Fréttablaðið - 27.11.2009, Qupperneq 2
2 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Gunnar, ætlið þið að vera
svona eldsnöggir að þessu?
„Já, og við verðum líka með alveg
eldheitar myndir.“
Gunnar Jósefsson stefnir að því að opna
Laugarásvídeó á ný 12. desember eftir
stórbruna á leigunni í lok ágúst.
DÓMSMÁL Sýslumaðurinn í Kópa-
vogi gerði fyrr í þessum mánuði 24
árangurslaus fjárnám hjá Klæðn-
ingu ehf. vegna vanskila á skuld-
um upp á samtals um 60 milljón-
ir króna. Lögmaður Klæðningar
hefur kært ákvörðunina til héraðs-
dóms vegna þess sem hann kallar
óeðlileg vinnubrögð sýslumanns-
fulltrúans sem sá um málið.
Fulltrúi sýslumannsins bankaði
upp á á heimili Bjarna Más Bjarna-
sonar, stjórnarformanns Klæðn-
ingar, klukkan hálf tíu að kvöldi
12. nóvember og krafðist þess að
hann benti á eignir til að gera fjár-
nám í vegna 24 skulda.
Flestar skuldirnar voru við ýmis
fyrirtæki, en sú stærsta, um 30
milljónir, var við Sýslumanninn
í Hafnarfirði og til komin vegna
vangreiðslu opinberra gjalda. Upp-
hæðin var áætluð og hefur sú skuld
nú lækkað í tæpar tvær milljónir.
Bjarni Már benti á fasteign í
Hafnarfirði og 62 milljóna kröfu
sem Klæðning átti á nýlegan
kaupanda að fasteigninni. Hann
taldi þessa tryggingu næga, enda
námu skuldirnar sem gera átti
fjárnám vegna sem áður segir um
sextíu milljónum. Sýslumannsfull-
trúinn var hins vegar ósammála.
„Hún afgreiddi þetta snaggara-
lega þannig á staðnum að þetta
væri einskis virði,“ segir Magnús
Guðlaugsson, lögmaður Klæðning-
ar. „Þar með var fjárnámið orðið
árangurlaust.“ Þegar gert hefur
verið árangurslaust fjárnám hjá
félagi hafa þeir sem kröfu eiga á
það þrjá mánuði til að fara fram
á að það verði tekið til gjaldþrota-
skipta.
Magnús telur einsýnt að full-
trúinn hafi ekki staðið löglega að
málum. Bjarni hafi óskað eftir
því að virði eignarinnar sem hann
benti á yrði metið, en á það hafi
fulltrúinn ekki fallist. „Sóknarað-
ili telur að fulltrúi sýslumanns hafi
hvorki verið hæfur né búið yfir
nægri þekkingu til að meta eign-
irnar,“ segir í kæru Magnúsar.
Bjarna hafi ekki heldur verið
gefinn kostur á að benda á aðrar
eignir til tryggingar, jafnvel þótt
félagið eigi margar aðrar eignir.
Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður
í Kópavogi, segist ekki geta tjáð sig
um einstök mál. Hann bendir hins
vegar á að lögum samkvæmt séu
gerðarþolar alltaf boðaðir á skrif-
stofu sýslumanns til fjárnáms.
Sinni þeir ekki ítrekuðum boðun-
um sé farið í svokallað útifjárnám,
sem sé nær undantekningarlaust
árangurslaust. „Ég kannast ekki
við að neitt sé óeðlilegt við starfs-
hætti fulltrúans,“ segir hann.
Fyrirtökur voru í öllum málun-
um á þriðjudag og er munnlegur
málflutningur áætlaður í desem-
ber. stigur@frettabladid.is
24 árangurslaus fjár-
nám hjá Klæðningu
Lögmaður Klæðningar telur sýslumannsfulltrúa í Kópavogi hafa staðið óeðlilega
að málum þegar hann gerði 24 árangurslaus fjárnám hjá félaginu að kvöldlagi
fyrir tveimur vikum. Hann hefur kært framgöngu fulltrúans til héraðsdóms.
ÍSHELLA 7 Það var þetta húsnæði, sem hýsir starfsemi Klæðningar í Hafnarfirði, sem
stjórnarformaðurinn benti á sem eign til að gera fjárnámið í. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Klæðning stendur afar höllum fæti eins og menn vita,“ segir Magnús. Það
segir hann fyrst og fremst orsakast af því að fyrirtækið fái ekki greidda 3,3
milljarða frá Orkuveitu Reykjavíkur, meðal annars vegna afleiðinga af van-
efndum OR tengdum samningum um Hellisheiðarvirkjun. Áður hefur verið
fjallað um þessa deilu.
Lögfræðingar Orkuveitunnar telja OR þvert á móti eiga kröfu á Klæðningu
vegna þess að fyrirtækið hafi gengið frá óunnu verki. Þeir neita því að borga
milljarðana þrjá og vilja skuldajöfnun.
Í FJÁRHAGSVANDA VEGNA DEILU VIÐ OR
ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra sagði á Alþingi í
gær að ýmislegt sem andstæðing-
ar Icesave-frumvarps ríkisstjórn-
arinnar halda fram gangi fram af
sér. „Því hefur ítrekað verið hald-
ið fram að íslenska ríkisstjórnin
og þeir embættismenn, sem hafi
verið í forsvari, gangi hagsmuna
Breta og Hollendinga en ekki
Íslendinga,“ sagði Jóhanna. „Auð-
vitað vita menn, sem halda þessu
fram, að þetta er rangt og furðulegt
að því skuli haldið fram í ræðustól
hér á Alþingi.“
Jóhanna nefndi einnig að því
væri haldið fram að það hefði engar
afleiðingar að samþykkja ekki
Icesave-frumvarpið. „Auðvitað
vita menn að þetta er rangt,“ sagði
Jóhanna. „Ég held að menn væru
að kalla yfir sig algjöran frostavet-
ur í atvinnuuppbyggingu í vetur ef
menn ætla að fara að láta þetta mál
liggja,“ sagði forsætisráðherra.
Ef Tryggingarsjóður innistæðu-
eigenda geti ekki staðið við skuld-
bindingar muni það hafa alvarleg-
ar afleiðingar fyrir lánsfjármat
ríkisins, sveitarfélaga og stórfyr-
irtækja.
„Við gætum verið að koma í veg
fyrir allar þær stórframkvæmdir
sem eru á döfinni,“ sagði Jóhanna.
Hún sagði það sérstakt að kalla
eftir lífsnauðsynlegri atvinnuupp-
byggingu en vilja á sama tíma segja
nei við Icesave-samningnum. „Ég
held að það fari ekki saman.“
- pg / sjá síðu 12
Jóhanna Sigurðardóttir segir að margt í Icesave-umræðunni gangi fram af sér:
Frostavetur í atvinnuuppbyggingu
verði Icesave-frumvarp ekki afgreitt
ICESAVE Sautján þingmenn voru á mæl-
endaskrá á Alþingi við 2. umræðu um
Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar um
kl. 18.20 í gær. Fundi var haldið áfram
allt kvöldið.
SKIPULAGSMÁL Íbúasamtök mið-
borgarinnar hafa farið fram á það
við borgaryfirvöld og lögreglu að
veitingastöðum í miðbænum verði
meinað að hafa opið lengur en til
þrjú að nóttu um helgar.
Þá er lagt til að skilgreint verði
hvaða staðir séu næturklúbbar,
slíkum stöðum verði fundnir aðrir
staðir fjarri íbúabyggð og geti þá
verið opnir þar lengur. Allar regl-
ur um veitingastaði verði endur-
skoðaðar samhliða endurskoðun
aðalskipulags sem nú stendur yfir,
þannig að íbúabyggð og veitinga-
rekstur geti farið saman án þess að
gengið sé á rétt íbúa. - sh
Íbúasamtök miðborgarinnar:
Næturklúbbar
úr miðborginni
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt
þrítugan mann í átján mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
dóttur sinni, sem þá var fimm ára
gömul. Maðurinn hafði fengið eins
árs dóm í héraði.
Maðurinn braut gegn stúlkunni
á þáverandi heimili sínu og barns-
móður sinnar. Móðirin vaknaði
um nóttina við vein í barninu og
varð vitni að því þegar maður-
inn nuddaði klof stúlkunnar og
lét hana snerta getnaðarlim sinn.
Maðurinn játaði að hafa snert
stúlkuna en sagðist hafa gert það
í svefni.
Maðurinn á að baki nær óslitinn
sakaferil frá 1999 til 2006. - sh
Braut gegn fimm ára dóttur:
Þyngri dómur
fyrir barnaníð
VIÐSKIPTI Gert er ráð fyrir að jóla-
verslunin verði óbreytt frá síðasta
ári að magni til, en vegna verð-
hækkana verði veltan átta pró-
sentum meiri í krónum talið. Þetta
kemur fram í árlegri spá Rann-
sóknaseturs verslunarinnar.
Fram kemur að í fyrra hafi jóla-
verslun á föstu verðlagi dregist
saman um 18,3 prósent milli ára,
en í fjögur ár þar á undan hafi
árlegur vöxtur jólaverslunarinn-
ar að meðaltali numið 7,3 prósent-
um.
Í inngangi sérrits um jólainn-
kaupin segir Emil B. Karlsson,
forstöðumaður Rannsóknaseturs-
ins, spár um jólaverslunina vera
hóflegar. „Aðstæður í efnahags-
lífinu og þróun einkaneyslu gefa
ekki tilefni til mikillar bjartsýni
um aukinn munað fyrir þessi jól
eins og oft áður. Önnur gildi hafa
rutt sér til rúms, sem felast í því
að þegar magnið minnkar aukast
gæðin.“ segir hann.
Í skýrslunni er áætlað að velta
í smásöluverslun sem rekja megi
til jólanna nemi um 13,4 milljörð-
um króna. Það jafngildir því að
hver Íslendingur verji að jafnaði
næstum 42.000 krónum til jóla-
innkaupa. Í fyrra var upphæðin
38.600 krónur.
Í könnun kemur fram að fólk
byrji nú fyrr á jólainnkaupum en
áður og dreifi þeim jafnvel á allt
árið. Þá versla fleiri á netinu fyrir
þessi jól en áður hefur verið. - óká
Hver landsmaður eyðir að jafnaði 42 þúsund krónum í jólainnkaupin:
Jólaverslun stefnir í 13,4 milljarða
JÓLAÖS Í KRINGLUNNI Í könnun
Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur
fram að algengast sé að hver fullorðinn
verji um 25 til 75 þúsund krónum til
jólagjafakaupa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJARAMÁL Staðan í kjaraviðræð-
um Flugfreyjufélags Íslands og
Icelandair er í hnút eftir að upp úr
viðræðum slitnaði á miðvikudag.
Halda á félagsfund í desember til
að ræða framhaldið, en til greina
kemur að afla heimildar til að boða
verkfall.
Sigrún Jónsdóttir, formaður
Flugfreyjufélags Íslands, segir
að eitt af því sem helst steyti á sé
krafa flugfreyja um styrkingu
ákvæða í kjarasamningum um for-
gang félaga í Flugfreyjufélaginu í
störf hjá félaginu. Þá vilji félags-
menn að starfsaldur hafi meira
vægi en nú er vegna stöðuhækk-
ana. - bj
Slitnar upp úr kjaraviðræðum:
Flugfreyjur
íhuga verkfall
DÓMSMÁL Þrír piltar hafa verið
dæmdir í Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir að ráðast á þann
fjórða á síðasta ári og misþyrma
honum með höggum og spörk-
um. Þremenningarnir voru þá
fimmtán ára.
Ákvörðun refsingar var
frestað en þeir dæmdir til að
greiða málsvarnarlaun, samtals
830 þúsund krónur. Í dómskjöl-
um kemur fram að „einhvers
konar núningur“ hafi verið í
samskiptum fórnarlambsins og
tíu ára bróður eins af þremenn-
ingunum. Piltarnir þrír hafi
sýnt iðrun eftir árásina og notið
sálfræðiaðstoðar. - jss
Ákvörðun refsingar frestað:
Þrír piltar mis-
þyrmdu einum
UPPTAKA Símamyndbandsupptaka af
árásinni birtist á netsíðunni YouTube.
Minningarathöfn um átján
ára pilt sem hné niður og lést
eftir knattspyrnuæfingu með
Íþróttafélagi Reykjavíkur var
haldin í gærkvöldi.
Pilturinn hafði lokið æfingu
með öðrum flokki ÍR á mið-
vikudagskvöld þegar hann hné
niður. Hann lést skömmu síðar
í sjúkrabíl, en talið er að hann
hafi fengið hjartaáfall.
Samnemendur piltsins í
Verslunarskóla Íslands minnt-
ust félaga síns í gær með því
að skrifa í minningarbók sem
komið verður til foreldra hans.
Hné niður eftir íþróttaæfingu:
Minnst með
athöfn í gær
Kona blekkti leigubílstjóra
Kona sem blekkti leigubílstjóra til að
aka með sig fyrir 15.800 krónur, án
þess að eiga fyrir fargjaldinu, hefur
nú verið ákærð fyrir atvikið. Hún tók
bílinn í Reykjavík og lét aka með sig
á Selfoss.
DÓMSTÓLAR
SPURNING DAGSINS