Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 42
42 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Þ
etta er mitt persónulega val,“
segir Einar Falur. „Þegar ég
var beðinn um að setja saman
yfirlitssýningu yfir íslenska
ljósmyndara valdi ég að skoða
ljósmyndara sem hafa haft
afgerandi áhrif á ljósmyndun hér á landi.
Þetta er allt fólk sem hafði og hefur ljós-
myndun að ævistarfi og hefur markað djúp
spor í ljósmyndasöguna.“
Ljósmyndararnir eru: Sigfús Eymunds-
son, Nicoline Waywadt, Magnús Ólafsson,
Pétur Brynjólfsson, Sigríður Zoëga, Jón
Kaldal, Ólafur Magnússon, Vigfús Sigur-
geirsson, Ólafur K. Magnússon, Guðmundur
Ingólfsson, Sigurgeir Sigurjónsson, Ragnar
Axelsson og Páll Stefánsson.
„Ég hef verið að kenna ljósmyndasögu og
hef oft gripið til líkingamáls úr íþróttum,“
segir Einar Falur. „Ég vildi velja íslenska
ljósmyndalandsliðið og ætlaði því fyrst að
hafa þetta ellefu ljósmyndara, eins og í fót-
boltaliði. Þegar til kom fjölgaði þeim í þrett-
án af því enginn vildi vera á varamanna-
bekknum.“
Sýningin spannar ljósmyndir frá 1866
fram á okkar dag. „Þarna eru splunkunýjar
myndir teknar eftir hrun sem sýna breytta
ásýnd Reykjavíkur. Af þessum þrettán ljós-
myndurum eru níu látnir en fjórir starfa
enn. Ég valdi að hafa þetta fólk fætt fyrir
1960 til að búa ekki til óþægilegan núning
við fólk á mínum aldri.“
Sýningin var fyrst opnuð á Listasafninu á
Akureyri. Í tengslum við sýninguna kemur
út vegleg bók sem bókaútgáfan Sögur gefur
út með ljósmyndunum á sýningunni og
texta eftir Einar Fal. Á morgun, sunnudag-
inn 15. nóvember, verður Einar Falur með
sýningarstjóraspjall um sýninguna. - drg
Ljósmyndaralandsliðið
Í Hafnarborg í Hafnarfirði stendur nú yfir ljósmyndasýningin Úrvalið. Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari valdi myndirnar á
sýninguna og þær eru einnig komnar út á bók. Einar Falur valdi fimm myndir af rúmlega eitt hundrað á sýningunni og deilir
með lesendum Fréttablaðsins.
MITT PERSÓNULEGA VAL Einar Falur Ingólfsson, sýningarstjóri Úrvalsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Reykjavík séð frá
Skólavörðunni, 1877.
Þjóðminjasafn Íslands.
„Þetta er í senn óvenju-
leg, falleg og upplýsandi
ljósmynd. Tekin ofan
úr Skólavörðunni sem
skólapiltar hlóðu á
19. öld, niður þennan
beina veg sem nú er
Skólavörðustígurinn
og er fangelsið þarna
efsta húsið, annars bara
urð og grjót. Í fjarska
sjáum við Örfirisey og
höfnina, þar er búið að
fylla mikið upp eins og
sjá má.
Sigfús var brautryðj-
andinn í íslenskri ljós-
myndun og framúrskar-
andi fagmaður. Hann
rak góða ljósmyndastofu
að Lækjargötu 2, í hús-
inu sem brann í fyrra,
þar sem allnokkrir arf-
takar hans lærðu fagið,
en hann var líka frum-
kvöðull í töku staða- og
landslagsmynda og
eftir hann liggja margar
ómetanlegar perlur, eins
og þessi.“
SIGFÚS EYMUNDSSON (1837-1911)