Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 86
54 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Íslenska hönnunarmerkið E-label
hefur verið til sölu í tískuverslun-
inni Topshop í London undanfarn-
ar vikur. Bandaríska söngkonan
Beyoncé hefur nú bæst í hóp við-
skiptavina merkisins.
„Yfirmenn í Topshop hringdu í
okkur og sögðu okkur frá því að
Beyoncé væri stödd í versluninni
og hefði keypt Heavy Metal legg-
ings frá E-label. Við urðum auð-
vitað mjög ánægðar enda mikill
heiður fyrir merkið. Þau sögðu
okkur að hún hefði mætt þang-
að með nokkra lífverði með sér
og halarófu af æstum aðdáend-
um. Verslunarstjórinn bauðst til
að loka versluninni fyrir hana en
hún afþakkaði það,“ segir Ásta
Kristjánsdóttir, sem rekur E-label
ásamt Hebu Hallgrímsdóttur, en
Ásgrímur Már Friðriksson hann-
ar flíkurnar.
Beyoncé er þó ekki eina
erlenda stjarnan sem hefur versl-
að við E-label því fyrrverandi
samstarfskona hennar, söng-
konan Michelle Williams, pant-
aði nýverið sex flíkur frá fyrir-
tækinu. „Við létum breyta þeim
aðeins fyrir hana og mér skilst
að hún ætli að klæðast fötunum á
tónleikum. Það væri mjög gaman
að rekast á myndir af þessum
konum í fötum frá okkur í nánustu
framtíð,“ segir Ásta og hlær.
Beyoncé Knowles hefur verið
ein vinsælasta söngkona heims
síðastliðinn áratug, en hún
sló fyrst í gegn árið 1997 með
stúlknasveitinni Destiny‘s Child,
en Michelle Williams var ein-
mitt með henni í þeirri hljóm-
sveit. Hún hefur ætíð vakið mikla
athygli fyrir smekklegan klæðn-
að og var meðal annars valin best
klædda kona ársins 2009 af les-
endum tímaritsins People. Auk
þess rekur hún eigið hönnun-
arfyrirtæki ásamt móður sinni
undir nafninu House of Deréon.
sara@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. dund, 6. samþykki, 8. þrí, 9. þrá,
11. hvort, 12. iðja, 14. geil, 16. nafn-
orð, 17. nögl, 18. annríki, 20. tveir
eins, 21. faðmur.
LÓÐRÉTT
1. útihús, 3. innan, 4. hálsklútur, 5.
tilvist, 7. frilla, 10. óvild, 13. segi upp,
15. lýð, 16. bjargbrún, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dútl, 6. já, 8. trí, 9. ósk,
11. ef, 12. starf, 14. kleif, 16. no, 17.
kló, 18. önn, 20. ll, 21. fang.
LÓÐRÉTT: 1. fjós, 3. út, 4. trefill, 5. líf,
7. ástkona, 10. kal, 13. rek, 15. fólk,
16. nöf, 19. nn.
„Nat King Cole, NOLO, Chet
Baker og Nóra. Svona 50/50
blanda af Ísland/útlönd-gam-
alt/nýtt. NOLO er mitt uppá-
hald þessa dagana og Nóra er
að gera það gott líka. Gömlu
karlarnir fylgja svo með fyrir
jarðtenginguna.“
Þorvaldur H. Gröndal, trommari og starfs-
maður Hins hússins.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 300.000 krónur á mánuði.
2 935.000 krónur fyrir dagvinnu.
3 Einar Skúlason.
Bækurnar Sökn-
uður – Ævisaga
Vilhjálms Vilhjálms-
sonar og Sjúddirarí
rei – Endurminningar
Gylfa Ægissonar
eru uppseldar
hjá útgefand-
anum Senu.
Byrjað er
að prenta
ný upplög
sem eru
væntanleg í verslanir í lok næstu
viku. Söknuði hefur nú þegar verið
dreift í þrjú þúsund eintökum og
Sjúddirarí rei í tvö þúsund eintök-
um en aðeins eru tvær vikur síðan
bækurnar komu út. Hin vandaða
kaffiborðsbók 100 bestu plötur
Íslandssögunnar fer einnig mjög
vel af stað í sölu. Hún var prentuð í
tvö þúsund eintökum og talið er að
um 1.600 hafi þegar selst.
Árlegur viðburður hjá RÚV er hin
svokallaða leynivinavika en þar
eignast starfsmenn Ríkissjónvarps-
ins sannkallaðan leynivin sem fær
það hlutverk að vera góður og
hlaða á skjólstæðing sinn gjöfum.
Eva María Jónsdóttir virðist hafa
dottið í lukkupottinn með sinn
leynivin því sá ku víst hafa laumað
til hennar svörtu
súkkulaði og
ávaxtasafa úr líf-
rænt ræktuðum
afurðum með
fögrum orð-
sendingum. Það
kemur síðan í
ljós í dag hver
þessi næmi
leynivinur
sjónvarpskon-
unnar er.
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég er bara búin að vera í
búðum frá því að ég opnaði síð-
una á mánudaginn,“ segir Elísa-
bet Gunnarsdóttir. Hún hefur nú
opnað vefsíðu þar sem hún gefur
Íslendingum möguleika á að versla
í öllum helstu tískuvöruverslun-
um í Svíþjóð og sendir fólki vör-
urnar heim. Þá getur fólk ýmist
verslað sjálft í netverslunum
búða sem senda ekki til Íslands í
gegnum heimilisfang Elísabetar,
eða beðið hana að kaupa tiltekn-
ar vörur og senda sér gegn vægu
þjónustugjaldi.
„Ég held að það hafi tíu þúsund
manns heimsótt síðuna fyrsta
sólarhringinn og ég er búin að fá
mjög margar pantanir. Ég er bara
nýflutt hingað út, en kærastinn
minn, Gunnar Steinn Jónsson, er
að spila handbolta með HK Drott.
Ég er búin að vinna hjá NTC í
mörg ár heima og verið mikið í
kringum föt og tísku frá því að ég
man eftir mér. Mér fannst þetta
henta mjög vel fyrir mig núna þar
sem ég er í fæðingarorlofi. Þetta
hentar líka vel núna í ástandinu
heima, því 2007 gátu allir skellt
sér í verslunarferðir, en nú er
það ekki lengur inni í myndinni,“
útskýrir Elísabet og segist mest
hafa verið í skókaupum fyrir við-
skiptavini síðustu daga.
„Ég tek 2.500 krónur fyrir að
kaupa flík eða vöru og svo bæt-
ast við 1.000 krónur við fyrir
hverja flík sem ég kaupi í viðbót
auk sendingarkostnaðar, en tekn-
ar eru 2.500 krónur ef verslað er
í netverslun og sent á mitt heimil-
isfang, óháð fjölda vara. Allir hafa
verið mjög sáttir við þetta og mér
finnst þetta rosalega gaman. Ég
hef ekki efni á að kaupa allt sem
mig langar í svo það er flott að
geta gert það fyrir aðra,“ bætir
hún við. Frekari upplýsingar má
sjá á síðu Elísabetar, elisabet-
gunnars.tk.
- ag
Hjálpar Íslendingum að versla
VERSLAR OG SENDIR Elísabet gefur
Íslendingum tækifæri á að versla í
búðum á borð við H&M, Gina Tricot,
Din sko, Acne og Monki og sendir þeim
vöruna heim.
„Bókin kemur út á mánudaginn,“ segir Lóa
Hjálmtýsdóttir um væntanlega myndasögu-
bók sína Alhæft um þjóðir. Bókin er gefin út af
bókaforlaginu Okei bæ-kur og er hluti af bóka-
flokki sem kallast Litlu sætu.
Lóa er söngkona í hljómsveitinni FM Belfast
og segir hugmyndina að Alhæft um þjóðir hafa
fæðst á einu tónleikaferðalagi hljómsveitarinn-
ar. „Einn í hópnum var alltaf að draga álykt-
anir eftir að við vorum búin að vera korter í
einhverri borg og út frá því spannst grín um
hvernig fólk alhæfir oft um þjóðir. Fólk á það
til að gera þetta alveg grimmt. Þetta er svolítið
eins og ég hafi dregið ályktun út frá einhverjum
einum atburði sem ég hef séð gerast,“ útskýrir
Lóa. „Þetta eru bara skrítnir brandarar og von-
andi eru einhverjir af þeim fyndnir fyrir aðra
en mig og mömmu,“ bætir hún við og brosir.
Lóa hefur í mörgu að snúast um þessar mund-
ir því auk útgáfu bókarinnar er tónleikaferða-
lag fram undan. „Við erum að fara til Þýska-
lands í dag og Frakklands þarnæstu helgi. Við
förum í þrjár styttri ferðir fyrir jól, en lengri
tónleikaferðalög hefjast eftir áramót. Þá mun
platan sem við gáfum út í fyrra koma út í Evr-
ópu og Bandaríkjunum,“ segir hún. - ag
Söngkona gefur út myndasögubók
ALHÆFIR UM ÞJÓÐIR Myndasögubók Lóu Hjálmtýs-
dóttur er góðlátlegt grín um hvernig fólk á það til að
alhæfa um þjóðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR: DESTINY‘S CHILD Í ÍSLENSKRI HÖNNUN
Beyoncé klæðist E-label
ÁNÆGÐAR
Ásta Kristjánsdóttir segir fréttirnar af
innkaupum Beyoncé mjög ánægjulegar
en söngkonan hefur dvalið í Lond-
on ásamt eiginmanni sínum, Jay-Z.
Beyoncé þykir hafa einstaklega góðan
fatasmekk og var valin best klædda
kona ársins 2009 af lesendum People.
Leggingsbuxurnar, Heavy Metal, sem
Beyoncé keypti eru sérstaklega vinsælar
í Bretlandi um þessar mundir.
TILBOÐ Í VEITINGASAL
Súpa fi skur og kaffi 990
XL Humar
Túnfi skur
Skelfl ettur humar
Klaustursbleikja
Þorskhnakkar