Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 68
27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af
Þriðja breiðskífa Morðingjanna,
Flóttinn mikli, kemur í búðir í
dag. Til að fagna þessum mikla
áfanga í sínu lífi ætla Morð-
ingjarnir að spila nokkur lög í
versluninni Havarí (Austurstræti
6) og mun útgefandi bjóða upp
á léttar veigar við það tækifæri.
Þessi gjörningur hefst kl. 17.
Að sjálfsögðu verður platan á
bjánalega góðu verði sem og
eldri plötur snillinganna. Einnig
verða þar frægir morðingja-
bolir til sölu.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Svörtuloft
Arnaldur Indriðason
Vigdís
Páll Valsson
Karlsvagninn
Kristín Marja Baldursdóttir
Brauð og kökubók Hagkaups
Jói Fel
Hjartsláttur
Sr. Hjálmar Jónsson
Loftkastalinn sem hrundi
Stieg Larsson
Umsátrið
Styrmir Gunnarsson
Snorri
Óskar Guðmundsson
Söknuður
Jón Ólafsson
Jólasveinarnir 13
Brian Pilkington
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
18.11.09 – 24.11.09
Ath. kl. 17 á morgun
Tónleikar til styrktar Mæðra-
styrksnefnd Hafnarfjarðar
fara fram í Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði á morgun kl.
17.00. Söngkonurnar sem
fram koma á þessum tónleik-
um eru meðal annarra Sigrún
„Diddú“ Hjálmtýsdóttir.
Gunnar Sverrisson ljós-
myndari á 23 ára feril að
baki og opnar í dag sína
fyrstu ljósmyndasýningu.
„Mig langaði til að sýna ljósmynd-
ir í heimilislegu umhverfi,“ segir
Gunnar Sverrisson ljósmyndari.
Í dag opnar hann ljósmyndasýn-
ingu í húsbúnaðarversluninni
Heimili og hugmyndir á Suð-
urlandsbraut 8. Sýningin er sú
fyrsta sem Gunnar heldur á löng-
um ferli, en hann hóf störf sem
íþróttaljósmyndari hjá Dagblað-
inu árið 1986, þá sextán ára gam-
all. Síðan þá hefur hann meðal
annars gefið út tímaritið Lifun,
Veggfóður og bækurnar Einbýl-
ishús, Heimilisbragur, Árstíðir og
Bústaðir ásamt eiginkonu sinni,
Höllu Báru Gestsdóttur.
„Þetta hefur meira og minna
verið mitt aðalstarf í 20 ár. Mér
fannst svolítið hégómagjarnt að
halda svona sýningu, en ég lét
undan pressu frá konunni,“ segir
Gunnar og brosir. „Mig langaði
að leyfa myndunum að njóta sín
í heimilislegu umhverfi því mér
finnst fólk ekki sjá þennan mögu-
lega nógu mikið á Íslandi, að nota
ljósmyndir sem veggskraut. Sjálf-
ur hef ég búið erlendis og þar sér
maður listaverk og ljósmyndir
svolítið í bland. Við höfum allt-
af verið mjög upptekin af mál-
verkum, enda eigum við marga
góða listmálara, en mig langar
til að sýna fallegar ljósmyndir og
hvetja fólk til að kaupa verk eftir
íslenska samtímaljósmyndara,“
útskýrir Gunnar.
Á sýningu hans má sjá lands-
lagsmyndir, abstrakt og „still
life“-myndir sem spanna nokk-
ur ár. „Ég hef mikinn áhuga á að
mynda arkitektúr einhverra hluta
vegna, og svo er það íslensk nátt-
úra,“ segir hann. Sýning Gunn-
ars verður opin í Heimili og
hugmyndum fram að jólum og
hugsanlega lengur, en áhugasam-
ir geta haft samband við Gunnar
í gegnum heimasíðu hans, gunn-
arimage.com. alma@frettabladid.is
Í heimilislegu umhverfi
LJÓSMYNDIR SEM VEGGSKRAUT Gunnar opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu á morgun og langar til að fólk sjái möguleikann í því
að nota ljósmyndir sem veggskraut í auknum mæli. MYND/GUNNAR SVERRISSON