Vaka - 01.04.1927, Page 96
206
RITFREGNIR.
[vaka]
Sigrún gerir, þá væri hún alls ekki ung stúlka, heldur
eitthvert viðundur. Þessi litla ritg.jörð sýnir þó ekki ein-
ungis, hve vel Sigrún hefur verið gerð úr íoðurgarði,
heldur líka, hve góð vaxtarskilyrði hún liefur haft á
Laugum. Betri meðmæli ineð skólanum gat Ársritið
varla flutt. Það má líka minna á, eins og áður hefur
verið gert (í Menntamálum, minnir mig), að ritgjörðin
sýnir, hve frábærlega vel fornsögur vorar eru hæfar til
lestrar fyrir menn á öllu reki. Ánnað dæmi þess liggur
lesöndum Vöku nú í augum uppi, þar sem eru tvær, á-
gætar og gagnólíkar ritgjörðir um silfur Koðrans á Giljá
i 1. og 2. hefti tímaritsins.
Fleira væri gaman að minnast á í Ársritinu, en hér
verður staðar að nema. En þessi litla bók hefur verið
mér mest gleðiefni af þeim bókum, sem eg hef fengið
í hendur síðasta misserið. Þó rifjaði hún lika upp fyrir
mér það mál, sem olli mér einna mestri gremju síðasta
árið: skólamál Sunnlendinga. Eg vildi óska, að ársrit
Laugaskóla yrði lesið mikið um allar sveitir, en mest
austanfjalls. Það mun hjálpa Sunnlendingum betur að
skilja, hverju þeir hafa teflt úr höndum sér ■— a. m. k.
um stundarsakir — með tvídrægni sinni og ráðleysi i
skólamálinu. En það er auðvitað ekki nema samkvæmt
lífsins harða lögmáli, að það hérað fái seinast alþýðu-
skóla og spyrni fastast móti honum, sem mesta hefur
þörfina fyrir hann.
S. N.
Gunnar Benedik tsson : VIÐ ÞJÓÐVEGINNN. Ak-
ureyri, 1926. 166 bls.
Saga þessi er um unga stúlku af háum stigum í
Reykjavík, um æsku hennar í eftirlæti og allsnægtum,
iöngun hennar til að líkna og hjálpa fátækum, vanmátt
hennar og uppgjöf andspænis feiknum mannlegrar
eymdar og svívirðu. Á uppvaxtarárunum beinist hugur
hennar allur að fátæktinni, að volæðinu og niðurdrep-
inu í kjallaraíbúðum höfuðstaðarins, og þvi meir sem
hún vitkast, því sterkar blygðast hún sín fyrir óhófið
og glysið í föðurhúsum sínum. En kjarkur hennar og
fórnfýsi fylla hugann draumum um að verja lífinu til
að berjast gegn eymdinni, hún byrjar á því, og ýms-
ir rétta henni hjálparhönd. En svo kynnist hún öðrum
hliðum á lífinu, sem buga kraft hennar i bili og gjör-