Fréttablaðið - 27.11.2009, Síða 40
4 •
EMILÍANA TORRINI er ekki búin að
gleyma okkur þrátt fyrir mikla
velgengni og ætlar að
halda tónleika á Íslandi
í febrúar á næsta ári.
Góður vinur Skagamannsins Högna Haraldssonar sendi okkur þessa
mynd af honum. Vinurinn sagði að Högni væri sláandi líkur fótboltahetj-
unni Fernando Torres. Hann bætti við að Högna þætti það ekki leiðin-
legt og gæti jafnvel notað útlit Spánverjans til að skora hjá stelpunum,
þrátt fyrir að vera harður stuðningsmaður Manchester United.
Átt þú vin sem líkist einhverjum frægum? Er bróðir
þinn alveg eins og Nicolas Cage eða er besta vin-
kona þín sláandi lík Katy Perry? Sendu okkur mynd
á popp@frettabladid.is eða SMS í síma 696 POPP
(696 7677) og hún gæti birst í næsta tölublaði.
TVÍFARAR FRÆGA FÓLKSINS
ÞAÐ SEM ÞÚ ÞARFT:
Vígt vatn
Biblía
Kaðall
FRAMKVÆMA
SÆRINGU
Það er stórhættulegt
að framkvæma sær-
ingu á þeim sem eru
ekki andsetnir. Gættu
þess líka vel að sá
eða sú sem særingin
er framkvæmd á sé
ekki með geðsjúk-
dóm. Bittu niður
þann andsetna og
plastaðu rúm og nær-
liggjandi húsgögn.
Ákallaðu drottin á
ákveðinn hátt og
farðu með bænir úr
kristinni trú. Skipaðu
djöflinum að yfirgefa
líkama hins andsetna
og ekki taka nei fyrir
svar. Signdu þig og
reyndu að signa hinn
andsetna. Það getur
verið gott að endur-
taka þetta skref.
Skvettu vígðu vatni
á hinn andsetta á
þeim andartökum
sem bænin leyfir.
Reyndu að skvetta
í augu og opin sár.
Skipaðu djöflinum að
sýna sig og búðu þig
undir uppköst hins
andsetna. Endurtaktu
skref 2, ef þarf. Gangi
þér vel.
HVERNIG Á AÐ …
# # #
Auðæfi Fernando Torres
eru metin á fjórtán milljón-
ir punda, en samkvæmt
núverandi gengi eru það
um 2,8 milljarðar íslenskra
króna. Hann er kvæntur
æskuástinni sinni, Olalla
Domínguez Liste, en
þau giftust fyrr á árinu.
Þau eiga eina dóttur,
sem fæddist á árinu og
hlaut nafnið Nora Torres
Domínguez. Fernando
Torres hefur barist við
meiðsli á tímabilinu,
en er samt næstmarka-
hæsti leik maður ensku
úrvals deildarinnar, á eftir
Jermain Defoe.
● RÍKUR TORRES
POPPKVARÐINN
Nú fara jólin að koma og í
pakkanum er skattahækk-
un. Svo þegar jólasvein-
arnir fara kemur Emilíana
Torrini í staðinn. Lífið gæti
ekki verið betra!
INTERPOL ætlar að
gefa út plötu snemma
á næsta ári. Meðlimir
hljómsveitarinnar lofa
svipaðri tónlist og
á fyrstu plötunni,
snilldarverkinu
Turn on the Bright
Lights.
BOTNLEÐJA er byrjuð að æfa aftur.
Nú þarf bara að bóka gigg á Grand
rokki og þá getum við stokkið
aftur um nokkur ár. Bless kreppa.
ÁSDÍS RÁN
verður í Hag-
kaupsbæklingnum
á næstunni. Það
verður vonandi
djúsí. Ef þú finnur
bæklinginn inni á
klósetti í vinnunni,
ekki taka hann
upp.
HAFDÍS HULD er flutt til Íslands.
Þurfum við þá nokkuð að hlusta
oftar á lagið um köngulóna?
M
E
Ð
O
K
K
U
R
Á
M
Ó
T
I O
K
K
U
R
JÓLIN eru að
koma. Það er
svona bæði
og.
LIVERPOOL er dottið út
úr Meistaradeildinni. Jájá,
það er Liverpool-maður
að skrifa þetta. Svo er
alltaf leiðinlegt að horfa á
eftir ensku liðunum svona
snemma. Látið ekki svona.
SKATTAR hækka. Bæði tekjuskattur og
skattur á nammi og áfengi. Það verður
sem sagt dýrara og dýrara að hella bjór út í
M&M. Í vinnunni.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Viðurkenndar
stuðningshlífar
í úrvali