Vaka - 01.11.1927, Qupperneq 32

Vaka - 01.11.1927, Qupperneq 32
350 HERMANN JÓNASSON: [vaka] sóknum sínum á orsökum afbrotanna komizt aö þeirri niðurstöðu, að viljinn sé háður orsakalögmálinu. Að vilji mannsins geti verið frjáls, kemur í fyrsta lagi beint í bága við öll þau lögmál, sem við þekkjum. Allt, sem gerist á jörðu hér, stafar af einhverri or- sök, án orsaka getur engin afleiðing komið fram. Það gerist aldrei það verk, enginn viðburður, sein ekki er unnt að rekja til einhverra orsaka. Við verðum þvi að álita það margreynda og rannsakaða staðreynd, að or- sakasambandið sé fast og ófrávikjanlegt náttiirulög- mál. Það er því engin ástæða til að ætla, að manns- viljinn sé undantekning frá þessu l'astá náttúrulög- máli, — þvert á móti. Gjörðir mannanna eru sprottn- ar af því, hvernig hann hugsar, en hugarfar hans á hverju augnabliki er afleiðing af óteljandi utanað- komandi áhrifum á tiltekið innræti (Karakter). Mað- urinn getur því alls ekki gert sér það ljóst, hvenær eða hvernig hann fer að verða fyrir þeim áhrifum, sem mynda hjá honum þá hugsun, er leiðir til hvers einstaks verks. Ógrynnin öll af atvikum hafa áhrif á oss á leið vorri gegnum timanri, án þess að vér þekkj- um þau eða gerum oss grein fyrir þeim. í óteljandi verkum, dag frá degi, eru afleiðingar þessara áhrifa að koma fram, án þess að vér vitum, hvernig sú hugsun hefir mótazt, sem verkunum veldur. Sú kenning, að verk einstaklinganna, þar á meðal Jiau, sem vér köllum afbrot eða glæpi, séu öll afleið- ingar af orsökum, hefir leitt til rannsókna á því, hverj- ar séu orsakir afbrotanna, enda telur hin nýja stefna þær rannsóknir eitt mikilvægasta viðfangsefni refsi- réttarins. Það hefir sýnt sig, að þegar mikið er íyrir hendi af sumum atriðum (drykkjuskapur, slæpingsháttur, vond- ur félagsskapur o. s. frv.) í lífi einstaklinga og þjóða, fjölgar afbrotunum; sé þessum atriðum útrýmt, fækk- ar afbrotunum. —
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Vaka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.