Vaka - 01.04.1927, Blaðsíða 27
[vaka]
MUSSOLINI.
137
inálum hers eða rikisstjórnar. En þeir, sem í blöðum
eða flugritum æstu menn til slíkra glæpa, skyldu sæta
5—30 ára fangelsisvist í einangruðum klefum. Slikt hið
sama þeir, sem bæru.til útlanda lognar eða ýktar frétt-
ir um ástandið á Italíu. Skyldu öll slík mál koma fyrir
herdóm. En forsæti í þeim dómi skyldi hafa einhver
háttsettur liðsforingi úr landher, sjóher, lofther eða
fascistaher, en fimm foringjar úr fascistaliðinu
skyldu dæma með honum.
Það er til marks um, að nú mun hafa gengið fram
af flestum á Ítalíu utan fascistaflokksins, að hinn 20.
des. ávarpaði páfinn kardínálaráðið í Róm og fór hóg-
værum, en þungum orðum um óöldina í landinu. Þetta
er þeim mun athyglisverðara sem páfinn hefir aldrei
dregið did á það, að hann væri vinveittur Mussolini,
og mun þess getið innan skamms, hvað því veldur. í
upjihafi ávarpsins segir jiáfi, að forsjónin vaki „næst-
um því bersýnilega" yfir lífi Mussolinis, enda virðist
landið í voða, hvenær sem hann sé í háska staddur. En
því næst minnist hann á stórviðrið, sem yfir landið hafi
gengið, og talar um hefndarofsann og hervirkin, sem
einstakir menn og stofnanir hafi orðið fyrir. Hann tek-
ur, svo sem vænta mátti, einkum svari trúaðra kaþólskra
manna og segir, að livorki biskupum né prestum hafi
verið hlíft, þrátl fyrir lielgar vígslur þeirra. Enn lætur
páfi þess getið, að oftar en einu sinni hafi sér borizt til
eyrna ýktar sögur af viðburðunum, en hitt hafi þó miklu
oftar við borið, að þær fregnir, sem honum voru fyrst
fluttar, hafi reynzl að eins örlítið brot af sannleikanum.
Mörg hörmungar-orð og heilræða eru í ávarpinu, en að
lokum kveður jiáfi ujip úr með það, að svo virðist sem
„nýr skilningur á ríkisvaldinu sé að ryðja sér til rúins,
sem sé ósamrýmanlegur skilningi kaþólsku kirkjunnar
á því efni, þar sem ríkið sé takmarkið samkvæmt jiess-
um nýja skilningi og eigi að einoka allt og gleypa allt í
sig, en borgarinn, maðurinn, að eins verkfærið". A5