Fréttablaðið - 14.11.2009, Qupperneq 74
46 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Hverjir voru Majarnir?
Heimsendaspár spretta upp
reglulega hjá mannkyninu og
tengjast oftar en ekki alda-
mótum. Margar heimsenda-
spár voru til dæmis uppi um
árið 2000, en þar þóttust marg-
ir sjá teikn um endalok heims-
ins í spádómum Nostradamusar
og í Biblíunni sjálfri. Ein helsta
kenning um heimsendi tengist
þó dagatali Majaþjóðarinnar
sem var stærsta menningarþjóð
Suður-Ameríku frá um tvö þús-
und fyrir Krist þar til spænsku
landnemarnir settust þar að.
Borgir Majanna náðu hátindi
sínum á tímabilinu 250-900 eftir
Krist. Menning Majanna var
að mörgu leyti lík menningu
annarra fornmenningarþjóða í
Suður-Ameríku, eins og Astek-
anna og Inkanna, þar sem sam-
göngur innan álfunnar voru miklar. Majarnir voru því ekki þeir
fyrstu til að skapa ritmál sitt né hið forna dagatal en það voru þeir
sem þróuðu það að fullu. Áhrif Majannana ná frá löndunum Hond-
úras, Guatemala og El Salvador allt til Mexíkó sem liggur meira en
þúsund kílómetra í norðri. Majaþjóðin hvarf aldrei að fullu. Marg-
ir íbúar þessara landa eiga rætur að rekja til Maja og halda enn
uppi trúarbrögðum og tungumálum þeirra, meðal annars Achi‘-
tungunnar sem víða er töluð í dag.
Er heimsendir í nánd?
Bandaríska kvikmyndin 2012 kom í kvikmyndahús um helgina en hún byggir á sögusögnum sem tengjast spádómum hinnar
fornu Majaþjóðar. Dagatal hennar endar árið 2012 og gæti því markað annaðhvort upphaf nýrra tíma eða heimsendi. Anna
Margrét Björnsson grúskaði í fornum fræðum og nýjum samsæriskenningum.
Hvað er Maja-
dagatalið?
Majarnir not-
uðu mjög
þróað og flók-
ið dagatal sem
byggði á 260
daga tímabil-
um og voru
reiknuð út frá
gangi sólar,
tungls og
reikistjörn-
unnar Venus-
ar. Það sem
þykir sérstak-
lega fágað og merkilegt við dagatalið er að það byggir
á hringlaga tímalínum og unnt var að sjá þar hvernig
atburðir gátu haft línuleg tengsl sín á milli. Samkvæmt
vísindavef Háskóla Íslands er dagatalið sem um ræðir
kallað „langa talningin“ (e. Long Count). Það er sprott-
ið út úr sameiningu tveggja eldri dagatala, auk þarf-
arinnar til að geta skráð sögu þjóðar sem spannar
nokkur hundruð ár. Dagsetningar eru táknaðar
með fimm tölum sem sýna hversu langur tími
er liðinn frá fyrir fram ákveðnum degi. Þessi
upphafsdagur, sem var táknaður sem 0.0.0.0.0
í dagatali Maja, er 11. ágúst árið 3114 f.Kr. að
okkar tímatali.
Einn stór misskilningur?
Eitt dagatal Majanna endar árið 2012, eða nánar til-
tekið hinn 21. desember árið 2012. Undir lok 9. áratug-
arins settu nokkrir nýaldarspekingar fram þá hug-
mynd að daginn þegar þetta dagatal tæki enda væri
von á miklum hörmungum. Þessar hugmyndir hlutu
nokkurn hljómgrunn innan nýaldarhreyfingarinnar og
hafa nú öðlast sjálfstætt líf. Hins vegar segja margir
fræðimenn um siðmenningu Majanna að það sé mis-
skilningur að túlka dagatalið þannig að það endi árið
2012. Majar lögðu enga merkingu sjálfir í árið 2012 og
engar heimildir eru um hvað þetta ár kunni að tákna
fyrir þeim. Þeir bæta við að vestræna hugmyndin um
„heimsendi“ sé hugmynd sem hafi lítið sem ekkert haft
að gera með trúarbrögð eða hugmyndir Majaþjóðarinn-
ar. Mexíkóski fornleifafræðingurinn Guillermo Bernal
segir að þessum skáldskap um heimsendi hafi verið
klínt á Majanna vegna þess að vestrænar þjóðir höfðu
ekkert lengur að sækja til eigin trúarbragða og sögu-
sagna. Fornleifafræðingurinn Jose
Huchm, sem hefur rannsakað
Majana áratugum saman, segir:
„Ef ég spyrði fólk sem enn
talar tungu Majanna hvað
myndi gerast árið 2012
myndi það ekki hafa
minnstu hugmynd
um það, né trúa því
að heim-
urinn
myndi
enda
þá.“
Hvernig verða endalokin?
Þrátt fyrir að varla sé fræðilegur möguleiki fyrir því
að heimsendir geti orðið á nokkrum dögum eru kenn-
ingarsmiðirnir um heimsendi árið 2012 með frjótt
ímyndunarafl. Sumir segja að það verði tíunda plá-
neta sólkerfisins, sem kölluð er Nibiru eða pláneta X,
sem rekist á jörðina. Þessi kenning hefur verið til allt
frá árinu 1995 og áreksturinn var fyrst áætlaður árið
2003. Þar sem heimildarmenn þessara kenninga eru
geimverur sem tala í gegnum miðla er hæpið að þetta
muni standast. Önnur tilgáta er að eins konar segulsvið
myndist á milli sólarinnar okkar og svarthols í vetr-
arbrautinni sem kallast Sgr A* þegar sólin er á ákveð-
inni sporbraut við svartholið. Þetta segulsvið á svo að
umturna öllu á plánetunni okkar og leggja hana í eyði.
Vandamálið við þessa kenningu er að sólin var á þess-
ari sporbraut árið 1993 en þá gerðist ekki neitt. Í okkar
vestræna þjóðfélagi er það undarleg hugmynd að tengja
saman endalok dagatals og heimsendi. Á hverju ári
endurtaka sömu mánaðardagarnir sig í okkar dagatali;
þannig getum við gengið
að því vísu að 12. ágúst
hafi verið á síðasta ári,
sé á þessu ári, og verði
aftur á næsta ári. Daga-
talið okkar tekur enda
hinn 31. desember, og á
eftir honum kemur ein-
faldlega 1. janúar, en
ekki heimsendir. Á sama
hátt er hæpið að ætla að
heimsendir verði hinn
21. desember 2012 þrátt
fyrir að þá taki dagatal
Maja enda, og því engin
ástæða fyrir landsmenn
að sleppa jólaundirbún-
ingnum það árið.
Kenningar nýaldarsinna
Þeir sem hafa gaman af
að grúska í gömlum fræð-
um og aðhyllast kenning-
ar nýaldarsinna hallast að
því að endalok Majadaga-
talsins bendi ekki til þess
að heimurinn muni enda
árið 2012. Það sem muni
gerast samkvæmt þeim sé
einhvers konar „ný öld“,
þar sem mannkynið breyt-
ist á mikilvægan hátt. Þeir
telja að andleg málefni
muni verða allsráðandi í
stað efnishyggjunnar og
að menningarheimar muni
færast nær hver öðrum
og öðlast meiri samkennd.
Sumar kenningar benda
á rit Maja um endurkomu
guðsins Quetzalcoatl sem
var hinn „hvíti“ guð eða
einhvers konar messías.
Spár hafa einnig verið
uppi meðal nýaldarsinna
um algjört efnahagshrun
árið 2012 sem kannski eru
ekki svo fjarri lagi. Marg-
ar bækur hafa verið skrif-
aðar um þetta efni, meðal
annars The Mystery
of 2012: Predictions,
Prophecies and Possibil-
ities eftir Gregg Braden,
The Return of Quetzal-
coatl eftir Daniel Pinch-
beck og The Orian Prop-
hecy eftir Patrick Geryl
og Gino Ratinck.
Hollywood-mynd um
heimsendi 2012
Stórmyndin 2012 er komin
í bíóhús hérlendis og er þar
á ferðinni stórslysamynd
með leikurunum John Cus-
ack, Danny Glover, Woody
Harrelson og Thandie
Newton í aðalhlutverkum.
Auglýsing fyrir myndina
vakti þó nokkra athygli en
þar gaf að líta risaflóðöldu
sem flæddi yfir Himalaja-
fjöllin. Í kvikmyndinni er
ýjað að því að stjórnvöld
víðs vegar um heim hafi
vitað að heimurinn ætti
að enda árið 2012 vegna
vísindalegra rannsókna
en hafi ekki látið almenn-
ing vita. Sumsé í anda
allra vinsælustu samsær-
iskenninga heims. Auglýs-
ingar fyrir kvikmyndina
hvöttu almenning einnig
til að fara á veraldarvef-
inn og „gúggla“ heimsendi
árið 2012 til þess að „kom-
ast að hinu sanna“. Breska
dagblaðið The Guardian
gagnrýndi þessa herferð
harkalega og benti á að
fólk myndi helst lenda á
algjörri vitleysu með kenn-
ingum um 2012 sem ættu
sér engar vísindalegar
stoðir.
ÞJÓÐ SVEIPUÐ DULÚÐ Pýramídinn
Kukulkan er einn af fjölmörgum fornleif-
um Majaþjóðarinnar. Hann var byggður
um 984 árum fyrir Krist.
Til að fá hugmynd um hvernig dagatalið virkar er
best að taka nokkur einföld dæmi:
0.0.0.0.1 táknar 1 dag,
0.0.0.1.0 táknar 20 daga,
0.0.1.0.0 táknar um það bil eitt ár, eða 360 daga,
0.1.0.0.0 táknar tæp 20 ár, eða 7200 daga, og
1.0.0.0.0 táknar tæp 400 ár, eða 144.000 daga.