Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 30
2
MARÍA MAGNÚSDÓTTIR var að gefa út sína fyrstu plötu,
Not Your Housewife. Af því tilefni syngur hún ásamt hljómsveit
sinni, Mama’s Bag, á Café Cultura við Hverfisgötu í kvöld. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 22 og er aðgangur ókeypis.
Nemendur á fjórðu og fimmtu önn
húsgagnadeildar Tækniskólans
við Skólavörðuholt verða með hús-
gagnasýningu í dag frá 10-17 en
þar verða eftirmyndir af stólum
frægra hönnuða í aðalhlutverki.
Hönnuðirnir sem voru upp á sitt
besta um miðja síðustu öld eru
flestir danskir og allir fallnir
frá. „Þetta eru hönn-
uðir eins og Hans
J. Wegner og
Börge Mog-
ensen,“ segir
Magnús Ólafsson,
kennari við hús-
gagnadeild skól-
ans.
Spurður hvort
óhætt hafi verið að
ráðast í þetta verk-
efni segir Magnús
að tekið sé fram
hverjir séu hönn-
uðir stólanna auk
þess sem einungis
sé um að ræða eitt
kennslueintak. „Nem-
endurnir, sem eru tíu
talsins, hafa haft mikið
gagn og gaman af og er
gott fyrir þá að spreyta
sig á því að gera vandaða hluti sem
hafa reynst vel í gegnum tíðina.
Þeir gerðu allir verkáætlun, efn-
islista og teikningu og smíðuðu svo
stólana í raunstærð,“ segir Magn-
ús en bendir á að sumir nemend-
urnir hafi ákveðið að smíða eftir
eigin hönnun.
Magnús segir aðstöðuna í
Tækniskólanum til fyr-
irmyndar. „Við erum
með fullkomnasta
skólaverkstæði fyrir
húsgagnasmíði á Norð-
urlöndunum sem gerir
okkur kleift að ráðast
í verkefni af þessu
tagi. Við erum vel
tækjum búin og
getum beygt og
litað efniviðinn
að vild.“ Mark-
miðið með sýn-
ingunni sem opn-
aði á miðvikudag
er að sögn Magn-
úsar að minna á
húsgagnadeild
Tækniskólans og
þá grósku sem
þar ríkir.
vera@frettabladid.is
Fengist við fræga hönnun
Í Tækniskólanum stendur yfir sýning á eftirmyndum af stólum frægra hönnuða. Þeir eru eftir nemendur í
húsgagnadeild skólans sem hafa aðgang að einu fullkomnasta skólaverkstæði á Norðurlöndunum.
Hans J. Wegner
hannaði CH-20 Elbow
stólinn árið 1956.
Þessi endurgerð er
eftir Guðmundur
Sævar Jónsson.
Magnús segir nemendurna hafa gott af því að spreyta sig á því að gera vandaða hluti sem hafa reynst vel í gegnum tíðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bandaríkja-
maðurinn
Frank Lloyd
Wright (1867-
1958) hannaði
þennan stól
árið 1901 og
var langt á
undan sinni
samtíð. Hall-
gerður María
Pálsdóttir á
heiðurinn að
þessu eintaki.
Útsala á billiardborðum
og billiardvörum