Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 72
40 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Þetta er eiginlega blanda af sögunni
okkar sem við erum að selja þarna
svo við getum byrjað upp á nýtt,“
segir Steinunn Camilla Sigurðardótt-
ir í Nylon. Stúlknasveitin ætlar selja
öll fötin sem hún hefur sankað að sér í
gegnum árin í Kolaportinu á laugardag-
inn frá klukkan 11 til 17. Allur ágóðinn
rennur í sjóð vegna ferðalags þeirra til
Los Angeles í janúar. Þær gerðu nýver-
ið útgáfusamning við fyrirtækið Holly-
wood Records, sem hefur einnig Miley
Cyrus og Jonas Brothers á sínum snær-
um, og þurfa því að flytja til stórborg-
arinnar.
Meðal annars verða til sölu sögufræg
föt sem stúlkurnar klæddust á Brit-
verðlaunahátíðinni í London árið 2006.
Grár jakki sem Alma Guðmundsdótt-
ir klæddist þar verður til sölu ásamt
pilsinu sem Steinunn var í. „Joss Stone
er sko búin að knúsa þennan jakka,“
segir Steinunn um gráa jakkann og
hlær. „Þetta var mjög fyndið því Paris
Hilton var við hliðina á okkur og Kanye
West líka. Maður hugsaði bara hvað
við vorum litlar eitthvað.“ Einnig ætlar
Steinunn að selja kjól sem hún klædd-
ist í Losing a Friend-myndbandinu og
skyrtu sem hún notaði í Closer-mynd-
bandinu.
Hún er að sjálfsögðu mjög spennt
fyrir Bandaríkjaförinni. „Þetta er svo
fáránlega spennandi að það er eig-
inlega bara rugl. Maður er búinn að
vinna að þessu svo lengi. Þetta er sætur
sigur en samt er þetta bara byrjunin.
Þetta er bara fyrsta skrefið inn í brans-
ann og svo þurfum við að halda okkur
þar.“ - fb
Nylon selur Brit-fötin í Kolaportinu
HJÁ FÖTUNUM Steinunn Camilla innan um
fötin sem Nylon ætlar að selja í Kolaportinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
> HVERFIÐ FAGNAR
Hótelerfinginn Paris Hilton og kær-
asti hennar, Doug Reinhardt, hafa
ákveðið að flytja, nágrönnum
sínum til mikillar gleði. Ná-
grannarnir hafa ítrekað kvart-
að til lögreglunnar undan há-
vaða sem berst frá heimili
Hilton og eru því líklega fegn-
ir að fá nú loksins frið og ró.
Tónlistar- og samfélagssíðan
Gogoyoko.com hefur hafið sam-
starf við fimm alþjóðleg góð-
gerðarsamtök. Þar á meðal eru
samtökin Witn-
ess sem tón-
listarmaðurinn
Peter Gabrel
stofnaði árið
1992. Þau nota
myndbands-
upptökur og
möguleika á
netinu til að
opna augu
heimsins fyrir
mannréttinda-
brotum. Hin góðgerðarsamtök-
in eru Refugees United, Læknar
án landamæra í Sviss, Mænu-
skaðastofnun Íslands og Unicef
á Íslandi.
Tónlistarmenn á Gogoyoko
og útgáfufyrirtæki geta valið
að láta tíu prósent eða meira af
ágóðanum af tónlistarsölu renna
til samtakanna, sem fá líka tíu
prósent af auglýsingatekjum
Gogoyoko árlega.
Í samstarf
með Gabriel
PETER GABRIEL
Plötur Kimono og Bloodgroup,
Easy Music for Difficult Peop-
le og Dry Land, eru með seinni
skipunum í jólaplötuflóðinu í
ár. Bloodgroup-platan kemur út
annan desember en Kimono plat-
an fjórða. Nú er þó strax hægt að
hlusta á báðar plöturnar á Gog-
oyoko. Sveitirnar tvær ætla að
halda sameiginlega tónleika á
Sódómu í kvöld. Prins Póló, sem
er sólóverkefni Svavars Pétur
Eysteinssonar úr Skakkamanage,
spilar líka og ætlar að hefja tón-
leikana kl. 23.45. Kimono-menn
stíga á svið klukkan hálf eitt í
nótt og Bloodgroup kveikir svo í
kofanum frá og með kl. 1.30.
Seinni skipin
á Sódómu
Rökkur Reykjavík er nýtt
framleiðslufyrirtæki sem
sérhæfir sig í tónlistar- og
tískuviðburðum. Markmið
þess er að skapa betri vett-
vang fyrir íslenska hönnuði.
Rökkur Reykjavík er nýtt fram-
leiðslufyrirtæki sem mun sérhæfa
sig í tísku- og tónlistarviðburðum.
Að fyrirtækinu standa fatahönnuð-
urinn Bóas Kristjánsson og plötu-
snúðurinn Nuno da Palma, auk þess
sem Arna Sigrún Haraldsdóttir
fatahönnuður og grafíski hönnuð-
urinn Gunnar Þorvalds koma einn-
ig að verkefninu.
„Hugmyndin varð til á tískuvik-
unni í París í sumar, þar sem ég
var að sýna hönnun mína og Nuno
var að spila. Okkur langaði til að
skapa sambærilegan vettvang
fyrir íslenska tísku og hönnun og
ætlum að nota tónlistina sem eins
konar aðdráttarafl til að laða fólk
að,“ segir Bóas um tilurð Rökk-
urs. „Það er kannski hægt að líta
á þetta sem hjónaband milli hönn-
unar og tónlistar,“ bætir Nuno við.
Eitt af markmiðum Rökkurs er
að standa að ýmsum tískutengd-
um viðburðum auk þess sem hug-
myndir eru um að koma á laggirn-
ar árlegri tískuviku þar sem tónlist
og tísku verður blandað saman og
skapa þannig einstakan viðburð
sem dregur að fjölda gesta.
Bóas og Nuno segja engan sér-
hæfðan hönnunarmiðil vera hér á
landi og því vanti vettvang fyrir
hönnuði til að koma sér á framfæri.
„Íslensk tónlist hefur fengið að
vaxa og dafna síðastliðinn áratug
og okkur finnst hönnun eiga einn-
ig að fá tækifæri til að þroskast og
vaxa. Hér er mikið af hæfileikarík-
um hönnuðum og hugmyndin er að
reyna að skapa samstarf þar á milli
og byggja upp þennan iðnað með
sameiginlegu átaki,“ segir Bóas.
Spurður hvort erfitt sé að laða
erlenda aðila hingað til lands
segir Nuno svo ekki vera. „Fólk er
almennt mjög forvitið um Ísland. Í
gegnum tíðina hef ég verið mikið
í sambandi við erlenda tónlistar-
menn og þeir hafa jafnvel verið
til í að lækka launakröfur sínar til
þess að geta tekið að sér verkefni
hér. Þannig það ætti ekki að vera
vandamál að lokka fólk hingað.“
Sérstakt kynningarteiti verð-
ur á skemmtistaðnum Austur 12.
desember ásamt ljósmyndasýningu
sem ber yfirskriftina Fashion Ima-
gery: Native Eye. Þar verða sýnd
verk eftir íslenska tískuljósmynd-
ara sem hafa verið að gera það gott
á erlendri grundu.
sara@frettabladid.is
Rökkur lætur á sér kræla
RÖKKUR Nuno da Palma og Bóas Kristjánsson hafa sett á laggirnar framleiðslufyrir-
tækið Rökkur Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
20% afsláttur af Guinot
snyrtivörum í dag og á
morgun.* Frábær jólatilboð
fyrir dömur og herra.
Snyrtifræðingar okkar veita
þér faglega ráðgjöf.
Snyrtistofan Gyðjan
Skipholti 50d, s. 553-5044
* Gildir ekki af
öðrum tilboðum.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
9
2
1
3
8
Höfðabakka 9 & Skipholti 19 Sími 577-1300
Í tilefni af
„Thanksgiving“
Í tilefni af þakkargjörðarhátíðinni,
Thanksgiving, sem haldin er hátíðleg
í Ameríku, bjóðum við upp á ekta,
klassíska kalkúnaveislu sem slær allt út.
Grilluð kalkúnabringa
kjöt- og brauðfylling,
maís, eplasalat,
trönuberjasulta og „gravy“.
Verð 2.990 kr.