Vaka - 01.11.1927, Page 37

Vaka - 01.11.1927, Page 37
! vaka] UM REFSIRÉTT OG REFSIFRAMKVÆMI). 355 verra: eí' þessi afbrotabörn fá aö vera með öðrum börn- um, kenna þau þeim einnig ódyggðina. Hinsvegar reyn- ist oft létt, ef þessi vanhirtu afbrotabörn eru tekin í tíma, að koma þeim á réttan kjöl ti! frambúðar. Þess vegna leggja nú öll menningarríki meiri og meiri á- herzlu á að hafa vakandi eftirlit með uppeldi barn- anna, taka vanhirtu afbrotabörnin og koma þeim á sérstök uppeldisheimili. Af samskonar ástæðum hefir sérstökum aðferðum verið beitt við unga afbrotamenn á aldrinum 16—21 eða jafnvel 25 ára aldurs. Aðferðirnar eru mismunandi eftir því, hvaða orsakir eru taldar valda afbrotinu, en það er reynt að rannsaka nákvæmlega, áður en ákvörð- un er tekin um aðferðina. Ef unglingurinn hefir fram- ið afbrotið fyrir augnabliks yfirsjón, en líferni hans hefir undanfarið verið gott og viljalífið því óspillt, er venjulega látið nægja að dæma hann skilorðsbundið og setja hann undir eftirlit og handleiðslu góðs manns. Ef unglingar þessir brjóta ekki af sér á næstu árum, sleppa þeir við hina skilorðsbundnu refsingu. Reynsl- an hefir sýnt, að góð handleiðsla og sú ógnun að verða að úttaka refsingu, ef yfirsjónin endurtekur sig, er oftast unglingum af þessari tegund nægur styrkur og aðvörun. — Hinsvegar eru lil unglingar, sem fallið hafa fyrir spilltu 'félagslífi bðrganna, drykkjuskap, slæpingshætti og hneigð til ýmissa lasta, sem gefinn hefir verið laus taumur, — þessir unglingar eru vilja- slappir; handleiðsla og skilorðsbundnir dómar duga þeim ekki, stuttar fangelsirefsingar draga þá enn lengra niður i sorpið; þetta er ómótmælanleg reynsla. Þessa unglinga vill nýja stefnan láta setja í vinnu- skóla um lengri tíma; — það hefir verið gert víða og hefir sérstaklega i Englandi borið ágætan árangur. í vinnuskólunum er unglingunum fyrst og fremst tamið hreinlæti, reglusemi og iðjusemi. Með þessu er reynt að mynda hjá þeim nýja skapgerð. Þeim er kennd ein-

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.