Fréttablaðið - 27.11.2009, Qupperneq 42
6 •
Tónlistarmanninum Gísla
Galdri Þorgeirssyni þykir
ákaflega vænt um græj-
urnar sínar. Mest þykir
honum þó vænt um
nýfædda dóttur sína sem
gæti átt framtíð fyrir sér
sem þungarokkstrommari.
„Þetta byrjaði þegar ég keypti fyrstu
DJ-græjurnar mínar,“ segir Gísli
Galdur um græjuáhuga sinn. „Þegar
ég var lítill átti ég aldrei leikjatölvur
eða neitt þannig. Ég kem ekki frá
mjög tölvusinnuðu heimili en í seinni
tíð hef ég orðið smá tölvunörd.
Þetta kom svona hægt og bítandi
og þetta er búið að vera langverst
seinustu árin.“
Áttu erfitt með að standast freist-
inguna þegar þú stendur slefandi
yfir einhverri græju úti í búð? Stekk-
urðu á hana án þess að hugsa þig
tvisvar um?
Nei, ég er ekki alveg svo sjúkur
enn. Ég tók smá flipp í góðærinu
og keypti analog-syntha, sem var
mín 2007-eyðsla. Það var líka bara
góð fjárfesting enda eru þeir ekkert
búnir að falla í verði. Eins og staðan
er núna kaupir maður sér græjublöð
og lætur sig dreyma. Maður er ekki
beint á eBay þessa dagana,“ segir
hann og kímir. „Ég keypti rosamikið
af synthum á eBay. Maður datt oft
niður á einhverja góða díla. Ég hef
alla vega ekki verið svikinn enn í
gegnum eBay.“
Gísli hefur einnig keypt græjur
á ferðalögum sínum erlendis. „Það
er gaman að fara í notaðargræju-
búðir. Það er ein í New York sem er
fáránlega lítil. Það er rosalega hátt
til lofts en það komast örugglega
tveir þangað inn í einu. Þarna er
rosalega þröngur gangur og bara
troðið af græjum. Við erum að tala
um marga metra upp í loft. Það er
mjög gaman að skoða það, nema
gaurinn sem á þetta er rosalega
leiðinlegur, svona týpískur pirraður
New York-ari.“
Hvað ertu eiginlega búinn að eyða
miklu í græjur síðan þú gerðist græju-
og tölvunörd?
„Þetta er náttúrulega ómetanlegt
allt saman því maður er búinn að
nota þetta í alls konar músík. Þetta
er örugglega verðmætara en bíllinn
minn.“
Í gegnum árin hefur Gísli sankað
að sér ótalmörgum græjum sem,
sumar hverjar, eru í lítilli notkun. Þá
er ekki úr vegi að taka til sinna ráða
og hreinsa aðeins til, enda komin ný
manneskja í heiminn sem þarf að
sjá fyrir. „Í kreppunni þarf maður
að reyna að selja eitthvað af þessu
sem maður notar ekki því núna þarf
maður að fara að kaupa bleyjur,“
segir hann og á þar við hana Bríeti
Eyju sem fæddist 19. október síðast-
liðinn. Spurður hvort sú litla muni erfa
græjuáhuga föður síns segir hann
það vel hugsanlegt. „Ég held að hún
gæti vel orðið metaltrommari. Núna
þarf maður að reyna að finna lítið
trommusett handa henni.“
freyr@frettabladid.is
FRUMBURÐURINN ER
VERÐMÆTASTA OG
NÝJASTA GRÆJAN
VERKEFNIÐ
Ég er að vinna plötu með
Jóni Atla Helgasyni, Hair-
doctor. Við erum komnir
með nýja hljómsveit sem
heitir Human Woman.
Þetta byrjaði sem remix-
verkefni en síðan fórum
við að vinna lög og erum
komnir af stað. Ég held
við ætlum að reyna að
gefa út plötu. Síðan er
ég að fara í óperu sem
heitir Farfuglinn sem á að
vera í Salnum í Kópavogi.
Messíana Tómasdóttir
skrifar óperuna upp úr H.
C. Andersen-sögu. Þetta
er í fyrsta skipti sem
maður reynir við það.“
POPPGÚRÚINN: GÍSLI GALDUR KEYPTI ANALOG-SYNTHA Í GÓÐÆRINU
DÓTAKASSINN
„Það sem ég nota örugglega mest er Roland Juno-60
analog hljóðgervill, stundum með „dass“ af Roland Space
Echo-i og síðan en ekki síst Apple Imac-tölvuhesturinn
minn sem tekur upp allt sem ég segi honum að taka upp.
Fleiri uppáhaldsgræjur eru til dæmis Korg Delta og Roland
SH-101 analog hljóðgervlar. Kúabjallan og alls kyns hristur
eru líka mjög mikilvægir hlutir í mínu stúdíói enda er oftar
en ekki verið að taka upp tónlist með „bíti“ í.“
NÝJA GRÆJAN
„Bríet Eyja Gísladóttir.
Fékk hana núna um miðj-
an október og er rosa
ánægður með hana. Hún
er verðmætasta græjan
sem ég á og hún gerir
alls kyns skemmtileg
hljóð og svona. Einnig
fékk ég fyrir stuttu mónó
hljóðgervil sem heitir
Dave Smith Moph. Hann
er mjög skemmtilegur en
kemst ekki nálægt Bríeti í
svo mörgu.“
MEÐ NÝJUSTU GRÆJUNA
Gísli heldur á nýfæddri dóttur sinni
innan um uppáhaldsgræjurnar sínar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM