Vaka - 01.11.1927, Qupperneq 57
[vaka]
ANDLEGT LÍF Á ÍSLANDI.
375
menn helgað sig ritlist án þess að hafa áhyggjur af dag-
legu brauði sínu. Ef þjóð vor á að eignast merkar bók-
menntir í framtíðinni, þá verður að sjá fyrir því með ein-
hverju móti, að á hverjum tíma geti nokkrir hinna beztu
rithöfunda lifað fyrir starf sitt. Ef rikisforlag yrði stofn-
að og því gert kleift að gjalda ritlaun, jafnhá sæmileg-
um árslaunum, fyrir t. d. hverja ágæta íslenzka skáld-
sögu, þá þyrftu rithöfundar vorir ekki að hafa áhyggjur
af öðru en verki sínu, — að það yrði þess virði, að
ríkisforlagið væri samit af að gefa það út.
ö. Hvað myndi ríkið verða að leggja forlaginu á ári
hverju? Ég treysti mér ekki til þess að gizka á það.
Forlagið inyndi hafa mikil útgjöld — og miklar tekj-
ur. Með því að senda meginið af bókum sínum beint
til áskrifenda, án milligöngu bóksalanna, yrði ef til
vill kleift að gera bókaútgáfuna tekjuhallalitla. En ger-
uin ráð fyrir að forlagið þyrfti t. d. 100 þús. kr. styrk
á ári — eða Vioo af tekjum ríkissjóðs. Er það mikið
fyrir þjóð, sem hefir efni á því, að borga tveim em-
bættismönnum í Reykjavik yfir 100 þús. kr. á ári?
íslenzka þjóðkirkjan kostar % inillíón á ári. Myndi
ekki mega vænta þess, að ríkisforlagið hefði eins mikið
gildi fyrir andlegt líf þjóðarinnar og hver sá fimmti
hluti prestastéttarinnar, sem tekinn væri til saman-
burðar?
— Alþingi það, er saman kemur í vetur, ætti að Iáta
það verða sitt fyrsta verk, að kjósa milliþinganefnd
til að undirbúa með rannsókn og tillögum stofnun ríkis-
forlags, er inni þá skyldu af hendi, að sjá þjóðinni
fyrir nægum kosti góðra og ódýrra bóka.
Kristján Albertson.