Fréttablaðið - 08.12.2009, Síða 16

Fréttablaðið - 08.12.2009, Síða 16
16 8. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR GÆÐIR SÉR Á GÓÐGÆTI Þessi lemúr í dýragarði í Hamborg gæðir sér á þurrk- uðum ávöxtum í litlu jólastígvéli sem starfsfólkið lét hann fá. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Hann lét sér ekki segjast rútubílstjórinn sem lög- regla stöðvaði í Vík í Mýrdal um helgina, en rútan sem hann ók var ljóslaus. Bílstjórinn gisti á hóteli um nóttina, en hélt snemma af stað austur á bóginn morguninn eftir. Enn var rútan ljóslaus þar sem hleðslubúnaður hennar var bilað- ur. Á ferðalagi sínu ók hann á tvö umferðarskilti. Hann hélt áfram för sinni án þess að tilkynna um atvikið. Smá brot úr framenda rútunnar fannst á vettvangi. Var lögreglan á Austurlandi fengin til skoða bílinn og reyndist hann vera tjónvaldurinn. - jss Rútubílstjóri í skjóli myrkurs: Ók ljóslaus á umferðarskilti DÓMSMÁL Eigandi bifreiðar og Sjóvá-Almennar tryggingar skulu greiða ungum manni ríflega 8,2 milljónir í bætur, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Málavextir eru þeir að 2. októ- ber 2005 lenti pilturinn, þá nítján ára, í umferðarslysi í Víðidal. Hann var farþegi í aftursæti bif- reiðar. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum þannig að hann valt. Maðurinn í aftursætinu slasaðist og var varanleg örorka metin tíu prósent. Maðurinn var kominn vel á veg í bifvélavirkjanámi og voru bætur miðaðar við líklegar fram- tíðartekjur hans á slysdegi. - jss Lenti í bílslysi: Fékk átta millj- ónir í bætur LÖGREGLUMÁL Piltarnir þrír, allir fimmtán ára, sem kveiktu í Waldorfskóla í Hraunbergi í fyrra- kvöld bjuggu til bálköst úr papp- ír og öðru auðbrennanlegu á gólfi einnar kennslustofunnar, að sögn Snorra Traustasonar, kennara við skólann. Síðan báru þeir eld að kestinum. Piltarnir höfðu undirbúið það að komast inn í skólann eftir að honum hafði verið lokað. Þeir höfðu sett blað milli starfs og hurðar í kjall- ara hans þannig að hurðin skall ekki í lás. Íbúi í grennd við skól- ann varð eldsins var, þegar farið var að skíðloga í kestinum, og lét þegar vita. Piltarnir þrír voru handteknir skammt frá vettvangi og yfirheyrð- ir í fyrrinótt, að foreldrum og full- trúum barnaverndar viðstöddum. Þeir játuðu að hafa kveikt í skólan- um, sem var lokaður í gær vegna skemmdanna sem urðu á húsnæð- inu. Snorri sagðist gera ráð fyrir að hægt yrði að hefja kennslu í dag eða á morgun. Í grunnskólanum sem um ræðir eru fjörutíu nemend- ur sem verða án kennslu í einhverja daga, þar á meðal piltarnir þrír. Snorri segir ekki liggja fyrir hversu mikið tjón hafi hlotist af íkveikjunni, þar sem brunasvæðið hafi verið lokað meðan á rannsókn lögreglu stóð. Þó sé ljóst að það sé mikið. „Það sést að eldurinn hefur verið mikill í einni stofunni,“ segir hann. „Skemmdir af völdum reyks og sóts voru að auki miklar í tveimur stof- um sem eru sitt hvoru megin við þá sem kveikt var í.“ Drengirnir sem um ræðir komu rakleiðis í Waldorfskóla úr Fella- skóla í Breiðholti þar sem þeir höfðu reynt að kveikja í gluggatjöld- um. Öryggisvörður varð eldsins var áður en hann náði útbreiðslu. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins var sú skýring sem pilt- arnir gáfu á framferði sínu sú að þeim hefði þótt þetta spennandi. Piltarnir eru allir sakhæfir og verður mál þeirra sent ákæru- valdinu að rannsókn lögreglu lok- inni. Þeir eiga að auki yfir höfði sér bótakröfu vegna þeirra skemmda sem þeir hafa unnið. Piltarnir hafa ekki komið við sögu lögreglu áður, en eru nú komnir með sakarferil. jss@frettabladid.is WALDORFSKÓLI Lögreglan innsiglaði skólann í gær meðan rannsókn á vett- vangi fór fram. Ekki var ljóst í gær hvort hægt var að kenna í húsnæði skólans í dag vegna skemmda af völdum elds, vatns, reyks og sóts. Hlóðu bálköst í kennslustofu Piltarnir þrír sem kveiktu í Waldorfskóla í fyrrakvöld höfðu undirbúið verknaðinn. Þeir hlóðu bálköst í einni kennslustofunni og kveiktu í. Þeir komu beint úr íkveikjutilraun í Fellaskóla. Það sést að eldurinn hefur verið mikill í einni stofunni. Skemmdir af völd- um reyks og sóts voru að auki miklar … SNORRI TRAUSTASON KENNARI Í WALDORFSKÓLA GÓÐGERÐAMÁL Ríflega 730 þúsund krónur söfnuðust í uppboði sem haldið var í Góða hirðinum, nytja- markaði Sorpu og líknarfélaga, síðastliðinn föstudag. Féð rennur til Lyngáss og „opnar sannar- lega marga möguleika til þess að auðga líf þeirra einstaklinga sem nýta sér þjónustu Lyngáss og fjöl- skyldna þeirra,“ eins og segir í fréttatilkynningu. Lyngás veitir fötluðum börnum og unglingum á aldrinum eins til átján ára þjálfun, uppeldi og umönnun. Styrkurinn verður meðal annars nýttur í útgáfu á samskiptabókum sem notaðar eru til þess að koma upplýsingum á framfæri um börnin. - sbt Uppboð í Góða hirðinum: 730 þúsund til handa Lyngási AÐ LOKNU UPPBOÐI KK var uppboðs- haldari og sést hér með starfsfólki Góða hirðisins og Lyngáss að uppboði loknu. Kynningarfundur um lánalausnir Arion banka Hafðu samband Komdu og njóttu góðra veitinga í bland við verðmætan fróðleik. Skráning á arionbanki.is Fylgstu með og taktu þátt í uppbyggilegu starfi. FJÁRmál FJÁRmála FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.