Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 49
A Crack in Time er nýjasta viðbótin í
hina vinsælu Ratchet og Clank-seríu
sem hefur fylgt Playstation-tölvunum
síðastliðin átta ár. Það fyrsta sem vekur
athygli varðandi leikinn er hversu ótrú-
lega vel hann lítur út. Hér er ekki verið
að eltast við raunveruleikann heldur er
boðið upp á gagnvirka teiknimynd sem
liggur við að sé í sama gæðaflokki og
Pixar-myndirnar víðfrægu.
Þeir sem hafa áður prófað Ratchet
og Clank-leiki geta gengið að því vísu
að það nákvæmlega sama bíður þeirra
hér. Menn flakka á milli plánetna, safna
peningum og skjóta allt sem hreyfist
í tætlur með vopnum sem Amnesty
International myndi flokka sem glæp
gegn mannkyni. Helsti galli leiksins er
að ekki er verið að bjóða upp á margar
nýjungar og það nýja sem kynnt er til
sögunnar stendur varla undir vænting-
um. A Crack in Time er engu að síður
ágætur leikur sem mun falla vel í kramið
hjá aðdáendum fyrri leikja. - vij
POPPLEIKUR: RATCHET AND CLANK: A CRACK IN TIME
NIÐURSTAÐAGRAFÍK
5/5
SPILUN
4/5
HLJÓÐ
4/5
ENDING
3/5
EF PIXAR GERÐI MYND
UM STRÍÐSGLÆPI …
ÓTRÚLEGA
FLOTTUR
Ratchet and
Clank eltist ekki
við raunveru-
leikann.
Finndu þér málstað
sem annaðhvort
öllum þykir vænt um
eða allir eru rosalega
reiðir yfir. Stofnaðu
svo Facebook-
hóp og safnaðu að
minnsta kosti 2.000
manns í hópinn.
Reyndu svo að koma
af stað umræðu um
málefnið á tilfinn-
ingalegum nótum.
Gættu þess að síma-
númerið þitt fylgi
hópnum og vertu
undirbúinn þegar
fjölmiðlarnir hafa
samband. Þegar þeir
hringja og spyrja
út í málefnið skaltu
vera hress og tala
mikið – svara öllum
spurningum í löngu
máli. Passaðu samt að
verða ekki leiðinlegur.
Ef fjölmiðlar senda
ekki ljósmyndara er
gott að vera búinn
að láta taka af þér
flotta mynd sem þú
getur sent. Vertu
brosandi á myndinni.
Reyndu svo að fylgja
málefninu eftir og
vekja athygli á því
í fjölmiðlum. Njóttu
þess svo að komast
fram fyrir í biðröðum.
HVERNIG Á AÐ …
Áður en Facebook kom til sögunnar var
netleikurinn Bubbles mesti tímaþjófurinn
á skrifstofum heimsins. Ekkert skrítið
við það, enda er leikurinn gríðarlega
ávanabindandi. Þúsundir Íslendinga
festast daglega í Bubbles og einhverjir
hljóta að hafa leitað sér hjálpar vegna
Bubbles-fíknar – svo ávandabindandi
er leikurinn.
Grafíkin er ekki flókin, hún er í tvívídd
– enda óþarfi að gera einfaldan leik
flókinn með grafíkinni. Leikurinn er lit-
ríkur, sem gerir upplifunina af spiluninni
ánægjulegri og boltarnir hreyfast eðli-
lega. Þá er spilunin fullkomin, kúlurnar
fara í þá átt sem maður skýtur þeim og
hnökrarnir eru fáir – ef nokkrir.
Hljóðið er ekki flókið, en það er gott
að það er hægt að slökkva á því þar
sem það verður þreytandi til lengdar.
Það er ekki skrítið að Bubbles sé einn
vinsælasti netleikur heims. Við mælum
þó ekki með að fólk ánetjist, því það er
erfitt að hætta. - afb
VINSÆLASTI NETLEIKUR
HEIMS ER EKKI FLÓKINN
POPPLEIKUR: BUBBLES
VERÐA FRÆGUR Í 15 MÍNÚTUR
# # #
NIÐURSTAÐAGRAFÍK
2/5
SPILUN
5/5
HLJÓÐ
1/5
ENDING
5/5
EINFALT
Bubbles gerir
það sem þarf.