Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 59

Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 59
FÖSTUDAGUR 27. nóvember 2009 3 „Það á að verða gaman fyrir fjöl- skyldur að koma og hlusta á falleg jólalög,“ segir Ragnhildur Ásgeirs- dóttir, djákni í Fella- og Hóla- kirkju, um tónleikana í Ráðhúsinu á morgun. Hún er stjórnandi kórs listasmiðjunnar Litrófs sem heldur tónleikana og er nýbúinn að gefa út disk. Litróf er listasmiðja fyrir börn frá átta ára aldri, bæði íslensk og af erlendu bergi brotin, og er hluti af innflytjendaverkefni kirkjunnar sem hófst 2007. Að sögn Ragnhild- ar dansa börnin mikið í listasmiðj- unni, syngja, mála, semja og setja upp leikrit og svo er farið í ferða- lög eina eða tvær helgar á ári. Auk Ragnhildar taka Guðný Einarsdótt- ir, organisti kirkjunnar, og Heiðr- ún Guðvarðardóttir þátt í starf- inu. Foreldrar leggja því líka lið og styðja við starfsemina, ásamt stofnunum og félagasamtökum. En nú snýst starfið mest um kór- inn. Í honum eru um fimmtíu stelp- ur, þar af um 15-20 af hinum ýmsu þjóðernum, en Ragnhildur segir þær allar vel talandi á íslensku. „Við erum að hefja okkar þriðja starfsár og undirbúningur útgáfu disksins er búinn að standa í heilt ár því mikil vinna hefur verið lögð í hann. Það eru allt frábær- ir tónlistarmenn sem að honum koma. Hilmar Agnarsson, organ- isti í Landakotskirkju, var okkar listræni stjórnandi en hann hefur mikla reynslu af barnakórsstarfi og upptökum. Lögin eru öll íslensk fyrir utan eitt sem er norskt en sungið við íslenskan texta. Svavar Knútur er gestasöngvari og flyt- ur þarna tvö ný jólalög sem hann samdi, eitt lag er eftir Karl Hall- grímsson en hin eftir mig,“ lýsir kjarnakonan Ragnhildur. Þess má geta að tvö lög af diskinum eru notuð í nýju kvikmyndinni Desem- ber sem byrjað er að sýna í bíóhús- um. Stúlkurnar í kórnum eru frá átta ára upp í fimmtán og Ragnhild- ur segir hópnum verða skipt upp eftir áramót. Fram að því verður hann að syngja úti um hvippinn og hvappinn, eins og hún orðar það, hjá eldri borgurum, á aðventu- kvöldi í kirkjunni og víðar. gun@frettabladid.is Fjölþjóðakór Fella- og Hólakirkju flytur jólalög Tjarnarsalur Ráðhússins mun óma af söng á morgun er kór listasmiðjunnar Litrófs úr Fella- og Hóla- kirkju heldur þar útgáfutónleika klukkan 15. Þeir eru opnir öllum endurgjaldslaust sem áhuga hafa. Stúlkurnar í kór Litrófs eru á aldrinum átta ára til fimmtán. Ragnhildur djákni og stjórnandi er lengst til hægri. MYND/FELLA- OG HÓLAKIRKJA Loðin ljósatré og krans úr íslenskri sauðargæru eru meðal þess sem hönnuðurinn Bjargey Ingólfsdóttir hefur sett upp í anddyri IKEA en síðasti sýningardag- ur er á sunnudag. Hönnun Bjarg- eyjar er einlægt framtak til nýsköp- unar að hennar sögn. Alls kyns efni leika í höndum henn- ar og sem fyrr tengir hún vörur sínar móður- málinu í sinni fegurstu og frumlegustu mynd. Á sýningunni í IKEA má sjá heiðarlegustu hönnun landsins, hamingjuna í nýrri útfærslu, fallega tösku sem táknar farangur hvers og eins í líf- inu, einnig farangur frjálshyggj- unnar sem er skurðarfjöl fyrir flatan niðurskurð í heimilishaldi og tösku úr mjölsigti fyrir Íslend- inga í dag sem eiga að hafa allt gegnsætt og gagnlegt. „Matur er dýr og dýr eru líka matur“, eru orð Bjargeyjar og út frá þeim hefur hún hannað dýr- leg búsáhöld úr IKEA-hlut- um. Í ljósastöðinni hennar má sjá ljós úr spaghettípotti og rosabaug/englabaug úr íslenskri sauðar- gæru sem skapar hlý- lega stemningu. Gjafa- tré úr þróunarskeiðum á að tákna gnægð öllum til handa og jóladaga- talið eftirvæntingu. Ærleg íslensk jóla- tré og englabaugur Með von í hjarta um betri tíma var búsáhöldum eins og písknum beitt til að knýja fram breytingar á Íslandi. Rosabaugur eða englabaug- ur úr íslenskri sauðargæru skapar hlýlega stemningu. Hér höfðar Bjargey til búsáhaldabyltingarinnar og færir IKEA-vörur í annan búning en venjulega. Ærlegt íslenskt jólatré. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.