Fréttablaðið - 27.11.2009, Qupperneq 70
38 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Leiklist ★★
Jólasaga
Eftir Charles Dickens
Leikgerð: Jón Gunnar Þórðarson, Egill Antonsson og Sindri Þórsson.
Tónlist og hljóðmynd: Heyr heyr. Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson.
Framleiðandi: Bjarni Haukur Þórsson.
Vonbrigði frá Ladda
Laddi einn á sviðinu í sjötíu mínútur er
í sjálfu sér ekki galin viðskiptahugmynd.
Hann náði því fyrr á þessum vetri að
draga hátt í fjörutíu þúsund gesti á
heldur slaka bíómynd, sextugsafmælis-
sýning hans teygði sig á endanum yfir
nokkur ár og komst í hóp tíu mest sóttu
leiksýninga sögunnar. Er slíkur kraftur
ekki tilvalinn til að rekja sögu með örfá-
um persónum? Hann er jú kunnur af
því að skjótast milli skopstælinga með
grettu, breyttum róm, á augnabliki?
Sagan af nirflinum Skröggi hefur
þann galla einan svo kunn sem hún
er að allir þekkja endann. Langflestum
áhorfendum kemur ekkert í henni
lengur á óvart. Óttinn sem hún færir
okkur er tvenns konar, annars vegar
ótti foreldra að missa barn sitt, hins
vegar gamals manns að deyja einn. Í
einleiknum er lítið tækifæri til að gera
eitthvað úr fyrra atriðinu nema skrifa
það inn, gera eitthvað úr því, rétt eins
og eymdinni sem skrifarinn hjá Skröggi
býr við. Eigum við að kalla þetta fléttu 2?
Hitt meginatriðið, ótti gamals manns við dauðann, býr yfir stærra magni
sem birtist okkur í vofunum sem færa Skrögg heim sanninn um dauðleika
hans, það er aftur þraut þung að koma því til skila með einum leikara.
Hvorugt óttaefnið kemst almennilega til skila í leikgerð og sviðsetningu í
Loftkastalanum.
Henni er komið fyrir í hvítu rými sem Laddi getur farið um. Von var að
þessir veggir yrðu þá nýttir til ákasts eða skuggaleiks, en það var ekki nema
rétt í svip. Umhverfi var tjáð með hljóðum en sá miðill var takmarkað nýttur.
Þá var skotið inn í sýninguna sönglögum.
Nú er það raun hálfsjötugum manni að gefa svo mikið á rúmum klukku-
tíma. Hana stóðst Laddi prýðilega, þótt snarari og skýrari mörk hefði mátt
gera á persónum. Framsögn hans var til fyrirmyndar, en margt í gervunum
höfðum við séð áður og heyrt.
Í heildina varð sýningin því vonbrigði, en í henni var efni sem hefði mátt
vinna miklu miklu betur. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Einleikur Ladda vonbrigði.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 27. nóvember 2009
➜ Tónleikar
12.15 Joaquín Páll Palomares, fiðla,
og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó,
flytja Sónötur eftir J.S Bach á tónleikum
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
(Gerðuberg 3-5).
21.00 Stefán Hilmarsson er gestur
Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni „Af
fingrum fram“ á Græna hattinum við
Hafnarstræti á Akureyri.
22.00 María Magn-
úsdóttir ásamt hljóm-
sveitinni Mama‘s Bag,
heldur tónleika á Café
Cultura við Hverfisgötu.
Aðgangur er ókeypis.
22.00 Ljótu hálfvitarn-
ir verða á Rósenberg
við Klapparstíg.
23.00 Bloodgroup og Kimono halda
útgáfutónleika á Sódómu Reykjavík við
Tryggvagötu. Sérstakur gestur er Prins
Póló.
➜ Opnanir
18.00 Harpa Dögg Kjartansdóttir,
Sindri Már Sigfússon, Ingibjörg Birgis-
dóttir og Sigtryggur Bergur Sigmarsson
opna sýningu í gallerí Crymo við Lauga-
veg 41a. Opið þri.-lau. kl. 13-18.
➜ Heimildamyndir
18.00 Í kvikmyndahúsinu Regnbog-
anum við Hverfisgötu hefjast sýningar
á heimildarmyndinni „Rajeev Revisited“
eftir Birtu Fróðadóttur. Nánari upplýs-
ingar á www.midi.is.
➜ Sýningar
Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu
stendur yfir sýningin „Að spyrja náttúr-
una – saga Náttúrugripasafnsins.“ Þar
er að finna fjölda uppstoppaðra dýra
frá öllum heimshornum auk annarra
náttúrugripa og muna úr sögu safnsins.
Opið alla daga kl. kl. 11-17.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Runólfur Smári Steinþórsson
flytur erindi um stefnumiðaða þjónustu-
stjórnun á Háskólatorgi við Sæmund-
argötu 4 (st. 104).
AÐVENTUTÓNLEIKAR
KK &
ELLEN
ÁSAMT HLJÓMSVEIT Í BORGARLEIKHÚSINU
Miðasala í Borgarleikhúsinu á opnunartíma miðasölunnar,
á www.borgarleikhus.is og á www.midi.is
Miðaverð kr. 3.500 | Húsið opnar kl. 21.15
miðvikudagskvöldið
2. desember
kl. 19.30
Auglýsingasími
– Mest lesið