. Árið 1921 gaf einn þessara
manna, P i e t r o Gorgolini, út bók um fascista-
hreyfinguna og foringja hennar, en Mussolini ritaði
sjálfur formálann fyrir henni, svo að hún verður að
teljast fullgilt heimildarrit um stefnu og hugsjónir
flokksins. Ritið fjallar að vísu um ýmis stefnumál
og umbætur, sem flokkurinn ætli sér að hrinda í
framkvæmd, en jafnvel um þau atriði er venju-
lega rætt með óákveðnum og óljósum orðum, og bók-
in er að mestu leyti ekkert annað en óstöðvandi
orðastraumur og taumlaust sjálfshól. Þar er glamr-
að um þjóðerniskröfur og þjóðfjelagshagi, alþjóðamál
og verkalýðshreyfingu o. s. frv., en lesandinn verður lít-
ils annars vísari en þess, að fascistar, og að eins fascist-
ar, geti kippt öllu í rétt horf. En um sjálfan foringjann,
Mussolini, eru orð höfundarins ljós og skýr. Mussolini
er nú talinn eitt af mikilmennum heimsins af fjölda
fólks í öllum löndum, en annað mál er, hvort sagan muni
staðfesta þann dóm. En það eitt má fullvrða, að hann
hefir óvenjulegan liæfileika lil þess að láta aðra menn
veita sér fulla og auðmjúka þjónustu, enda er hann tign-
aður og tilbeðinn sem hálfgoð og heimslausnari af sín-
um mönnum. Gorgolini kallar hann vísindamann, þjóð-
l'oringja, heimspeking, hershöfðingja, postula, göfug-
menni og margt fleira.
Loks skal þess getið, að stóriðjuhöldar og auðugir fé-
sýslumenn tóku að leggja stórfé til flokksins, eftir að
hann snerist á þeirra sveif, en tignir liðsforingjar komu
skipulagi á liðið og æfðu það.
Því miður er ekki kleift að gera hér grein fyrir því,