Vaka - 01.11.1927, Page 20
338
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON:
(vakaJ
tvær vikur eða jafnvel heilan mánuð. Nemendurnir
haga starfinu eins og þeim líkar; þeir hafa frjálsræði
og ábyrgðin hvílir á þeirra herðum. Hlutverk kennar-
ans er að leiðbeina um aðferð, þegar allt ætlar að fara
í strand, og stundum um efni. Kennarinn vakir yfir
skyldurækni nemandans. Dómurinn um góða eða lé-
Jega úrlausn bíður nemandans í lokin. Nemenduin er
heimilt að vinna saman að þvi að leysa úr verkefnun-
mn og jafnvel lögð áherzla á, að þeir hjálpi hver öðr-
um og skifti haganlega með sér verkum. Minnir kennslu-
aðferð þessi því að sumu leyti á heimalestur nemenda.
Er þó heimalestur og venjulegt heimastarf meir bundið
við kennslubækur og námsgreinar. En þegar Dalton-að-
ferð er beitt, reynir meir á nemandann um að velja
leiðir til aðdrátta, og skólastarfið sjálft er einmitt í
þessu fólgið, að leysa verkefnin af eigin mætti og á eig-
in ábyrgð. Kennslustofan er verkstæði og vinnustofa.
Margir, sem beitt hafa þessari kennsluaðferð að ein-
hverju eða öllu leyti, bera henni gott vitni, nemendurnir
taki meiri framföruin og verði sjálfbjarga og framtaks-
samir. En ekki þykir vert að beita henni of snemma.
Ekki þykir heldur öllum hent að inna af hendi skólastarf
með þessum hætti, og eru þá þeir, sem bregðast, settir
aftur í bekki, sem lúta gamla laginu. Margir telja að
Dalton-aðferðin komi vel heiin við Montessori-aðferð-
ina, þannig að Montessori-skólarnir séu fyrir ungbörn,
en Dalton-skólar eigi að taka við, þegar þau vaxi að
þroska. Hvortveggja kennsluaðferðin byggir á þeirri
trú, að börn og unglingar vilji AÚnna og starfa, að-
gerðaleysið veki jafnan leiðindi og óþreyju, sem hljóti
að beina letingjanum inn á athafnabrautir, jafnvel þó
hann sé látinn eiga sig. Því sé nemendunum engin
hætta búin af algerðu frjálsræði. Er þetta mikil bjart-
sýni. Mun það að vísu rétt, að enginn unir aðgerða-
leysinu til lengdar, en hinu verður ekki treyst, að starfs-
hvöt harna og unglinga beinist af sjálfu sér inn á réttar