Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
27. nóvember 2009 — 281. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
GUÐBJÖRG ÓSK FRIÐRIKSDÓTTIR
Eldar gjarnan en
sjaldnast eftir uppskrift
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
AÐVENTA, einleikur byggður á sögu Gunnars Gunnarsson-
ar, verður sýndur í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi sunnu-
daginn 29. nóvember og miðvikudaginn 9. desember. Sagt
er frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í
vetrarríki aðventunnar að leita þess fjár sem eftir varð er smal-
að var um haustið. Leikari er Pétur Eggerz. www.gerduberg.is
Jógakennarinn Guðbjörg Ósk
Friðriksdóttir, eða Ósk eins og
hún er kölluð, veit að mataræði,
hreyfing og hugarfar eru grund-
vallaratriði þegar kemur að góðri
líðan. Hún hefur kennt Rope Yoga
um margra ára skeið þm ðf
Fer lítið eftir uppskriftum
Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir hefur gaman af því að elda en spinnur uppskriftirnar yfirleitt á staðnum.
Hún segir hugarfar ekki skipta minna máli en hreyfing og hollt mataræði þegar kemur að heilbrigði.
Ósk leggur ríka áherslu á samspil hugar og líkama og segir það geta haft áhrif á holdafarið að kljást við neikvæðar hugsanir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
3 dl bygg
9 dl vatn eftir smekk (skorið
FISKUR Í ÍTÖLSKUM BÚNINGImeð pestóbyggi FYRIR FJÓRA
Snitzel
samloka
Kaffi tería Perlunnar á 4. hæðSnitzel samloka með súrsuðum rauðlauk, fersku káli og piparrótarsósu
Aðeins
790 kr.
Þjóðræknisfélagið
sjötíu ára
Eflir samskipti
Íslands og afkom-
enda íslenskra land-
nema í Vesturheimi.
TÍMAMÓT 32
Stuttmynd um mafíu
Stefán Þór leikstýrir
stuttmynd um
mafíu og glæpa-
starfsemi.
FÓLK 44
Björt ævisaga
Ævisaga Vigdísar eftir Pál Valsson
fær fjórar stjörnur.
MENNING 39
Því lengi býr að fyrstu gerð
Svooona stór
www.tiger.is
JÓLAGJAFA-
HANDBÓKIN
ER KOMIN ÚT
FÓLK Söngkonan Beyoncé Knowles kom óvænt inn
í verslun Topshop í London í gær og festi þar kaup
á leggings frá íslenska tískufyrirtækinu E-label.
Merkið hefur verið til sölu í Edit-deild verslunar-
innar frá því í byrjun nóvember.
„Yfirmenn í Topshop hringdu í okkur og sögðu
okkur frá því að Beyoncé væri stödd í verslun-
inni og hefði keypt Heavy Metal leggings frá E-
label. Við urðum auðvitað mjög ánægðar enda
mikill heiður fyrir merkið. Þau sögðu okkur að
hún hefði mætt þangað með nokkra lífverði með
sér og halarófu af æstum aðdáendum,“ sagði Ásta
Kristjánsdóttir, sem rekur E-label ásamt Hebu
Hallgrímsdóttur, en hönnuður er Ásgrímur Már
Friðriksson.
Beyoncé er þó ekki fyrsta söngkonan til að
klæðast flíkum frá E-label því samkvæmt Ástu
hafði fyrrum samstarfskona hennar, Michelle
Williams, pantað sex flíkur frá fyrirtækinu. „Það
væri mjög gaman að rekast á myndir af þessum
konum í fötum frá okkur í nánustu framtíð,“ segir
Ásta. -sm/ sjá síðu 54
Söngkonan Beyoncé keypti flík frá tískufyrirtækinu E-label:
Destiny‘s Child í íslenskri hönnun
FÓLK Sigríður Dögg Arnardótt-
ir hefur stundað meistaranám
í kynfræði við Curtin-háskól-
ann í Perth í Ástralíu. Nú er hún
flutt heim og heldur fyrirlestra
um kynlíf. Lokaritgerð hennar
mun fjalla um áhrif ófrjósemi á
karla.
„Flestar rannsóknir einblína á
áhrif ófrjósemi á konur, en áhrif
hennar á karlmenn hafa lítið
verið rannsökuð. Ég hef verið að
ráðfæra mig bæði við sálfræð-
inga og lækna hér heima,“ segir
Sigríður. - sm/ sjá síðu 42
Íslenskur kynfræðingur:
Skrifar um
ófrjósemi karla
Kalt í veðri Í dag má búast við
austan 3-8 m/s en það verður
hvassara allra syðst og á Snæfells-
nesi. Snjókoma eða él NV- til og
á annesjum NA-lands en slydda
með köflum suðvestantil.
VEÐUR 4
3
-3 -4
-4
-2
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
27. nóvember 2009
SYNGUR MEÐ SYSTRUM
SÍNUM
Dísella Lárusdóttir og systurhalda jól tó
föstudagur
RÚSSLAND, AP Ekki verður framar
pláss fyrir fleiri auðuga ferða-
langa með rússnesku Soyuz-geim-
flaugunum til alþjóðlegu geim-
stöðvarinnar. Þetta segir fulltrúi
rússnesku geimferðastofnunar-
innar.
Skýringin er sú að fjölgað
hefur verið í áhöfn geimstöðvar-
innar úr þremur í sex.
Á næsta ári hætta Bandaríkja-
menn að senda geimskutlur sínar
til geimstöðvarinnar, þannig að
eina leiðin til að komast út verður
með rússnesku Soyuz-flaugunum.
- gb
Geimferðastofnun Rússlands:
Ekki fleiri túr-
ista í geiminn
NÆSTIR ÚT Í GEIM Bandarískur, rúss-
neskur og japanskur geimfari í þjálfun
rétt fyrir utan Moskvu. NORDICPHOTOS/AFP
DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR
Systurnar syngja
saman um jólin
FÖSTUDAGUR FYLGIR Í DAG
VIÐSKIPTI Sátt gæti skapast um
eignarhald fyrirtækja sem rík-
isbankarnir hafa tekið yfir með
því að skrá þau á markað og gefa
almenningi og fagfjárfestum kost
á að kaupa hlutabréf þeirra í stað
þess að setja þau í söluferli. Að
sama skapi kann skráning fyrir-
tækja að hleypa nýju lífi í laskað-
an hlutabréfamarkað.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir viðræður
hafa byrjað snemma á þessu ári og
hafi bankastjórarnir þrír lýst yfir
auknum áhuga á að markaðsvæða
fyrirtæki sem hafi komist í þeirra
hendur á haustdögum. „Aðstæð-
ur eru fyrir hendi og markaður-
inn er tilbúinn. Bankarnir verða
sjálfir að ákveða hvaða fyrirtæki
þeir telja að séu í þeim búningi að
vera markaðshæf og hvort þeir
telji hagstætt að fara inn á mark-
aðinn,“ segir Þórður.
Áætlanir eru um að fimmtán
fyrirtæki verði skráð á markað
í Kauphöllinni á næstu misser-
um. Þórður segir helming þeirra
kunna að koma úr ranni eignaum-
sýslufélaga bankanna. Á meðal
fyrirtækja sem bankarnir eiga að
öllu leyti eða hluta eru Húsasmiðj-
an, sextíu prósent í Teymi og fjöru-
tíu prósent í Icelandair Group. Þá
ræður Kaupþing yfir 1998, móður-
félagi Haga.
Viðmælendur Fréttablaðsins hjá
bönkunum segja að skoða verði
ýmsa þætti. Hugsanlega megi skrá
einhver fyrirtæki á næsta ári. Stór
rekstrarfélög með tryggan tekju-
grunn, svo sem í smásölu, flug-
rekstri og fjarskiptum, geti verið
góður kostur.
„Þetta getur verið mjög hag-
felld leið fyrir bankana til að losa
um eignahluti þeirra. Það hent-
ar ekki í öllum tilvikum en gæti
verið mjög æskileg leið, ef ekki sú
besta,“ segir Finnur Sveinbjörns-
son, bankastjóri Arion banka. - jab
Fyrirtæki bankanna
á hlutabréfamarkað
Viðræður hafa verið um skráningu fyrirtækja sem ríkisbankarnir hafa tekið yfir
á hlutabréfamarkað. Bankastjóri Arion segir þetta geta verið bestu leiðina.
42 ára hetja
FH-inga
Gamla kempan
Bjarki Sigurðs-
son tryggði FH
sigur á Fram í
N1-deild karla
í gærkvöldi.
ÍÞRÓTTIR 50
BÍLLINN SKREYTTUR Tíu manna hópur framhaldsskólanema lauk í gær við að mála bíl eins starfsmanna Listasafns Reykjavíkur
með heldur óhefðbundnum hætti. Verkið var hluti af námskeiði sem safnið stendur fyrir um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN