Vaka - 01.11.1927, Page 40

Vaka - 01.11.1927, Page 40
[VAKA ANDLEGT LÍF Á ÍSLANDI. i. Arið 1880 var afhjúpaður í Moskva minnisvarði skáldsins Pusjkins. „Félag vina rússneskra bókmennta“ stofnaði við þetta tækifæri til Pusjkin-hátíðahalda, sem stóðu þrjá daga. Ýmsir af snjöllustu rithöfundum Rússa lýstu skilningi sínum og aðdáun á skáldinu í vönduðum fyrirlestrum. Siðasta daginn talaði Dos- tojewskij. í djúphugsaðri ræðu, sem er jafn frábær að skarplegri íhugun og heitri hrifningu, lýsti hann land- námi Pusjkins í rússneskum bókmenntum og vék að lokum að því víðfeðmi rússnesks mannvits og hjarta- lags, sem átt hefði einn sinna glæsilegustu fulltrúa þar sem hann var. Ræða þessi vakti óhemju fögnuð. N. N. Strakhof, einn af beztu vinum Dostojewskys og höfundur að merkri ritgerð um hann, hefir lýst viðtökum áheyr- enda. Framan af ræðunni var eins og menn héldu niðri í sér andanum, svo hljótt var i salnum. „Menn hlust- uðu, eins og ekkert hefði áður verið uin Pusjkin sagt, þangað til hinn fyrsti stormur ákafs lófataks glumdi í salnum. En eftir það var eins og áheyrend- ur gætu engin bönd á sig lagt og gæfu sig lognuði sínum algerlega á vald. Þeir höfðu fyrir sér mann, sem var gagntekinn hrifningu, og þessi maður tjáði þeim skilning, sem hlaut að vekja heita gleði. Enginn, sem var ekki viðstaddur, getur gert sér hugmynd um það uppnám, sem í salnuin varð eftir lok ræðunnar. Það var bókstaflega gert áhlaup á pallinn, þar sem ræðu- menn sátu. Unglingur einn, sem komst alla leið að

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.