Vaka - 01.11.1927, Side 16

Vaka - 01.11.1927, Side 16
334 ÁSGEIR ÁSGEIRSSON: [vaka] kennarar að gera sér sem nákvæmasta hugmynd um árangur skólastarfsins. í því efni hafa á seinni árum verið fundin ráð, sem eru til mikilla bóta. Prófsefni eða mælikvarðar, nákvæmari en áður hefir tíðkazt, hafa verið gerðir, og ná þeir til allra venjulegra námsgreina, þó vitanlega séu þær misjafnlega fallnar til nákvæmra mælinga. Tökum til dæmis skriftarkennslu. Það eru kostir rit- handar, að hún sé læsileg, fögur og að hratt sé skrif- að. Skriftarmælikvarði er i sýnishornum, mörgum eða fáum eftir því sem vill. Hann er gerður þannig, að tek- inn er fyrst fjöldi sýnishorna; þeim er svo raðað af sérfróðum mönnum í svo marga flokka, sem óskað er, og síðan borið saman mat þeirra. Þegar svo hefir verið t’lokkað til fulls, er eitt sýnishorn tekið úr hverjum flokki og er þá mælikvarðinn kominn. Við þessi sýnis- horn er svo skrift þeirrá barna, sem dæma skal um, miðuð. Má að visu segja, að hér sé um mat að ræða í gamla stílnum, bæði þegar mælikvarðinn er gerður og þegar hann er notaður, en þó mun engum bland- ast hugur um, að einkunnagjöf verði með þessum hætti nákvæmari og sambærilegri í fjarlægum skólum en þegar engin sameiginleg sýnishorn eru til samanburð- ar. Sumir skriftarmælikvarðar eru miðaðir við það eitt, hversu læsileg skriftin er. Er þá mælikvarðinn gerður með tilliti til þess, hversu fljótlesin skriftin er, og not- aður síðan með sama hætti og áður. Um það munu ckki skiftar skoðanir, að sú skólanámsgrein, sem bezt er fallin til nákvæmra mælinga, sé stærðfræðin. Þar er munurinn á réttu og röngu ótvíræðastur. Mælikvarðinn er syrpa af dæmum, þar sem lil greina koma allar fjór- ar höfuðgreinar reikningsins, ýmist áþekk dæmi eða létt fyrst og smáþyngjast síðar. í einkunnunum má taka tillit til hvorstveggja, flýtis og vissu. Venjulega er met- ið eftir útkomunni einni, hvort hún sé rétt eða röng, og telja sumir það fullnægjandi, en aðrir krefjasí þess,

x

Vaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.