Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 41
 • 5 „Við erum búin að fylla tvö nám- skeið,“ segir Sindri Már Heimisson, framkvæmdastjóri Hljóðfærahúss- ins-Tónabúðarinnar, um DJ-nám- skeið sem hefur göngu sína þar í næstu viku. Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í plötusnúðafaginu og verður farið ítarlega yfir öll mikilvægustu atriði DJ-tækninnar ásamt græjum og tilheyrandi búnaði. „Það komast ekki nema sex til átta manns að í hverjum hópi því þetta á að vera nokkuð „hands on“ námskeið. Við erum búnir að útbúa svið með græjum og góðu hljóðkerfi. Þátttakendur verða svo skikkaðir upp á svið og látnir spreyta sig, svo menn fara ekki út af þessu námskeiði án þess að hafa lært eitthvað,“ segir Sindri Már. Hvert námskeið er þrjú kvöld og tveir tímar í senn, en kennslan er í höndum Guðna Impulze. „Guðni er nýbúinn að klára hljóðupptöku- nám í Amsterdam, en hann hefur verið að plötusnúðast mikið hérna heima og gefa út eigið efni á vínyl. Hann er ungur og upprennandi og hefur lagt mikla vinnu í að undirbúa námskeiðið,“ segir Sindri. Aðspurður segir hann bæði stelpur og stráka hafa skráð sig á námskeiðið. „Það er meira komið af strákum, en við viljum endilega hvetja stelpurnar til að mæta líka og það eru nokkrar komnar. Fólk er svolítið að spyrja út í aldurinn, en það þarf ekki að hafa áhyggjur því þetta er stílað inn á byrjendur og þeir eru að koma úr öllum áttum. - ag DJ-NÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR BYRJENDUR SPREYTA SIG Sindri Már segir mikla eftirspurn hafa verið eftir DJ-námskeiði og býst við að halda fleiri námskeið á kom- andi ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNUppselt er á útgáfutónleika karlakórsins Fjallabræðra í Háskólabíói á sunnudaginn. Bræðrunum hefur sem sagt tekist að fylla 970 manna við- hafnarsal bíósins, sem hlýtur að teljast frábær árangur miðað við stuttan líftíma kórsins og þá staðreynd að hann hefur ekki eytt pening- um í dýrar auglýsingar. Einnig er merkilegt að stórtenórnum Kristjáni Jóhannssyni hefur ekki tekist að fylla salinn, hvorki fyrir tónleika sína á föstudag né laugardag, sem gerir árangur Fjallabræðra ennþá merkilegri. Fjallabræður eru samt ekki þeir einu sem fylla stóra salinn í Háskólabíói, því upp- selt er á tónleika Emilíönu Torrini í febrúar. Auka- tónleikum hefur þegar verið bætt við og þegar þetta er skrifað eru miðar eftir, en fólk ætti að hafa hraðar hendur til að ná miðum því Emilíana er gríðarlega vinsæl. Emilíana er stödd í Þýskalandi þessa dag- ana þar sem hún kemur fram á fernum útvarpstónleikum frammi fyrir áhorfendum og annað kvöld kemur hún fram í vinsælasta sjónvarpsþætti landsins. Ný plata frá hljómsveit- inni Kimono er loksins væntanleg í næstu viku. Platan hefur hlotið nafnið Easy Music for Diffic- ult People og er sú þriðja í röðinni. Fjögur ár eru liðin frá því að Kimono sendi frá sér hina frábæru Arctic Death Ship svo að aðdáendur mega kætast. Og meira um góða tónlist. Morðingjarnir hafa sent frá sér plötuna Flóttinn mikli. Morðingjarnir spila gríðarlega skemmtilega poppskotna pönktónlist og miðað við lögin sem hljómsveitin hefur sett á netið lofar platan virki- lega góðu. - afb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.