Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 18
18 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Nokkuð hefur gustað um ríkisstjórnina og stundum hefur legið við að upp úr hafi slitnað. Það er þó mál manna að fyrst stjórnin stóð Icesave-brælu sum- arsins af sér sé hún komin í var. Það sé vissulega ekki nema tímabundið, sjálf Evr- ópa bíður og áherslumunur í umhverfis- og orkumálum. Trauðla verður það þó jafn- slæm ágjöf og í sumar. Ríkisstjórnin stóð tæpt í sumar. Raunar svo tæpt að ýmsir innan- búðarmenn litu á það sem tíma- spursmál hvenær hún spryngi. Og þó að vissulega hafi verið sagt frá deilunum í fréttum kemur kannski ekki í ljós fyrr en í end- urminningabókum framtíðarinn- ar hve tæpt hún stóð í raun. Fyrst og fremst var það deilan um Icesave sem olli titringnum. Á tímabili leit út fyrir að ríkis- stjórnin, sem hefur traustan þing- meirihluta, hefði ekki þingstyrk til að koma eigin frumvarpi um úrlausn þess máls í gegnum þing- ið. Ögmundur Jónasson leiddi and- stöðuna og hafði hóp þingmanna Vinstri grænna á bak við sig. Eftir langar umræður var frumvarpið samþykkt og greiddu allir stjórn- arþingmenn atkvæði með því. Aftur skaut málið síðan upp koll- inum í haust sem lauk með afsögn Ögmundar. Með því telja margir að hann hafi í raun bjargað ríkis- stjórninni. Evrópa bíður Þó að Icesave hafi verið stóra málið í sumar má ekki gleyma því að Evrópumálin skóku stjórn- ina einnig. Í stjórnarsáttmála var kveðið á um að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu. Flokk- unum væri síðan frjálst að tala hvorum fyrir sinni skoðun þegar kæmi að afstöðu til inngöngu. Það var Vinstri grænum ekki auðveld ákvörðun. Steingrímur J. Sigfús- son hefur til að mynda sagt hana mun erfiðari en að samþykkja Icesave. Ákveðið var að samn- ingur yrði lagður fyrir þjóðina og allir stjórnarliðar væru óbundnir þegar að því kæmi. Það kom hins vegar sumum Samfylkingarmönnum á óvart að ráðherra í ríkisstjórninni, Jón Bjarnason, skyldi leggjast gegn aðildarumsókninni sjálfri og töldu hann þar með brjóta í bága við stjórnarsáttmálann. Þrátt fyrir að afstaða Jóns gagnvart Evrópu- sambandinu hafi verið öllum ljós, töldu menn hann hafa skuldbind- ið sig, með setu á ráðherrastóli, til að styðja umsókn. Það mál var útkljáð en öllum er ljóst að Evrópa bíður. Ólík afstaða flokkanna til sambandsins mun koma upp og getur valdið usla. Nýjasta dæmið var kjör þing- manns Vinstri grænna, Ásmundar Einars Daðasonar, sem formanns Heimssýnar, samtaka andstæð- inga Evrópusambandsins. Samfylkingarfólki mislíkaði sum ummæli Ásmundar eftir kjörið, sérstaklega að hann ætlaði að berjast gegn Samfylkingunni í málinu. Vinstri grænum fannst sumum sem þetta væri óþarfa við- kvæmni í samstarfsflokknum; staða Ásmundar væri öllum ljós. Aðrir flokksmenn, sem Frétta- blaðið hafði samband við, sögð- ust skilja afstöðu Samfylkingar- manna; árásin á þá hefði verið of beinskeytt. Ljóst er að Samfylkingarfólk mun engan afslátt gefa þegar kemur að Evrópu. Fyrir þeim er aðild að Evrópusambandinu leið Íslendinga til hagsældar og fólk eins og Árni Páll Árnason félags- málaráðherra mun ekki sætta sig við hálfkák í þeim efnum. Umhverfismálin Ráðherrar og þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við voru sam- mála um það að stjórnin stæði sterkari eftir deilur sumarsins. Fyrst hún lifði þær væru líkur á að hún yrði langlíf. Vissulega væri skoðanamunur, en komin væri upp sú hefð að ræða hann og koma sér saman um niðurstöðu. Það væri í raun til marks um styrk; ágreiningurinn væri ekki falinn. Samfylkingarþingmaður sagði engu minni ágreining hafa verið í samstarfi við Sjálfstæðis- flokk, hann hefði hins vegar verið barinn niður. Ekki hefur vantað erfiðu málin fyrir ríkisstjórnina og nægir þar að nefna fjárlagafrumvarpið. Menn eru sammála um að í raun hafi gengið furðanlega vel að koma því saman. Ólíkar áherslur flokkanna hefðu getað gert mönn- um erfitt fyrir. Raunar finnst sumum Samfylkingarmönnum full mikill Vinstri grænn bragur á því, en menn styðja það engu að síður. Áherslumunurinn sést einna helst í umhverfismálum. Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur, um að ryðja hindrunum úr vegi fyrir suðvesturlínu, og ósk Svandís- ar Svavarsdóttur um útskýringu er gott dæmi um það. Mörgum Vinstri grænum mislíkaði það orðalag og fannst sumum við- mælendum blaðsins í þeim full- mikill samhljómur við stóriðju- stefnu Framsóknarflokksins. Aðrir spurðu sig hví forsætisráð- herra seildist inn á starfsvið eins ráðherra með jafn beinskeyttum hætti. Ljóst er að mörg Vinstri græn eiga erfitt með að sætta sig við ýmsar ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar í stóriðjumálum, svo sem álver í Helguvík. Rannsókn- ir í orkumálum munu færast frá iðnaðarráðuneytinu til umhverf- isráðuneytisins um áramót og spurning hvort slær við nýjan tón við það. Samhugur Viðmælendur blaðsins eru sam- mála um að engan skugga beri á samstarf forkólfa ríkisstjórnar- innar. Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon eru einhuga og þeim gengur vel að vinna saman. Ötulli stuðningsmann stjórnarinnar en Össur Skarphéðinsson er erfitt að finna og ungs fólkið í flokkunum nær vel saman. Ólíkar áherslur flokkanna hafa hins vegar ekki horfið. Einn Sam- fylkingarmaður orðaði það á þann hátt að mikill farangur væri í skottinu sem ekki yrði losnað svo auðveldlega við. Menn væru hins vegar áfram um að semja um hlut- ina. Staða Ögmundar Jónassonar er spurningarmerki. Hann var mikið í fjölmiðlum eftir afsögn- ina og háværar raddir heyrðust um að hann ætti að snúa aftur í ríkisstjórn. Ögmundur hefur hald- ið sig til hlés undanfarið, raunar svo mikið að margir undrast hve lítið hann tekur til máls á þingi. Hann hefur lýst því yfir að hann styðji ríkisstjórnina. Ljóst er að stjórnin komst klakklaust í gegnum hættulegasta skerjagarðinn, þó að vissulega hafi maður fallið útbyrðis. Fram undan er erfið sigling, en stjórn- arliðar virðast ákveðnir í að koma fleyinu heilu í höfn. Hvert ættum við að annað að líta eftir sam- starfi, spurði einn viðmælenda. FRÉTTASKÝRING: Stjórnarsamstarfið FRÉTTASKÝRING KOLBEINN ÓTTARSSON PROPPÉ kolbeinn@frettabladid.is Stjórnin í vari en brátt gefur á JÓN BJARNASON ATLI GÍSLASON GUÐFRÍÐUR LILJA GRÉTARSDÓTTIR LILJA MÓSESDÓTTIR ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON ÁRNI PÁLL ÁRNASON ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Dúnúlpur frá The North Face á jólatilboði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.