Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 43

Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 43
 • 7 Einar Thor gerir armbönd undir nafninu Thor‘s Hammer og vinnur þau alfarið sjálfur. Hann verkar meira að segja nautsleðrið. Einar Thor hefur hannað leðurarmbönd undir nafninu Thor‘s Hammer síðastliðin tvö ár og vakið nokkra athygli fyrir. Armböndin eru meðal annars unnin úr nautsleðri og fiskroði og sækir Einar Thor innblástur sinn mikið í íslenska goðafræði. Einar hefur verið búsettur í Danmörku und- anfarin ár og hefur stundað nám meðal annars í iðnhönnun, vefhönnun og innanhússarkitektúr og nýlega komst hann inn í Inkubator sem er fyrsta frumkvöðlahús Kaupmannahafnar, ásamt því að sækja um í frumkvöðlanám í Niels Brock Business College. „Ástæðan fyrir því að ég fór að hanna armböndin var sú að mér fannst erfitt að fá flott leðurarmbönd og ákvað því að búa þau til sjálfur,“ útskýrir Einar sem tekur fram að hann verki sjálfur leðrið. „Ég vinn þetta allt frá a til ö. Ég vinn mest með nautsleður en hef einnig unnið með snákaskinn og fiskroð.“ Þó að Einar sæki innblástur sinn til ásatrúar seg- ist hann sjálfur vera trúleysingi. „Ég er sjálfur ekki ásatrúar, en við eigum alveg einstakan sagnaarf sem auðvelt er að sækja innblástur í.“ Einar vinnur nú að nýrri skartgripalínu, Rokk- meister, sem hann hannar ásamt gullsmiðnum Jónasi Breka Magnússyni. Auk þess vinnur hann hörðum höndum að því að koma Þórshamri í versl- anir á Norðurlöndunum, en sala er hafin í Bretlandi og Frakklandi. „Það er búin að vera mikil eftirspurn eftir Þórshamri og ég stefni á að koma þessu í búðir strax á næsta ári. Ef einhverjir hafa áhuga á að taka Þórshamar til sölu heima á Íslandi þá mega þeir endilega hafa samband.“ - sm POPPTÍSKA: EINAR THOR HANNAR LEÐURARMBÖND Í DANMÖRKU NÝ LÍNA Einar hefur nýlega hafið að framleiða sérstakar ullarpeysur undir nafninu Thor‘s Hammer. INNBLÁSTUR Í ÁSATRÚ Hér má sjá eitt af armböndunum sem Einar hannar. Hann sækir innblástur í íslenska goðafræði. SÆKIR INNBLÁSTUR Í ÁSATRÚNA EINAR THOR Einar hannar leðurarmbönd undir nafninu Þórs- hamar. Hann er bú- settur í Danmörku. Önnur plata Vampire Weekend er væntanleg 12. janúar. Hún heitir Contra og fylgir eftir fyrstu plötu bandsins sem kom út 2007 og vakti verðskuldaða athygli. Miðað við fyrstu smáskífuna af Contra, hið æpandi hressa lag „Cousins“, er hljómsveitin enn að blanda saman frískandi gítar- poppi, Afríkutökt- um og hátóna söng aðalmannsins Ezra Koenig. Margir ættu því að bíða spenntir eftir Contra. NÝTT FRÁ VAMPIRE WEEKEND

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.