Fréttablaðið - 27.11.2009, Blaðsíða 8
8 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
1 Hverjar verða hámarks-
greiðslur úr fæðingarorlofssjóði
hér eftir?
2 Hvað eru starfsmenn Land-
helgisgæslunnar með í föst
laun?
3 Hver stefnir á oddvitasæti
Framsóknar í Reykjavík, annar
en núverandi oddviti?
SVÖR Á SÍÐU 54
ÍRLAND, AP Kaþólska kirkjan á
Írlandi gætti þess áratugum
saman að ekkert fréttist opinber-
lega af framferði presta sem nídd-
ust á börnum. Kirkjan kaus að
gæta orðspors síns frekar en að
styðja fórnarlömbin.
Þetta kemur fram í skýrslu
rannsóknarnefndar sem undan-
farin þrjú ár hefur grandskoðað
leyniskjöl kirkjunnar um þessi
mál. Rannsóknin nær til brota
sem framin hafa verið í umdæmi
kirkjunnar í höfuðborginni Dublin
á árunum 1975-2004.
Fram kemur í skýrslunni að
erkibiskupar kaþólsku kirkjunnar
í Dublin hafi á þessu tímabili gætt
þess að halda brotum prestanna
leyndum fyrir lögreglunni til að
koma í veg fyrir umtal, en þess í
stað flutt þá í annað prestsdæmi.
Ríkisstjórn Írlands baðst í gær
afsökunar á að ríkið hefði ekki
dregið yfirvöld kaþólsku kirkjunn-
ar til ábyrgðar.
Fulltrúar fórnarlamba kirkjunn-
ar sögðust fagna rannsókninni, en
tóku þó fram að bæði kirkjan og
stjórnvöld á Írlandi ættu margt
eftir ógert til að bæta fyrir mis-
gjörðir af þessu tagi.
Á þessu ári hafa þá komið út
tvær efnismiklar skýrslur um
þessi mál, báðar að frumkvæði
stjórnvalda. Sú fyrri kom fyrir
almennings sjónir í maí og eru þar
dregnar saman á 2.500 blaðsíðum
upplýsingar um brot kirkjunnar á
Írlandi allt aftur á fjórða áratug
síðustu aldar.
Skýrsluna, sem birt var almenn-
ingi í gær, fengu stjórnvöld í hend-
urnar í júlí. Hún er 720 blaðsíður
og eru þar skoðuð mál 46 presta
sem samtals höfðu fengið á sig
320 kærur. Þessir 46 voru vald-
ir til skoðunar úr hópi 150 presta
í umdæmi kirkjunnar í Dublin,
sem allir höfðu verið sakaðir um
að níðast á drengjum eða stúlkum
allt frá árinu 1940.
Einungis ellefu prestanna 46 eru
nafngreindir, þar sem þeir höfðu
fengið dóm fyrir athæfi sitt. Höf-
undar skýrslunnar sögðust ekki
í vafa um að þessir 46 prestar
hefðu níðst á mun fleiri börnum
en þeim 320 sem kærur höfðu bor-
ist vegna.
„Einn presturinn viðurkenndi að
hafa níðst kynferðislega á meira
en hundrað börnum, en annar við-
urkenndi að hafa níðst á börnum á
hálfs mánaðar fresti allan tímann
meðan hann var í embætti, sem
var í 25 ár,“ segir í skýrslunni.
gudsteinn@frettabladid.is
Kirkjan hélt
hlífiskildi yfir
níðingum
Leyniskjöl kaþólsku kirkjunnar á Írlandi sýna að
kirkjan hélt hlífiskildi yfir barnaníðingum úr röð-
um presta. Skýrsla rannsóknarnefndar dregur fram
ljóta sögu. Írska stjórnin biðst afsökunar.
LJÓT SAGA Kross þessi var reistur í Dublin árið 1979 þegar Jóhannes Páll II. páfi kom
þangað í heimsókn. NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUR Samfylkingin talar
tungum tveim um málefni
Reykjavíkurflugvallar, því sam-
gönguráðherra segir eitt en full-
trúi flokksins í samgöngunefnd
annað.
Svo mælti framsóknarmaður-
inn Birkir Jón Jónsson á Alþingi
á miðvikudag. Hann sagði völl-
inn gríðarlega mikilvægan fyrir
landsbyggð sem og höfuðborg. Því
vildi hann vita hvort Samfylking
gengi hér í takt.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
fyrrnefndur fulltrúi Samfylking-
ar í samgöngunefnd og eitt sinn
borgarstjóri, svaraði Birki með
því að skiptar skoðanir væru um
málið innan allra flokka. Bæði
innan Samfylkingar og Fram-
sóknar. Framsókn í borginni segði
að völlurinn skyldi hverfa, en á
landsvísu að hann ætti að vera.
Birkir Jón sagði þá að Fram-
sókn vildi völl-
inn á sínum
stað.
Jón Gunn-
arsson úr Sjálf-
stæðisflokki
k v a d d i s é r
hljóðs seinna í
þessum ræðum
um störf þings
og sagðist vilja
hafa völlinn um
kyrrt. Sú væri skýr stefna Sjálf-
stæðisflokksins, þótt aðrar skoð-
anir væru í borgarstjórnarflokki
hans. Svo væri oft í stórum flokk-
um.
Jón viðraði áhyggjur sínar af
uppbyggingu í Vatnsmýrinni og
lagði til að flugstöð yrði endur-
byggð en samgöngumiðstöð sett í
jaðarbyggðir eða við stofnbraut-
ir.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og áður
borgarfulltrúi, kvað þá Jón Gunn-
arsson hafa staðfest að skiptar
skoðanir væru innan Sjálfstæð-
isflokks um borgarskipulag.
„Það er ekki samhljómur á milli
okkar hvað hin ýmsu mál varðar,
það er algjörlega deginum ljós-
ara, þannig að ég ætla ekki að
eyða tíma mínum hér í að fara
yfir það,“ sagði Guðlaugur í létt-
um dúr. - kóþ
Alþingismenn ræddu um flugstöð, samgöngumiðstöð og aðalskipulag Reykjavíkurborgar:
Deilt innan flokka um Reykjavíkurvöll
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
STEINUNN VALDÍS
ÓSKARSDÓTTIR
BIRKIR JÓN
JÓNSSON
Alhliða uppskrift
Pulsa (hituð í vatni,
EKKI SOÐIN!!!) Pu
lsu-
brauð og bara hvað
sem
þig langar að hafa m
eð.
(Nema grænar baun
ir.
Grænar baunir í pu
lsu-
brauði geta valdið
öndunarerfiðleikum
.)
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
www.lapulsa.is
Ringjarar fara inn á ring.is og óska eftir að fá
MMS með tilboðum send í símann.
Ringjarar þurfa ekki
skæri. Við sendum
tilboð beint í símann.
Tilboð dagsins:
Tónlist
Ferskir tónar
á m.ring.is í
hverri viku
Gleði 2
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
Ringjarar geta náð sér í lagið og
hringitóninn We lost the race með
Ourlives á farsvímavefnum
m.ring.is í dag.
Tónlist fyrir 0kr.
Tíska
Fersk tilboð
á ring.is í
hverri viku
Gleði 1
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
Ringjarar fá 2.000 kr. afslátt af
gallabuxum í dag hjá Retro,
Deres, Sparkz eða Urban.
2.000 kr. afsláttur!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
0
15
NEYTENDUR Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda, fagn-
ar samanburði Póst- og fjar-
skiptastofnunar á kostnaði við
síma- og netþjónustu, og átelur
fjarskiptafyr-
irtækin fyrir
ógagnsæjar
gjaldskrár sem
almennt sé erf-
itt fyrir neyt-
endur að bera
saman.
Fjallað var
um saman-
burðinn í
Fréttablaðinu í
gær, en gagnrýnt hefur verið að
hann taki ekki tillit til pakkatil-
boða sem fyrirtækin bjóða.
Gísli segir neytendur eiga rétt
á upplýsingum sem geri þeim
kleift að bera verðskrárnar
saman. Heppilegra sé fyrir alla
að fjarskiptafyrirtækin auð-
veldi samanburð svo ekki þurfi
að breyta lögum til að auka
gagnsæi í gjaldskrám.
- bj
Fagnar fjarskiptasamanburði:
Pakkatilboðin
afar ógagnsæ
GÍSLI TRYGGVASON
Heimsendur matur hækkar
Verð á heimsendum mat frá Akur-
eyrarbæ hækkar úr 704 krónum í
850 krónur. Heildarverð á hvern
heimsendan matarbakka er áætlaður
1.060 krónur en bærinn niðurgreiðir
bakkann um 210 krónur.
AKUREYRI
VEISTU SVARIÐ?