Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 16
16 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Allt það besta „ÍNN er sjónvarpsstöð, sem Ingvi Hrafn Jónsson stofnaði og heldur úti. Hún er einstæður og merkilegur fjölmiðill.“ BJÖRN BJARNASON, SPJALLÞÁTTA- STJÓRNANDI Á ÍNN bjorn.is 25. nóvember Að brjóta heilann „Er Ólafur Ragnar Grímsson forseti þjóðarinnar eða tilræðismaður gegn þjóðar- hagsmunum?“ PÁLL VILHJÁLMSSON, FYRRVERANDI BLAÐAMAÐUR mbl.is 26. nóvember SÖNGVASEIÐUR: VIÐ SLYSI LÁ VIÐ TÖKUR ■ Hér var Söngvaseiður nýverið sýndur í leikhúsi við góðar undir- tektir. Margir þekkja líka kvikmyndina, Sound of Music, frá árinu 1965 með Julie Andrews í einu aðalhlutverka. Verkið er töluvert eldra, var uppi á sviði á Broadway í nóvember árið 1959 og því á sýningin 50 ára afmæli. Færri vita hins vegar að við slysi lá við tökur á myndinni, en Julie Andrews hefur lýst því sjálf hvernig í opnunarsenu myndarinnar lá við að hún dytti niður fjallshlíð vegna blástursins frá hreyflum þyrlunnar með myndavélina. „Ég er að framleiða Jórunnarhjörtu á fullu fyrir Epal en nú fylgja sitkagreni-fræ með þeim sem geta orðið eitt eða fleiri sannköll- uð jólatré,“ segir athafnakonan Andrea Róbertsdóttir. Hún segir Jórunnarhjörtun hafa verið gefin bæði í gleði og sorg en nú sé hægt að sá fræjunum og hlúa að lífinu sem úr moldinni sprettur. Andrea hóf að þróa hjörtun á milli mjalta í fæðingarorlofi sínu í fyrra. Þau hafa verið til sölu víða um land um nokkurra mánaða skeið. „Síðan er ég að fara að afhenda peninginn sem ég safnaði um daginn á Alþjóðlegri athafna- viku. Þá seldi ég átappaða kvenorku í tóbakshornum eins og það væri enginn morgundagur. Allur ágóðinn rann til iðju- þjálfunar heimilismanna á Grund og Hrafnistu. Forréttindapíur eins og ég eiga einmitt að láta gott af sér leiða, vera með hressandi framlag til plánetunnar,“ segir Andrea. Klifun er þekkt hugtak í stærð- fræði og stílbragð í bókmennta- fræði. Í málinu okkar er klifun sá verknaður að þrá stagast á ein- hverju, það er að tala mjög oft um eitthvað, og er hún yfirleitt talin heldur hvimleið nema afar smekklega sé farið með. Eftirfarandi málsgrein er ýkt dæmi um klifun: „Landsliðs- þjálfari landsliðsins undirbjó liðið undir leikinn og aðlagaði leik stílinn að andstæðingnum.“ Hér er landsliðið báðum megin við þjálfarann, sem býr það ekki aðeins undir leikinn og lagar leikstílinn að andstæðingnum heldur undirbýr undir og aðlagar að. Vissulega er fágætt að rekast á þrjár klifanir af þessu tagi í sömu málsgrein en hver þeirra um sig er hins vegar því miður tiltölulega algeng bæði í talmáli og ritmáli. Æskilegt er að forðast slíka endurtekningu orðhluta eins og kostur er, því annars verður málið yfirleitt þvælt og ljótt. Orðasambandið „öll alþýða manna“ kemur lesendum ef til vill ekki jafn spánskt fyrir sjónir og dæmið hér að ofan en er jafn- vel klifunarkenndara ef eitthvað er. Allir, menn og þjóðin eru þrjú orð sem hvert um sig getur oftast komið í stað orðasambandsins alls. Í staðinn verður þjóðin að allri þjóðinni (eða alþýðu), sem verður að alþýðu manna, sem verður að lokum að allri alþýðu manna. Þar sem eitt orð hefði dugað eru þannig komnir þrír orðhlutar, einn þeirra tvítekinn. Þetta er því ekki aðeins klifun, heldur jafnvel síklifun með endurtekningu. - mt Tungutak Síklifun með endurtekningu HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ANDREA RÓBERTSDÓTTIR Framleiðir Jórunnarhjörtu á færibandi VESTURLANDSVEGUR VAGNHÖFÐI VÉLALAND HÚSGAGNA- HÖLLIN TANGARHÖFÐI BÍlDSHÖFÐI H Ö FÐ A B A K K I REYKJAVÍK Vélaland - VAGNHÖFÐA 21 Sími 515 7170 Hjálpaðu umhverfinu með Blaðberanum Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Á sunnudag verða jólaljós- in á Óslóartrénu tendruð á Austurvelli. Fyrir marga markar það upphafið að jólaundirbúningnum að fylgjast með þegar ljósin eru tendruð undir þýðri rödd Gerðar G. Bjarklind. Það eru tæplega 60 ár liðin síðan sú hefð komst á að Norðmenn færðu Íslendingum veglegt jólatré til að skreyta miðborg Reykjavík- ur á aðventu og vitaskuld verður sá siður hafður í heiðri ár. Tréð var höggvið skammt fyrir utan Ósló hinn 16. nóvember við hátíðlega athöfn. Meðal viðstaddra voru Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir, sendiherra Íslands í Nor- egi, og Fabian Stang, borgarstjóri í Ósló. Tréð kom til Íslands í vikunni og var reist á Austurvelli í gær. Ekki var laust við að Skúli Gauta- son, viðburðastjóri hjá Höfuðborg- arstofu, væri kominn í jólaskap þegar hann fylgdist með fram- kvæmdunum í gær. „Þessu fylgir alltaf mikil stemning,“ segir hann. „Tréð setur svo sterkan svip á mið- bæinn, sérstaklega eftir að ljósin hafa verið tendruð.“ Venju samkvæmt verður fjöl- breytt dagskrá á Austurvelli á sunnudag þegar ljósin verða tendr- uð. Lúðrasveit Reykjavíkur ríður á vaðið klukkan 15.30 og leikur jólalög undir stjórn Lárusar H. Grímssonar. Klukkan 16 hefst svo sjálf athöfnin með því að Dómkór- inn syngur nokkur lög undir stjórn Marteins Hungers Friðrikssonar. Að loknu ávarpi norska sendi- herrans, Margit F. Tveiten, tekur Hanna Birna Kristjánsdóttir, formlega við jólatrénu af Aud Kvalbein, varaborgarstjóra Ósló- ar. Það kemur svo í hlut átta ára gamallar norsk-íslenskrar stúlku, Hrafnhildar Sifjar Ingólfsdóttir, að tendra jólaljósin á trénu. Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra hefur undanfarin ár látið gera jólaóróa til fjáröflunar starf- semi sinni. Ketkrókur jólasveinn er viðfangsefnið í ár og Hrafnkell Birgisson hefur hannað óróann, en Gerður Kristný flytur frumsamið ljóð um Ketkrók. Þá koma Bangsi litli úr Dýr- unum í Hálsaskógi og Ljónið úr Galdrakarlinum í Oz í heimsókn og fá viðstadda til að hugsa um hvað það er sem skiptir máli, áður en hressir jólasveinar heilsa upp á krakkana á Austurvelli. Sem fyrr verður Gerður G. Bjarklind kynnir og dagskráin er öll túlkuð á tákn- mál. Frá Ósló til Austurvallar Skúli og Oslóartréð Tréð var sett upp á Austurvelli í gær. Viðburðastjóri Höfuð- borgarstofu er þegar kominn í jólaskap. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR OSLÓARTRÉÐ Á HEIMAVELLI Tréð var höggvið í Noregi 16. nóvember og flutt til Íslands. Ljósin á því verða tendruð á sunnudag. MYND/ANB, VIDAR RUUD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.