Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 78
46 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin, segir að Rúnar Kárason hafi staðið sig vel það sem af er fyrsta tímabili hans í Þýskalandi. Dagur er einnig á sínu fyrsta ári hjá félaginu en hann er einnig þjálfari austurríska landsliðsins. Eins og fram kom í Fréttablaðinu hefur honum verið boðið að halda áfram því starfi eftir að EM í handbolta lýkur þar í landi í lok janúar næstkomandi. Dagur segir að það hafi því verið nóg að gera hjá sér en að vel gangi að sameina þessi tvö störf. „Füchse Berlin er á því róli sem reiknað var með. Við erum núna í tíunda sæti en liðið endaði í því sæti á síðasta tímabili. Við erum nokkurn veginn á pari,“ segir Dagur. „Við höfum mætt sterkustu liðum deildarinnar á heima- velli, sem hefur verið nokkuð strembið, en við erum búnir að spila vel á útivelli og vinna nokkra góða útisigra.“ Rúnar hefur fengið þó nokkuð að spila með liðinu og segir Dagur að hann hafi staðist þær væntingar sem gerðar hafi verið til hans. „Hann ber þess merki að vera ungur og óreyndur í svona sterkri deild og frammistaða hans verið nokkuð ójöfn. Hann hefur átt þrælfína innkomu í sumum leikjum en stundum ekki fundið taktinn. En hann á eftir að vaxa enda duglegur að æfa og er áhugasamur,“ segir Dagur. Rúnar er sem stendur annar kostur í stöðu skyttunnar hægra megin hjá Degi en hollenski landsliðsmaðurinn Mark Bult hefur verið byrjunarliðsmaður til þessa. „Hann hefur verið lengi í deildinni og er ágætlega sterkur varnarmaður – hann græðir á því. En þegar það kemur hjá Rúnari mun hann veita Bult verðuga samkeppni. Það er ekki nokkur spurning um að Rúnar sé á réttri leið.“ Dagur segir að heilt yfir sé hann nokkuð sáttur við gengi liðsins til þessa. „Markahæsti maður liðsins á síðustu leiktíð, Pólverjinn Michal Kubisztal, missti af upphafi tímabilsins vegna brjós- kloss og hefur enn ekki náð sér almennilega á strik. Það hefur verið erfitt að fylla hans skarð en þetta hefur þó gengið ágætlega heilt yfir.“ DAGUR SIGURÐSSON: ENGIN SPURNING UM AÐ RÚNAR KÁRASON ER Á RÉTTRI LEIÐ Rúnar hefur staðið sig vel hjá Füchse Berlin > Fundaði með stjóra Reading Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Reading, fundaði í gær með Gunnari Heiðari Þorvaldssyni þar sem fram kom að hann vill fá Eyjamanninn til félagsins. Gunn- ar Heiðar er þó samningsbundinn Esbjerg til loka tímabilsins 2011 og þurfa félögin því að komast að samkomulagi sín á milli. „Það kemur til greina að ég verði lánaður en þetta er nú orðið að máli umboðsmannsins míns,“ sagði Gunnar Heiðar. „En ég var afar ánægður hjá Reading og þetta er fótbolti sem hentar mér mjög vel.“ FÓTBOLTI Ívar Ingimarsson hafn- aði í fyrradag nýju samningstil- boði frá enska B-deildarliðinu Reading. Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður hans. Samkvæmt Ólafi hafa þó nokk- ur félög á Englandi áhuga á að fá Ívar í sínar raðir en hann hefur verið lykilmaður hjá Reading síðan 2003. Ívar er nú á sínu síðasta samn- ingsári hjá félaginu en liðið hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni í ár og er nú rétt fyrir ofan falls- væðið. Alls eru þrír Íslendingar á mála hjá Reading og einn til viðbótar – Gunnar Heiðar Þorvaldsson – var nýverið til reynslu hjá félaginu. Gylfi Þór Sigurðsson sagði í viðtali við Fréttablaðið að hann myndi sennilega skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið nú í vikunni en Brynjar Björn Gunnarsson samdi við félagið í sumar til eins árs. „Mín mál hafa í sjálfu sér ekkert breyst og verða samn- ingsmálin ekkert skoðuð að nýju fyrr en með vorinu,“ sagði Brynjar Björn við Fréttablað- ið. Hann segist þó ekki sátt- ur við hversu lítið hann hafi fengið að spila að undan- förnu. „Nei, vissulega ekki, en þetta getur komið fyrir. Liðið hefur þó verið að spila ágætlega og maður getur ekki kvartað mikið á meðan svo er. En auðvitað vill maður fá að spila meira.“ - esá Ívar Ingimarsson mögulega á leið til annars félags í Englandi: Ívar hafnaði tilboði Reading ÍVAR INGIMARSSON Hefur verið einn af lykil- mönnum Reading undan- farin ár en gæti nú verið á leið frá félaginu. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Veig- ar Páll Gunnarsson bindur vonir við að tæplega árs löng þrauta- ganga hjá franska félaginu Nancy sé senn á enda en útlit er fyrir að hann snúi aftur á fornar slóðir til norska félagsins Stabæk. Viðræð- ur á milli Nancy og Stabæk standa nú yfir og Veigar Páll á jafnvel von á því að gengið verði frá málum á allra næstu dögum. „Þetta er ekki hundrað prósent gengið í gegn enn þá en viðræð- urnar eru langt komnar og ég bind vonir við að gengið verði frá þessu um helgina eða strax eftir helgi,“ segir Veigar Páll. Talið er að Nancy hafi þurft að punga út tæpum fimmtán milljón- um norskra króna fyrir Veigar Pál og hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið en hefur síðan lítið fengið að spreyta sig. Ekki hefur verið staðfest hvort Stabæk sé að borga mikið fyrir að fá Veigar Pál aftur í sínar raðir en ljóst þykir að Nancy leggur áherslu á að losna við Veigar Pál af launaskrá hjá sér og hann hefur fengið leyfi til að hætta að æfa með franska félaginu til að ganga frá sínum málum. Leiðinlegt að fá ekki að vinna vinnuna sína „Stabæk sýndi áhuga á að fá mig aftur og Nancy tók vel í það þar sem félagið hefur greinilega ekki not fyrir mig og ég er ekki einu sinni að æfa með liðinu núna. Nancy er því í raun og veru bara að reyna að losna við mig af launa- skrá hjá sér. Ég veit ekkert hvort Stabæk sé tilbúið að borga ein- hvern pening fyrir mig en ef svo er þá er það ekkert í líkingu við það sem Nancy greiddi fyrir mig fyrir tæpu ári. Það er annars ljóst eins og staðan er núna að Nancy er bara að henda peningum með því að borga mér laun og nota mig ekki einu sinni. Ég sjálfur er vissulega búinn að koma vel út úr þessu fjárhags- lega séð en ekki fótboltalega og ég hugsa að í heildina sé ég búinn að spila kannski svona tíu leiki á þessu tæpa ári. Þá er ég að tala um leiki í öllum keppnum með bæði aðal- og varaliði félagsins. Fótboltinn er náttúrlega vinn- an mín og það er leiðinlegt ef maður fær ekki að vinna vinnuna sína. Ég var alveg búinn að sjá að það skipti engu máli hvort ég hefði verið bestur á æfingum með félaginu í tvo mánuði samfleytt; ég fengi hvort sem er ekki tæki- færi til þess að spila,“ segir Veig- ar Páll. Þarf að finna neistann aftur „Það er því nauðsynlegt að ég komist eitthvert annað og það er náttúrlega frábært að Stabæk vilji fá mig aftur því þar þekki ég allt og alla og veit nákvæmlega hvað ég er að fara út í. Ég þarf að komast á stað þar sem ég get byggt upp sjálfstraust- ið og fundið neistann og fótbolta- gleðina aftur og Stabæk er auðvit- að tilvalinn staður til þess,“ segir Veigar Páll að lokum. Hann lék í fimm ár með Stabæk og kvaddi liðið með meistaratitli í fyrra en það var fyrsti meistara- titill í sögu félagsins. omar@frettabladid.is Vongóður um að þetta gangi Veigar Páll Gunnarsson er mjög líklega að snúa aft- ur til liðs við Stabæk eftir dapra ársdvöl hjá Nancy. VEIGAR PÁLL Sést hér á æfingu með franska félaginu Nancy. NORDIC PHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.