Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 74
42 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Mynddiskur ★★★
Atvinnumennirnir okkar
Leikstjóri: Hannes Þór Halldórsson
Áhugaverðir Atvinnumenn
Sjónvarpsþættirnir Atvinnumennirnir okkar
sem voru sýndir á Stöð 2 Sport fyrr á árinu
eru komnir á mynddisk. Í þáttunum skyggnist
Auðunn Blöndal á bak við tjöldin hjá sex af
okkar þekktustu atvinnumönnum í útlöndum.
Hann spyr þá út í lífið og tilveruna og talar
við æfingafélaga þeirra og maka til að fá betri
mynd af þeim sem persónum. Í bland við
samtölin eru þættirnir kryddaðir með Innlits
útlits-pælingum þar sem stjörnurnar leiða
Audda um glæsileg híbýli sín og sýna honum
rándýr leikföng sín. Kannski ekki eitthvað sem
allir hafa áhuga á að sjá í miðri kreppu.
Auddi stendur sig ágætlega sem spyrill. Er
hress og skemmtilegur þótt stundum hefði
hann mátt kafa dýpra ofan í persónuleika
atvinnumannanna. Hvað drífur þá áfram? Hvaðan kemur íþróttaáhuginn?
Trúa þeir á æðri mátt? Gaman hefði líka verið að fá viðbrögð frá foreldrum
þeirra en líklega var bara ekki pláss fyrir þetta allt saman.
Þátturinn um Ólaf Stefánsson stelur senunni sem sá fyndnasti. Allir eru
þættirnir samt áhugaverðir og veita manni góða innsýn inn í líf þessara
miklu afreksmanna. Þar spilar tónlistarvalið og myndatakan einnig stóra
rullu. Aukaefnið er síðan af ýmsum toga og nokkuð misjafnt eins og gengur
og gerist. Neyðarlegt er að sjá hverja fótboltastjörnuna á fætur annarri neita
Audda um viðtal og þátturinn um Pétur Jóhann var ekkert sérlega fyndinn.
Annars eru Atvinnumennirnir okkar fyrst og fremst vandaðir þættir sem
flestir íþróttaáhugamenn ættu að hafa gaman af. Freyr Bjarnason
Niðurstaða: Vandaðir þættir sem flestir íþróttaáhugamenn ættu að hafa
gaman af.
Sigríður Dögg Arnardóttir
hefur stundað meistaranám
í kynfræði við Curtin-há-
skólann í Perth í Ástralíu
undanfarið ár. Samhliða
náminu hefur hún haldið úti
bloggsíðu um námsefnið þar
sem hún fjallar um kynlíf
og tengd mál á hispurslaus-
an hátt.
Sigríður Dögg flutti heim fyrir
stuttu og mun dvelja hér á meðan
hún skrifar lokaritgerð sína, auk
þess sem hún tekur meðal annars
að sér kynfræðslu í skólum. Meist-
araritgerð Sigríðar Daggar mun
fjalla um áhrif ófrjósemi á íslenska
karlmenn, sem hefur að hennar
sögn lítið verið fjallað um. „Flestar
rannsóknir einblína á áhrif ófrjó-
semi á konur, en áhrif þess á karl-
menn hafa lítið verið rannsökuð. Ég
hef verið að ráðfæra mig bæði við
sálfræðinga og lækna hér heima
auk þess sem ég er með leiðbein-
anda úti í skólanum í Perth.“
Samhliða ritgerðarskrifum mun
hún taka að sér að halda fyrir-
lestra um kynlíf og tengd málefni
og nýverið hélt hún slíkan fyrirlest-
ur fyrir stúlkur í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. „Mér fannst þetta
ótrúlega gaman og það er magn-
að að sjá hversu ólíka sýn þessar
stúlkur höfðu á kynlíf. Þær hugs-
uðu meira um hvernig ætti að full-
nægja karlmanni en hvernig þær
ættu að fullnægja sjálfri sér. Við
spjölluðum einnig mikið um saflát
kvenna og G-blettinn, en það hefur
verið mikið í umræðunni upp á
síðkastið,“ segir Sigríður Dögg og
bætir við að hún hafi orðið vör við
mikinn áhuga fólks á efnum tengd-
um kynlífi.
Hún segist vera bókuð til að
koma fram á karlakvöldi á næst-
unni auk þess sem hún mun vera
með innlegg í sjónvarpsþætti. „Það
er augljóst að það vantar ekki áhug-
ann hjá landanum og það er mjög
fjölbreyttur hópur fólks sem deil-
ir þessum áhuga,“ segir Sigríður
Dögg að lokum.
Áhugasamir geta nálgast Sig-
ríði Dögg í gegnum vefsíðu hennar
www.siggadogg.is.
sara@frettabladid.is
Skoðar ófrjósemi karla
KOMIN HEIM Sigríður Dögg Arnardóttir stundaði meistaranám í kynfræði í Perth.
Hún segir ekki algilt að konur séu með G-blett og að lítið hafi verið fjallað um áhrif
ófrjósemi á íslenska karlmenn.