Fréttablaðið - 27.11.2009, Side 10

Fréttablaðið - 27.11.2009, Side 10
10 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR REYKJAVÍK Í fyrirhuguðum 580 milljóna niðurskurði til leikskóla borgarinnar verður grunnþjónust- an ekki skorin niður, segja fulltrú- ar leikskólasviðs borgarinnar. Þessi fullyrðing er hins vegar óraunhæf, að mati Margrétar Pálu Ólafsdóttur, formanns Sam- taka sjálfstæðra skóla og höfund- ar Hjallastefnunnar. „Umræða um að ekki eigi að skerða grunnþjónustu er í raun óraunhæf yfirlýsing, því leikskól- arnir sinna bara grunnþjónustu. Þetta er upp- eldi og mennt- un ungra barna, gæsluhlutverk gagnvart for- eldrum og mál- tíðir. Nánast allur kostnað- ur leikskóla er launakostnaður og mötuneyti. Allt annað er hverfandi. Svo mikið veit ég,“ segir hún. Opinber skil- g r e i n i n g á þessu hugtaki, grunnþjónusta til leikskóla- barna, er hvergi til staðar hjá borginni, stað- festir Ragnar Sær Ragnarsson, formaður leikskólaráðs. Unnið sé að skilgreiningu á vegum borgar og Sambands sveitarfélaga, „en það er ekki til beinlínis formleg skilgreining“. Edda Björk Þórðardóttir, í for- eldraráði leikskólans Hamra, lýsti þessu hér í blaðinu hinn 23. nóvember sem dæmi um metnað- arleysi hjá borginni. Í fundargerð af samráðsfundi leikskólasviðs með foreldrum leikskólabarna 12. nóvember kemur fram að fulltrú- ar borgarinnar hafi heitið því að tryggja grunnþjónustu. Fulltrúarnir hafi svo staðið á gati þegar foreldrar spurðu um hvað væri grunnþjónusta. Um fyrirhugaðan niðurskurð segist Margrét Pála skilja að reynt sé að klípa af leikskólum eins og annars staðar. „En það er erfitt að skera niður kerfi sem aldrei var í neinu góðæri. Það vita allir sem þekkja til leikskóla- starfs á Íslandi að þar er alltaf haldið mjög spart á. Þess vegna finna þessar stofnanir meira fyrir niðurskurði en hinar, sem voru betur staddar í góðærinu,“ segir hún. Þess má geta að orðið „grunn- þjónusta“ er ekki að finna í lögum um leikskóla. klemens@frettabladid.is Öll skerðing kemur við grunnþjónustu Það er óraunhæft af borginni að segjast ekki ætla að skerða grunnþjónustu til leikskóla, því leikskólar eru fyrst og fremst grunnþjónusta, segir formaður sjálf- stæðra skóla. Engin skilgreining er til um það hvað sé grunnþjónusta. NÆRINGIN KÆRKOMNA Grunnþjónusta leikskóla felst meðal annars í því að ala upp og næra börnin, segir Margrét Pála. Skilgreiningin er ekki til hjá borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN RAGNAR SÆR RAGNARSSON MARGRÉT PÁLA ÓLAFSDÓTTIR Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Listdansskóli Íslands - nemendasýning framhaldsdeildar (Stóra sviðið) Sindri Silfurfiskur (Kúlan) Maríuhænan (Kúlan) Oliver! (Stóra sviðið) Leitin að jólunum (Leikhúsloftið) Utan Gátta (Kassinn) Brennuvargarnir (Stóra sviðið) Sun 29/11 kl. 20:00 U Sun 13/1 kl. 15:00 Sun 27/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00 Fim 3/12 kl. 17:00 Fös 4/12 kl. 10:00 U Lau 5/12 kl. 13:30 Sun 3/1 kl. 16:00 Ö Sun 3/1 kl. 20:00 Ö Lau 9/1 kl. 16:00 Ö Lau 9/1 kl. 20:00 Ö Sun 10/1 kl. 16:00 Ö Sun 10/1 kl. 20:00 Ö Fim 14/1 kl. 19:00 Sun 6/12 kl 13:00 U Sun 6/12 kl. 14:30 Ö Lau 12/12 kl. 11:00 U Lau 12/12 kl. 13:00 U Lau 12/12 kl. 14:30 U Sun 13/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 13:00 U Lau 5/12 kl. 20:00 Ö Fös 8/1 kl. 20:00 Sun 29/11 kl. 17:00 U Mán 30/11 kl. 20:00 Lau 28/11 kl. 15:00 Sun 29/11 kl. 15:00 Lau 12/12 kl. 15:00 Mið 2/12 kl. 10:00 U Mið 2/12 kl. 17:00 Fim 3/12 kl. 10:00 U Lau 26/12 kl. 20:00 U Sun 27/1 kl. 16:00 U Sun 27/12 kl. 20:00 Ö Þri 29/12 kl. 20:00 Ö Mið 30/12 kl. 20:00 Ö Lau 2/1 kl. 16:00 Ö Lau 2/1 kl. 20:00 Ö Lau 28/11 kl. 13:00 Ö Sun 29/11 kl. 13:00 Ö Sun 29/11 kl. 14:30 Ö Lau 5/12 kl. 11:00 Ö Lau 5/12 kl. 13:00 U Lau 5/12 kl. 14:30 U Sun 6/12 kl. 11:00 Ö Fim 3/12 kl. 20:00 Fös 27/11 kl. 20:00 Ö Lau 28/11 kl. 20:00 Ö Mið 30/12 kl. 15:00 Lau 5/12 kl. 15:00 Ö Sun 6/12 kl. 13:30 Sun 6/12 kl. 15:00 Lau 16/1 kl. 15:00 U Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 15:00 Fös 29/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 15:00 Lau 30/1 kl 19:00 Sun 13/12 kl. 14:30 Ö Lau 19/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 13:00 Ö Lau 19/12 kl. 14:30 Ö Sun 20/12 kl. 11:00 Ö Sun 20/12 kl. 13:00 U Sun 20/12 kl. 14:30 Ö Fös 15/1 kl. 20:00 Allra síðasta sýning 29. nóvember kl. 20:00! Miðaverð 1500 kr. - frítt fyrir 12 ára og yngri Yndisleg barnasýning - miðaverð aðeins 1500 kr. Dansleikhús fyrir þau allra minnstu (frá 9 mánaða) - gestasýning frá Noregi Miðasala hafin - einstakt tilboð á gjafakortum til jóla! Barnasýning ársins 2006 - tryggið ykkur sæti Missið ekki af þessari margverðlaunuðu sýningu- allra síðasta aukasýning! Nýjar sýningar komnar í sölu! VIÐSKIPTI Sparisjóðsstjóri Byrs, Ragnar Z. Guðjónsson, hefur ákveðið að láta tímabundið af starfinu í kjölfar húsleitar sérstaks saksóknara hjá Byr á þriðjudag. Í yfirlýsingu segist Ragnar víkja til að skapa frið um störf sparisjóðs- ins og eyða mögulegri tortryggni vegna málsins. Ragnar segist í yfirlýsingunni telja að störf hans fyrir Byr hafi í öllu samræmst lögum. Hann fagn- ar því þó að málið sé í skoðun og að vafa um það hvort eðlilega var staðið að málum verði í kjölfarið eytt. Rannsókn sérstaks saksóknara snýr að kaupum eignarhaldsfélags- ins Exeter Holding á stofnfjárbréf- um í Byr fyrir 1,1 milljarðs lán frá Byr. Bréfin voru meðal annars í eigu MP Banka og stjórnarfor- manns Byrs. Sum bréfin höfðu áður verið í eigu félagsins Húnahorns, félags sem Ragnar Z. Guðjónsson átti og var í forsvari fyrir. Í yfirlýsingu sinni áréttar Ragn- ar að engin tengsl hafi verið á milli Húnahorns og Exeter Holding áður en Exeter eignaðist bréfin í kjölfar veðkalls MP Banka. Ragnar mun að ósk stjórnar Byrs starfa áfram að verkefnum sem tengjast fjár- hagslegri endurreisn sparisjóðs- ins. Ekki náðist í Ragnar í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. - sh Sparisjóðsstjóri Byrs víkur í kjölfar húsleitar sérstaks saksóknara: Ragnar fer í tímabundið leyfi RAGNAR Z. GUÐJÓNSSON Sparisjóðs- stjórinn segir í yfirlýsingu að störf hans hafi í öllu samræmst lögum. SVEITARSTJÓRNIR „Þetta er að mati bæjarfulltrúa algerlega óásætt- anleg framkoma í garð íbúa svæðisins,“ segir bæjarstjórn Reykjanesbæjar sem eins og bæj- arráð Voga tekur undir sjónarmið Brunavarna Suðurnesja varðandi niðurskurð í framlögum ríksins til sjúkraflutninga. „Ríkið hefur nú ákveðið ein- hliða að greiða 70 milljónir króna fyrir sjúkraflutninga sem kosta 130 milljónir króna á ári,“ segir bæjarstjórn Reykjanesbaæj- ar. „Með þessu framferði hefur ríkið einhliða sagt upp samningi um sjúkraflutninga á sama tíma og upplýst er að verulega skort- ir á að HSS sitji við sama borð í fjárlögum og aðrar sjúkrastofn- anir.“ Bæjarráð Voga segir heilbrigð- isráðuneytið þegar hafa lokað heilsugæsluseli í Vogum og ætlast nú til að íbúar greiði niður sjúkra- flutninga enn meira en áður. „Ríkið getur ekki ætlast til að íbúar í Vogum, Garði og Reykja- nesbæ taki á sig byrðar vegna samninga sem ríkið telur sig ekki geta staðið við,“ segir bæjarráðið sem vill að heilbrigðisráðuneyt- ið geri tillögu um leiðréttingu á misræmi sem sé milli Suðurnesja og annarra svæða varðandi heil- brigðisþjónustu. Þá er hermt upp á þingmenn kjördæmisins loforð um liðsinni. - gar Bæjarráð og Brunavarnir Suðurnesja mótmæla niðurskurði til sjúkraflutninga: Íbúar taka ekki byrði ríkisins ÁREKSTUR Á REYKJANESBRAUT Í nógu er að snúast í sjúkraflutningum á Reykjanesi, meðal annars vegna umferðarslysa á Reykjanesbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BLÓÐUGAR HENDUR Mótmælandi í gervi Tony Blair, fyrrverandi forsæt- isráðherra Bretlands, sýnir blóðugar hendur til að vekja athygli á rannsókn á tildrögum innrásarinnar í Írak fyrir tæpum sjö árum. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur gert Samkeppniseftirlitinu (SE) að eyða átján tölvuskeytum sem stofnun- in lagði hald á við húsleit í höfuð- stöðvum fyrirtækisins Valitor í sumar. Héraðsdómur hafði áður hafnað kröfunni. Forsvarsmenn Valitor fullyrtu að skeytin tengdust ekki málinu sem væri í rannsókn og því bæri að eyða þeim. Þessu mótmælti SE. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að SE hafi haft gögnin undir hönd- um í ríflega fimm mánuði án þess að taka rökstudda afstöðu til þess hvort þau séu nauðsynleg rann- sókninni. Því sé krafa Valitor tekin til greina. - sh Samkeppniseftirlitið: Þarf að eyða 18 tölvuskeytum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.