Fréttablaðið - 27.11.2009, Qupperneq 22
22 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 10 Velta: 40,6 milljónir
OMX ÍSLAND 6
785 +0,19%
MESTA HÆKKUN
MAREL +0,65%
MESTA LÆKKUN
FØROYA BANKI -0,75%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 166,00
+0,00% ... Bakkavör 1,35 +0,00% ... Føroya Banki 133,00 -0,75%
... Icelandair Group 3,85 +0,00% ... Marel 62,30 +0,65% ... Össur
133,50 +0,00%
Bakkavör Group tapaði 14,1
milljón punda, jafnvirði 2,9
milljarða króna, á þriðja árs-
fjórðungi. Á sama tíma í fyrra
nam tapið 19,6 milljónum
punda.
Tekjur námu 33,7 milljónum
punda á tímabilinu, sem jafn-
gildir 6,7 milljörðum króna.
Þetta er tvöföldun á milli ára.
Handbært fé að frádregnum
sköttum, gjöldum og einskipt-
ikostnaði jókst um 86 prósent
frá sama tíma í fyrra og nam
það 66,5 milljónum punda í lok
þriðja fjórðungs.
Ágúst Guðmundsson, for-
stjóri Bakkavarar, sagði á upp-
gjörsfundi félagsins í gær að
viðræður hefðu staðið yfir við
innlenda lánardrottna móður-
félagsins og séu eigendur sjötíu
prósent krafna Bakkavarar til-
búnir til að framlengja gjald-
daga á lánum til 2014. Helstu
kröfuhafar félagsins eru
íslenskir lífeyrissjóðir.
Bakkavör Group er móð-
urfélag erlendra rekstrarfé-
laga, sem fyrr á árinu tryggðu
sér endurfjármögnun til 2012.
Ágúst sagði þetta mikilvæg-
an áfanga þótt enn ætti eftir að
útfæra kjör og aðra skilmála
nánar. Hann gerði ráð fyrir að
stutt væri í niðurstöðu málsins.
Erlendir greiningaraðilar
segja rekstrarbata Bakkavarar
góðan, það skýrist af hagræð-
ingu í rekstri og aukinni sölu,
ekki síst í Bretlandi. - jab
Afkoma Bakkavarar batnar
ÁGÚST GUÐMUNDSSON Forstjóri
Bakkavarar segir sjötíu prósent kröfu-
hafa félagsins tilbúna til að lengja í
lánum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,74 pró-
sent á milli mánaða í nóvember og fór verð-
bólgan við það úr 9,7 prósentum í 8,6 í mán-
uðinum. Fyrir ári mældist í 17,1 prósents
verðbólga.
Nú munar mestu um verðhækkun
á fatnaði og gjafavöru auk elds-
neytis. Verð á fötum hækkaði
um 3,4 prósent en á húsbúnaði
og heimilistækjum um 2,8
prósent. Þá hækkaði elds-
neytisverð um 3,5 prósent
á milli mánaða. Lítil sem
engin breyting varð hins
vegar á verði matvöru og
húsnæðis.
IFS Greining segir
þriggja mánaða verðbólgu
gefa betri mynd af undir-
liggjandi verðbólgu. Hún
mælist nú 11,2 prósent og skýrist það af síð-
búnum áhrifum gengisveikingar og skatta-
hækkunum. IFS segir verðbólguþróun
kunna að verða verulegt áhyggjuefni fyrir
Seðlabankann enda grafi hún undan gengi
krónunnar.
Á sama tíma virðist allt
hvíla á að gengi krónunn-
ar styrkist: Efnahags-
reikningur fyrirtækja
og heimila, auk þess
sem kostnaður við
Icesave-samning fari
eftir því og ljóst að
eigi kostnaður vegna
samningsins ekki
að fara fram úr hófi
megi gengi krónu ekki
veikjast mikið frekar,
að sögn IFS. - jab
Verðbólga mælist 8,6%
EFNAHAGSMÁL Aukið getur á verð-
sveiflur á fasteignamarkaði að
meirihluti fólks búi í eigin hús-
næði. Þetta kom fram í máli Gwil-
ym Pryce, prófessors í hagfræði
og félagsvísindum við háskólann í
Glasgow á norrænni ráðstefnu um
fasteignamarkaðinn sem fram fór
í Reykjavík í gær.
Prófessor Gwilym Pryce hvatti
til frekari rannsókna á kjörhlut-
falli íbúðareigenda og leigjenda
í hverju samfélagi. Hér eiga yfir
80 prósent eigið húsnæði. Pryce
vísaði til dæmis til Bretlands þar
sem yfir 70 prósent búa í eigin
húsnæði og benti á að skuldsetn-
ing landsins í samhengi við lands-
framleiðslu væri mikil. Til sam-
anburðar benti hann á að hlutfall
íbúðareigenda í Þýskalandi væri 43
prósent og skuldsetningarhlutfall-
ið mun lægra. Eftir því sem færri
byggju í eigin húsnæði minnkaði
næmi landsins gagnvart fjármála-
kreppunni og verðfalli eigna.
Þá bendir Pryce á að blönduð
byggð misefnaðs fólks auki viðnám
í efnahagskreppum. „Þegar íbúð er
tekin eignarnámi hefur það áhrif
á nærumhverfið. Í hverfum þar
sem hinir efnaminni hafa safnast
saman er hætt við dómínóáhrifum
sem síður er hætta á í blandaðri
byggð,“ segir hann.
„Núna, í kjölfar kreppu, er rétti
tíminn til að spyrja stórra spurn-
inga,“ segir hann og telur að þegar
hagkerfið taki við sér á ný minnki
áhugi fólks á að gera samfélags-
breytingar. Pryce segir eðlilegt
að setja spurningarmerki við það
hvort allir eigi að búa í eigin hús-
næði. Tilhneiging sé til þess að þeir
tekjulægstu festi kaup á fasteign-
um þegar aðgengi er best að láns-
fjármagni, í miðjum eignabólum
þegar verð er hátt. Sami hópur sé
líklegri til að missa fótanna þegar
herðir á dalnum og atvinnuleysi
eykst. Þetta eitt auki á sveiflur og
þjóðhagslegan kostnað.
Pryce nefndi dæmi um þrjá fast-
eignakaupendur. Sá fyrsti kaupir
íbúð og selur ekki fyrr en að 40
árum liðnum þegar lán eru greidd
upp. Annar kaupir þegar verð er
lágt og selur aftur þegar verð er
hátt og eltir á þennan hátt reglu-
legar sveiflur á fasteignamarkaði
út tímann. Sá þriðji kaupir þegar
verð er hátt og selur eða hrekst út
af fasteignamarkaði þegar verð
er lágt. Samkvæmt útreikning-
um Pryce, sem eiga við Bretland,
hagnast sá fyrsti um sem nemur 16
milljónum króna og númer tvö um
32 milljónir meðan sá þriðji tapar
sem nemur 56 milljónum króna. Af
þessu segir Pryce mega sjá nauð-
syn þess í rannsóknum að huga að
tímasetningu fasteignakaupa. Það
hafi ekki verið gert í nægilegum
mæli til þessa. olikr@frettabladid.is
Fleiri leigj-
endur draga
úr sveiflum
Ónóga athygli hefur tímasetning íbúðakaupa fengið.
Blönduð byggð ríkra og fátækra hefur meira viðnám
í fjármálakreppu. Aukið hlutfall leigjenda kann að
vera þjóðhagslega hagkvæmt. Efnaminni líklegri til
að kaupa á versta tíma.
Á RÁÐSTEFNU NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR Gwillym Pryce segir að bankar
þurfi að breyta viðskiptaháttum og leggja áherslu á siðlegar lánveitingar. Þeir eigi að
huga að hag lántakenda til lengri tíma. Slíkt dragi úr sveiflum sem komi bönkunum
líka til góða því með því dragi úr hættu á bankaáhlaupum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íslandsbanki hefur fengið end-
urskoðunarfyrirtækið KPMG til
liðs við sig til þess að ljúka við
fjárhagslega endurskipulagn-
ingu Ingvars Helgasonar ehf., að
því er fram kemur í tilkynningu
bankans, sem er stærsti lánveit-
andi umboðsins.
Fram til þessa hefur endur-
skipulagningin farið fram undir
forystu Hauks Guðjónssonar for-
stjóra og Kristins Þórs Geirsson-
ar stjórnarformanns.
„Þeir hafa nú kosið að stíga til
hliðar og eru þeim þökkuð góð
störf,“ segir í tilkynningunni.
Fram undan er sagður loka-
hnykkur endurskipulagningar
félagsins. - óká
KPMG aðstoð-
ar Íslandsbanka