Vaka - 01.04.1927, Page 54

Vaka - 01.04.1927, Page 54
164 SIGURÐUR NORDAL: [vaka] Þegar eg hafði sagt f'rá réttlætis-kröfu Confuciuss, vis- aði E. H. Kv. henni frá með fullri fyrirlitningu. „Vér mennirnir teygjum réttlætishugmyndina mikið meira en hrátt skinn .... Það er undur lítil leiðbeining fyrir oss að vísa oss á réttlætið eitt út af íyrir sig“ (Morgunn VII, 79). En ætli það sé ekki líka dálítið teygjanlegt, hvað er að vera flón eða rsefill? Eg efast ekki um, að Víga- Styr hefði fundizt hann vera hvorttveggja, ef hann hefði farið að þyrma óvinum sínum eða hæta víg þeirra að þarflausu. í síðasta kafla þessúrar ritgjörðar gerir E. H. Kv. eina persónuna í Fornum ástum, Álf frá Vindhæli, að um- talsefni. Dómurinn um hann er eins og undirbúningur að dóminum um Viga-Styr. P’yrst koma forsendurnar. Auðvitað er ekki bent á neitt Álfi til málsbóta. Efnið í Hel er rakið með skilningi og smekk Imbu vatnskerlingar: Álfur hefur „velt sér úr einum kvenfaðminum í annan“ og „hellt úr sér ókjör- um al' fimbulfambi slæpingsins“. Samkvæmt þessu er dómur sá, sem eg hugsa mér, að yfir hann gangi í öðr- um heimi, óhæfilega vægur. Eg efast ekki um, að ef Álfur hefði verið persóna í sögu eftir E. H. Kv„ hefði skáldið skilið, að allt líf hans var þroskaleit, þótt á refilstigum væri, og guð var sjálf- ur i þeirri leit. Og hann hefði skilið við Álf, líkt og Ey- vind, sem „ofurlítinn, elskulegan, vængjaðan guð, sem gekk illa að rata í skýjunum“. Álfur geldur höfundar- ins. Hann kemur undir lögmálið, en ekki náðina. Mis- gjörðir feðranna koma niður á börnunum. Þegar eg les nú Hel yfir, þykir mér vænt um, hve margt er öðru vísi sagt en eg myndi nú vilja. Eg tek það sem merki þess, að eg hafi ekki staðið í stað. En skoðanir mínar á lifinu, eins og þær koma þar fram í köflunum „Dagur dómsins“ og „Gras“, eru í engu breyttar. Eg hef ekki dregið fjöður yfir bresti Álfs né leynt skipbroti hans i lifinu. Það er að vísu satt, að hann lendir hvorki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.