Fréttablaðið - 27.11.2009, Side 46

Fréttablaðið - 27.11.2009, Side 46
10 • Bloodgroup sendi frá sér frumburðinn, Sticky Situation, í lok ársins 2007 og póstnúmerið 700 varð skyndi- lega svalt á ný. Tónlistin var hrein danstónlist, drifin áfram af hörð- um trommutöktum og baneitruðum syntha-bassalínum, og söngparið Lilja og Janus sungu á víxl; Janus eins og andsetinn maður og Lilja eins og engill. Frábært kombó sem skapaði skemmtilega kontrasta í tónlistinni. Ég hitti systkinin Lilju og Hall á Prikinu (599 póstnúmerum frá Egilstöðum) og átti við þau stutt en afar ánægjulegt spjall. Jæja, hvað heitir nýja platan? Lilja: „Dry Land.“ Og hvernig berið þið hana saman við þá fyrri? Hallur: „Fyrir okkur er þetta nokkuð rökrétt framhald af fyrri plötunni, allavega fyrir okkur. Við vorum ekki beint starfandi hljómsveit þegar við gerðum hina plötuna. Við bjuggum öll hvert á sínum staðnum, hittumst bara annað slagið og tókum upp búta.“ Lilja: „Við vorum að gera fyrstu plöt- una þegar ég var enn þá í menntó. Við erum farin að pæla aðeins meira í textum núna. Á fyrri plötunni var maður aðallega að semja svona „Get your ass on the dancefloor“- texta, en nýju textarnir eru á aðeins alvarlegri nótum.“ Hvar var platan tekin upp? Hallur: „Hún er að mestu leyti tekin upp í stúdíóinu okkar niðri á Granda, sem heitir Stúdíó Síld.“ Lilja: „Við byrjuðum að semja hana og pródúsera fyrir ári.“ Hallur: „Já, við byrjuðum úti í Berlín. Við vorum með hús þar, þar sem við vorum með stúdíó.“ Og þið takið upp sjálf? Hallur: „Jú.“ Það hafa orðið einhverjar manna- breytingar ekki satt? Lilja: „Við erum fjögur eftir.“ Hallur: „Þetta er samt í raun sami mannskapur og tók upp fyrri plötuna. Í millitíðinni hefur fólk hins vegar komið og farið.“ Lilja: „Styrmir og Benni voru aðal- lega að spila með okkur læf, en í upptökum hafa þetta mestmegnis verið við.“ Hallur: „Já eiginlega bara við. Það þróaðist eiginlega aldrei út í það að þeir tækju þátt í stúdíóvinnunni með okkur.“ Hvað er fram undan á tónleikadag- skrá Bloodgroup? Hallur: „Við erum að spila í desember í London á vegum IMX. Þetta eru sem sagt allar Norðurlandadeild- irnar saman með þetta kvöld og það kemur ein hljómsveit frá hverju landi. Fyrirbærið kallast „JAJAJA“ og er hugsað sem svona mánaðarlegt Norrænt klúbbakvöld.“ (John Kennedy sem sér um Xpos- ure á XFM-útvarpsstöðinni valdi tónlistarmenninina sem koma fram í jólapartíi JAJAJA en þeir eru: Harrys Gym frá Noregi, Sofia Talvik frá Sví- þjóð og Bloodgroup frá Íslandi.) Ætlið þið að fara í tónleikaferð í kjölfar plötunnar? Hallur: „Ég býst við að við förum ekki í neitt af viti fyrr en næsta sumar. Við spilum kannski á einstaka tónleikum fram að því en það verður engin svona löng tónleikaferð.“ Lilja: „Við reynum að sjálfsögðu að gera sem mest af því að spila úti en það getur verið svolítið erfitt. Það kostar náttúrulega peninga og svo er líka mikið að gera.“ Hvað gerið þið þegar þið eruð ekki að hljómsveitast? Hallur: „Ég er búinn að vera að hljómsveitast síðasta eina og hálfa árið.“ Lilja: „Og ala upp krakka.“ Hallur: „Já, og hef ekki verið að vinna neitt.“ Lilja: „Ég er í sálfræði í Háskólanum og alveg á fullu í því. Raggi, Janus og Hallur eru aðallega búnir að vera í þessari vinnu sem fylgir því að pródúsera plötuna, og ég verið að hlaupa úr Bókhlöðunni til að taka upp söng.“ Hvernig græjur notið þið? Hallur: „Við hættum að nota tölvur fyrir einu og hálfu ári síðan. Í staðinn notum við trommuheila og samplera. Síðan erum við með analog synth- eseisara, svona af gamla skólanum. Síðan erum við með læf radd-effekta. Við setjum raddir Janusar og Lilju í gegnum mixer sem ég er með, þannig að ég get sent þær út með alls konar „delay“ og „reverb“ og effektað.“ Ef á morgun yrði aftur árið 1990 væruð þið í góðum málum læf? EKKERT ÓGÆFUFÓ Í inngangi viðtals við hljómsveitina Bloodgroup er nauðsynlegt að þrennt komi fram. Hljómsveitin er frá Egilsstöðum, Egilsstaðir færðu okkur Súellen á níunda áratugnum og það eru systkini í hljómsveitinni Bloodgroup. Þar með höfum við afgreitt klisjurnar þrjár og getum vonandi haldið áfram. Fæst viðtöl sem ég hef lesið við sveitina hafa náð að kafa dýpra en þetta, og þau í Bloodgroup eru ör- ugglega orðin hundleið á hugmyndasnauðum blaðamönnum með spurningar á borð við: „Jæja, hvernig er svo að vera með Færeyingi í hljómsveit?“ Fyrsta lagið sem fær að hljóma af Dry Land nefnist „My Arms“. Janus er í aðalhlutverki í laginu og í fyrsta skipti fá hlustendur að heyra mýkri hlið hans sem söngvara. Lagið er í rólegri kantinum og bakraddir Lilju gæða lagið lífi og enn meiri mýkt. Fallegar strengjaútsetningar setja svo punktinn yfir i-ið og eftir nokkrar hlustanir er þetta lag búið að festa sig kirfilega í heilaberki mínum. Frábært lag og eitt það allra besta sem ég hef heyrt frá Bloodgroup. A plús! ORÐ: Haukur V. Alfreðsson MYNDIR: Vilhelm Gunnarsson Í TAKT VIÐ FORTÍÐINA Bloodgroup gæti horfið aftur til ársins 1982 án þess að þurfa að endurskipuleggja tækjakostinn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.