Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 6
6 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR DÓMSMÁL Gunnar Viðar Árnason hefur verið dæmdur til að sæta þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á 6,1 kílói af amfetamíni 21. apríl. Efnið kom frá Hollandi með hraðsending- arfyrirtækinu UPS á Keflavíkur- flugvelli og tók lögregla amfetam- ínið samdægurs. Það var í áldósum sem ætlaðar voru undir viðarolíu. Gunnar Viðar lagði á ráðin um innflutninginn og var í samráði við aðila í Hollandi um tilhögun sendingar fíkniefnanna hingað til lands. Maður að nafni Roelof Knopper kom pakkanum í send- ingu hjá UPS. Daginn áður en sendingin var tekin bárust upplýsingar til lög- regluyfirvalda hér að von væri á pakka með fíkniefnum til lands- ins. Jafnframt að hollenskur karl- maður hefði verið í sambandi við símanúmer hér á landi sem var óskráð. Þar hefði verið rætt um skipulag sendingarinnar. Var talið að notandi íslenska númersins væri Gunnar Viðar, en hann var í sam- bandi við símanúmer í eigu Hol- lendings að nafni Johns Dieliessen og fleiri. Til að sanna notkun Gunnars Við- ars á símanúmerinu var meðal ann- ars aflað raddgreiningar hjá banda- rísku alríkislögreglunni FBI. Þá var unnin staðsetningargreining hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem sýndi að óskráði síminn var alltaf í notkun mjög nærri öðrum síma sem Gunn- ar Viðar kannaðist við að nota. Lík- urnar á að það væri tilviljun væru 0,05 prósent. Sjálfur sagðist hann fyrir dómi ekki vilja fullyrða að hann not- aði óskráða símann nema þá til að „bulla í kellingum“. Varðandi millj- ónaupphæðir, nefndar í símtölum, kvaðst Gunnar Viðar hafa lent í illdeilum út af fasteignaviðskipt- um og sér hefði verið hótað með „Munda morðingja“. Í maí sáu lögreglumenn Gunnar Viðar hitta þrjá menn, alla útlend- inga, í Smáralind, þar sem hann afhenti þeim þykkt umslag. Þeir eru grunaðir um þátt í stórfelldum fíkniefnabrotum. Skömmu síðar var Gunnar Viðar handtekinn. Heima hjá honum fannst marijúana og 1,2 milljón- ir króna í peningum. Á vinnustað hans voru haldlagðar tæpar 700 þúsund krónur. Því var haldið á lofti að símtöl milli Hollands og Íslands sem lutu að sendingunni og lögregluyfir- völd hleruðu snerust um að útvega til Hollands bíla á góðu verði til að selja með ágóða ytra. Hvað varðar skýringar Gunnars Viðars á símtölum og fleiru segir dómurinn þær „fánýtan fyrirslátt og að engu hafandi“. Allt sé á sömu bókina lært og svör hans og skýr- ingar „út í hött“. Hann eigi sér engar málsbætur. jss@frettabladid.is Amfetamínsmyglari fékk þrjú og hálft ár Gunnar Viðar Árnason hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á 6,1 kílói af amfetamíni. Héraðsdómur Reykjaness fer hörðum orðum um framburð hans og segir Gunnar ekki eiga sér neinar málsbætur. LITLA-HRAUN Gunnar Viðar Árnason hefur setið í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni frá því í maí. HEITAR LAUGAR læsileg bók um eitt lsta undrið í náttúru Íslands. allað er um á annað ndrað laugar um allt nd, náttúrulaugar og manngerðar laugar. auðsynleg handbók yrir alla sem ferðast um Ísland. SKRUDDA Ekta Egils Malt og Appelsín blandað að hætti íslenskra heimila FÆREYSKUR DANSUR EFTIR HULDAR BREIÐFJÖRÐ D Y N A M O R E Y K JA V ÍKUngur Íslendingur tekur sér ferð á hendur til að hitta þjóðina sem virðist ekki geta hætt að bjarga okkur. Hvað er það með Færeyinga? Eru þeir svona ofboðslega gott fólk? ★★★ „SKEMMTILEG OG EINLÆG,“ –IFV, DV „ FALLEG BÓK. OG Á ÓVÆNTAN HÁTT KANNSKI EIN BESTA BÓKIN UM HRUNIÐ.“ – HALLGRÍMUR HELGASON, FACEBOOK Telur þú réttmætt að fjölmiðlar fái stuðning frá ríkinu? Já 13,9% Nei 86,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Eru stjórnvöld að ganga of langt í skerðingu á fæðingar- orlofi? Segðu þína skoðun á visir.is VIÐSKIPTI Ekkert mælir gegn því að bankarnir brjóti upp fyrirtækja- samstæður sem þeir taka yfir eða aðstoða við endurskipulagningu telji þeir fyrirtækin hafa markaðs- ráðandi stöðu. Slíkt kann að skila sér til neytenda. Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, á morgunverðarfundi Viðskipta- ráðs um áhrif banka á rekstrar- umhverfi fyrirtækja í gær. „Við endurskipulagningu fyr- irtækja verður að horfa til sam- keppnissjónarmiða. Bankarnir eiga að passa upp á að fyrirtæki í höndum þeirra brjóti ekki í bága við samkeppnislög. Þeir eiga því að brjóta þau upp,“ sagði Páll. Fleiri tóku undir með forstjór- anum, ekki síst Þórður Sverris- son, forstjóri Nýherja. Hann sagði pláss fyrir færri fyrirtæki hér eftir efnahagshrunið og því sé eðlilegt að þau hverfi af markaði sem rekin hafi verið illa eða standi höllum fæti. Ekki eigi að halda lífi í illa stöddum fyrirtækjum. Linda B. Gunnlaugsdóttir, for- stjóri A. Karlsson, sagði hátterni bankanna óþolandi, ekki síst þegar fyrirtækin sem komin séu í hend- ur bankanna leiti fyrir sér á nýjum markaði. Vísaði hún til þess að rit- fanga- og skrifstofuvöruverslunin A4 tók að marka sér spor í ræsti- vörugeiranum eftir að viðskipta- bankinn tók fyrirtækið yfir. - jab Bankarnir eiga að brjóta upp fyrirtækjakeðjur sem drottna yfir markaðnum: Of mörg fyrirtæki í landinu FRÁ FUNDINUM Fulltrúar atvinnulífsins í pallborði á morgunverðarfundi Við- skiptaráðs í gær sögðu óþolandi þegar bankarnir haldi lífi í illa stöndugum fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest fjögurra vikna gæsluvarðhaldsúr- skurð yfir manni sem réðist á íbúa í Breiðholti aðfaranótt 15. nóvember og hleypti af haglaskotum á útidyra- hurð íbúðarhúss. Að óbreyttu verð- ur maðurinn í gæsluvarðhaldi til 18. desember. Fram hefur komið að íbúi húss- ins kom til dyra um nóttina eftir að bankað hafði verið en mætti þá grímuklæddum manni með hagla- byssu. Sá barði íbúann í andlitið með byssunni, en hinn náði að loka. Íbúinn lýsti fyrir lögreglu hvernig hann hafi verið hálfum metra fyrir innan dyrnar þegar skot riðu af og ryk, drasl og glerbrot þyrluðust upp. Fimm tóm skothylki fundust fyrir utan. Árásarmaðurinn hvarf af vett- vangi, en nágranni og félagi þess sem ráðist var á kom hinum til aðstoðar. Sá hafði heyrt skothvelli og í kjölfarið fengið upphringingu frá hinum sem sagði að skotið hefði verið á sig. Nágranninn hafði með sér hlaðna byssu. Fram kemur í málskjölum að kær- asta árásarmannsins hafði áður lagt fram kæru á þann sem ráðist var á vegna kynferðisbrots, en fallið hefði verið frá rannsókn. Félagi þess sem ráðist var á ber að hún hafi hringt fyrr um kvöldið og viljað vita hvar þeir væru. Vitað hafi verið að kæran og þau mál hefðu lagst illa í unnust- ann. Árásarmaðurinn hefur játað árás- ina, en kveðst bara hafa ætlað að hræða. Hann segist hafa verið full- ur og reiður, auk þess sem hann hafi í tvo mánuði sprautað sig með ster- um. Lögregla segir manninn grun- aðan um tilraun til manndráps og „óforsvaranlegt“ að hann gangi laus þegar grunur leiki á um svo alvar- legt brot. - óká Fjögurra vikna gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti: Fimm skothylki fundust við dyrnar Á VETTVANGI Brot manns sem skaut með haglabyssu á dyr íbúðarhúss í Breiðholti 15. nóvember er sagt varða allt að 16 ára fangelsi í gæsluvarðhalds- úrskurði héraðsdóms frá því fyrir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SVEITARSTJÓRNIR Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir áform- um Kaupþings um að loka útibúi bankans á Hofsósi. „Lýsir ráðið undrun á að gripið sé til þessara aðgerða hjá ríkis- banka stuttu áður en nýir eigend- ur taki við rekstri hans. Þjónusta bankans hefur haft mikla þýðingu fyrir íbúa svæðisins og bent er á að langt er í næstu bankastofn- anir. Byggðarráð skorar á stjórn bankans að endurskoða þessi áform þar sem þau munu án efa leiða til fækkunar viðskiptavina og ólíklegt að þau skili bankanum þeim fjárhagslega ávinningi sem stefnt er að,“ segir ráðið. - gar Byggðarráð Skagafjarðar: Andvíg lokun útibús á Hofsósi KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.