Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 80
27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
GÓÐAR
FRÉTTIR
Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur-
horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg.
Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum
landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði.
Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði
vinsamlegast hafi samband við Pósthúsið í síma 585 8300.
Patreksfjörður
Bakkafjörður
Raufarhöfn
Sauðárkrókur
Víðigerði
Stöðvarfjörður
Skagaströnd
Hrísey
Grundarfjörður
Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði:
Nú er Fréttablaðið
aðgengilegt hringinn
í kringum landið.
Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi
Bakkafjörður Mónakó
Baula Verslun
Blönduós N1
Potturinn og pannan
Dalvík N1 – Olís
Egilsstaðir N1
Eskifjörður Shell skáli
Kría veitingastaður
Fellabær Olís
Hella Olís
Hellissandur Hraðbúð N1
Shell
Húsavík N1 – Olís – Shell skáli
Hvolsvöllur N1 – Söluskálinn Björk
Höfn N1 – Olís
Ísafjörður N1
Kópasker Búðin Kópasker
Hrísey Eyjaljósið
Neskaupstaður Olís
Ólafsfjörður Olís
Ólafsvík N1 – Olís
Patreksfjörður Grillskálinn Patreksfirði
N1
Raufarhöfn Verslunin Urð
Reyðarfjörður N1 – Olís – N1
Rif Umboð Shell / Tandur
Sauðárkrókur N1 – Shell skáli
Hlíðarkaup
Siglufjörður Olís
Skagaströnd Olís
Staðarskáli N1
Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí
Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður
Víðigerði Verslunin Víðigerði
Vík N1
Vopnafjörður N1
Þórshöfn N1
Allt sem þú þarft...
Hægt er að fá Fréttablaðið sent
frítt í tölvupósti á morgnana
eða nálgast það á Visir.is.
Grundarfjörður Hrannarbúð
KÖRFUBOLTI Körfuknattleikssam-
bandið bauð upp á nýbreytni þegar
Stjörnuliðin voru valin fyrir
Stjörnuleik KKÍ sem fram í Dal-
húsum í Grafarvogi 12. desember
næstkomandi. Þjálfarar tveggja
efstu liða Iceland Express deild-
anna völdu liðin í beinni útsend-
ingu á Sporttv þar sem þeir skipt-
ust á að velja og höfðu aðeins sex
mínútur til umráða.
Sigurður Ingimundarson stjórn-
ar Iceland Express-liðinu og Guð-
jón Skúlason stjórnar Shell-lið-
inu í karlaleiknum. Hjá konunum
stjórnar Benedikt Guðmundsson
Iceland Express-liðinu en Ágúst
Björgvinsson stjórnar Shell-lið-
inu.
Aðeins fimm erlendir leik-
menn voru valdir í Stjörnuleik
karla og athygli vakti að nokkrir
sterkir leikmenn fengu ekki náð
fyrir augum þjálfaranna Sigurð-
ar Ingimundarsonar og Guðjóns
Skúlasonar. Menn eins og Darrell
Flake, Amani Daanish og Tommy
Johnson voru ekki valdir en flest-
ir sakna þó örugglega mest Kefl-
víkingsins Rashon Clark sem er
mikill tilþrifakóngur og þekktur
fyrir glæsilegar troðslur sem eru
einmitt vel þegnar í Stjörnuleikj-
unum.
Það skiptir bandarísku leik-
mennina miklu máli að vera vald-
ir í þennan leik því þeir nota það
til að skreyta hjá sér ferilskrána.
Þessir fjórir eru því örugglega
ekkert allt of ánægðir með Sig-
urð og Guðjón. - óój
Lið Sigurðar Ingimundarsonar:
Magnús Þór Gunnarsson, Justin
Shouse, Semaj Inge, Ragnar Nat-
hanielsson, Jóhann Árni Ólafsson,
Nemanja Sovic, Marvin Valdi-
marsson, Brynjar Þór Björnsson,
Christopher Smith, Svavar Birgisson,
Fannar Freyr Helgason, Þröstur Leó
Jóhannsson.
Lið Guðjóns Skúlasonar: Hörður
Axel Vilhjálmsson, Andre Dab-
ney, Ægir Þór Steinarsson, Hlynur
Bæringsson, Páll Axel Vilbergsson,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Jón
Ólafur Jónsson, Jovan Zdravevski,
Tómas Heiðar Tómasson, Þorleifur
Ólafsson, Guðmundur Jónsson,
Hreggviður Magnússon.
Lið Benedikts Guðmundssonar:
Heather Ezell, Signý Hermannsdóttir,
Margrét Kara Sturludóttir, Hildur
Sigurðardóttir, Michelle DeVault,
Bryndís Guðmundsdóttir, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir, Petrúnella
Skúladóttir, Helga Einarsdóttir,
Ingibjörg Jakobsdóttir, Ólöf Helga
Pálsdóttir, Helga Hallgrímsdóttir.
Lið Ágústs Björgvinssonar: Shantrell
Moss, Sigrún Ámundadóttir, Kristi
Smith, Koren Schram, Kristen Green,
Unnur Tara Jónsdóttir, Birna Valgarðs-
dóttir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir,
Jenny Pfieffer-Finora, Hanna Hálfdan-
ardóttir, Fanney Lind. Guðmunds-
dóttir, Hafrún Hálfdánardóttir.
Þjálfarar liðanna í Stjörnuleikjum KKÍ völdu stjörnuliðin sín í beinni í gær:
Troðslukappinn ekki valinn
TILÞRIFAKÓNGUR Rashon Clark hjá
Keflavík er háloftafugl mikill.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Norska gull-liðið í
kvennahandboltanum er á leiðinni
á sitt fyrsta stórmót undir stjórn
Íslendingsins Þóris Hergeirssonar.
HM í Kína hefst eftir rúma viku og
heima í Noregi ætlast allir til að
Þórir fylgi eftir velgengni liðsins
undir stjórn fyrirrennara síns.
Þórir tók við liðinu í sumar af
Marit Breivik sem hafði stýrt lið-
inu til sigurs á sex stórmótum frá
árinu 1994. Breivik kvaddi norsku
stelpurnar með því að stýra liðinu
til sigurs á bæði Ólympíuleikunum
í Peking og á EM í Makedóníu á
síðasta ári. Það er þó ekki eins og
Þórir þekki ekki liðið eða stelpurn-
ar hann því hann var aðstoðarmað-
ur Breivik frá 2001 til 2008.
Það var gott hljóð í Þóri þegar
Fréttablaðið náði í skottið á honum
í miðjum undirbúningnum fyrir
Kínaförina. „Það er alltaf mik-
ill spenningur fyrir svona mót.
Miðað við síðasta ár þá hafa samt
verið meiri truflanir í undirbún-
ingi liðsins,“ segir Þórir og bætir
við: „Það hefur verið erfitt að ná
að safna saman liðinu til æfinga.
Það hefur verið meira basl í ár en
það hefur verið síðustu ár,“ segir
Þórir og það er ljóst að hann er að
setja saman nýtt lið þar sem marg-
ir af bestu leikmönnum síðustu
ára eru ekki með. „Það er svolít-
ið spennandi hjá okkur því það er
svo mikið af nýjum leikmönnum í
liðinu,“ segir Þórir.
Meðal þeirra sem eru ekki með
er fyrirliðinn Gro Hammerseng og
Katja Nyberg sem eru að margra
mati taldar vera tvær af bestu
handboltakonum heims. Þær eru
í fríi frá landsliðinu og voru ekki
heldur með þegar norska liðið varð
Evrópumeistari fyrir einu ári.
„Það er enginn sem kíkir á það
hér hvort það vanti einhverja leik-
menn. Þetta er eins og á Íslandi
með karlaliðið. Það eru stórar
væntingar, það eru margir sem
fylgjast með liðinu og það eru
margir sem eiga þetta lið. Þeir
vilja og óska þess að árangur sé
góður. Það gerir þetta líka spenn-
andi,” segir Þórir.
Unnu æfingamót
Norska liðið vann æfingamót um
síðustu helgi þar sem tóku Þátt
Króatía, Rússland og Rúmenía.
„Við unnum alla þrjár leikina og
við vorum að spila svona þokka-
lega. Við spiluðum illa á móti Kró-
ötum, ágætlega á móti Rúmen-
um og síðan þokkalega vel á móti
Rússunum. Það er mjög gott fyrir
okkur að fá stíganda í þetta áður
en við förum austur,“ segir Þórir.
Norska kvennalandsliðið hefur
spilað til úrslita á fjórum síðustu
stórmótum og Þórir gerir sér fylli-
lega grein fyrir því að það er mikil
pressa á liðinu að endurtaka leik-
inn nú.
„Þetta verður alltaf mælt hjá
manni þegar stóru mótin koma.
Ef við lítum á söguna hjá liðinu
þá hefur þetta gengið mjög vel að
miklu leyti en það hafa verið ár
inni á milli sem hafa verið slakari,“
segir Þórir en bætir jafnframt við
að norsku stelpurnar hafi náð að
halda sér á toppnum síðustu ár og
ekki að ástæðulausu.
Þurfum kannski meiri tíma
„Þetta er hópur sem hefur verið
mikið saman, þjálfarateymið hafði
verið lengi með liðið og sömu leik-
mennirnir höfðu verið lengi í lið-
inu. Það var mikil samfella í þessu
síðustu árin. Það er búið að hrista
svolítið upp í þessu og það er að
mörgu leyti gott. Það getur alveg
verið að við þurfum meiri tíma en
það verður samt gaman að sjá hvar
við stöndum,“ segir Þórir.
Norska kvennalandsliðið
fer til Kína í fyrramál-
ið eða viku fyrir fyrsta
leik. Liðið er með Ung-
verjalandi, Rúmen-
íu, Japan, Túnis og
Chile í riðli.
Þórir leynir
því ekki að það
sé í hans eðli að
stefna á topp-
inn.
„Það er stór-
kostlegur
munur á því að
spila úrslita-
leikinn eða kom-
ast ekki þangað.
Ég þekki mig það
vel að það verður
ekkert gefið eftir.
Markmiðið er að
vera að berjast
á toppnum. Það er markmið sem
er niðurneglt í norskum hand-
bolta. Maður er ekkert að fara í
svona mót fyrir annað en að vera
að berjast um toppsætið,“ segir
Þórir en leggur jafnframt áherslu
á það að til þess að norska liðið nái
jafnlangt nú og síðustu ár þá þurfi
ungir og reynsluminni leikmenn
að standast prófið.
„Þetta ár er svona ár sem við
þurfum til að ná góðum stíganda
og þessir nýju leikmenn þurfa
helst að spila skrambi vel ef við
ætlum að komast í toppsætið því
það hafa orðið það miklar breyt-
ingar hjá okkur. Það eru duglegir
og reynslumiklir leikmenn inni á
milli og ef við náum góðri stemn-
ingu og stíganda í þetta þá getur
allt gerst,“ segir Þórir að lokum.
ooj@frettabladid.is
Búið að hrista svolítið
upp í norska gull-liðinu
Þórir Hergeirsson er að fara með norska kvennalandsliðið á sitt fyrsta stórmót
sem aðalþjálfari en HM í Kína hefst eftir aðeins rúma viku.
ÁTTA ÁR Þórir
Hergeirsson er
búinn að vera
í kringum
norska liðið
frá 2001.
MYND/NORDIC