Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 74
54 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Hugmyndin varð eiginlega til
af einskærri nauðsyn. Ég er með
fimm manna heimili, maðurinn
minn er lögreglumaður og vinn-
ur vaktavinnu og starfar einnig
sem körfuboltadómari. Svo á ég
tvo syni sem æfa fótbolta og fim-
leika og nú nýlega bættist þriðja
barnið við. Mér fannst orðið allt-
of erfitt að fylgjast með hverjir
voru hvar og hvenær og ákvað
að gera dagatal til að hjálpa mér
við skipulagið,“ útskýrir Kolbrún
Ösp Guðrúnardóttir sem hannaði
Fjölskyldudagatalið. Dagatalið
er sérstakt fyrir þær sakir að
sex reitir eru við hvern dag árs-
ins sem þýðir að hægt er að færa
inn stundaskrá allra fjölskyldu-
meðlima daglega.
Upphaflega ætlaði Kolbrún
Ösp aðeins að gera eitt dagatal til
að létta sjálfri sér lífið en þegar
hún varð vör við áhuga fólks á
dagatalinu ákvað hún að láta
prenta fleiri. „Ég var í fæðing-
arorlofi á þessum tíma og skráði
mig í fjarnám í grafískri miðl-
un á meðan svo ég gæti hannað
útlit dagatalsins sjálf. Svo lét ég
Odda prenta þetta út fyrir mig
og gorma.“
Þegar Kolbrún Ösp er innt
eftir því hvort fjölskyldulífið
gangi betur fyrir sig núna segir
hún svo vera. „Jú, fjölskyldulífið
gengur mun betur. Það er minna
um árekstra og við mætum öll
á réttum tíma þangað sem við
eigum að mæta,“ segir hún og
hlær.
Hægt er að nálgast Fjölskyldu-
dagatalið í gegnum vefsíðuna
idagsinsonn.is auk þess sem
hægt er að kaupa það í verslun-
inni A4. Hluti af ágóða sölunn-
ar rennur til Fjölskylduhjálpar
Íslands. - sm
Varð til af ein-
skærri nauðsyn
BÆTT FJÖLSKYLDULÍF Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir hannaði sérstakt fjölskyldu-
dagatal. Hér er hún ásamt börnum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ljósmyndarinn Fiann Paul
er pólskur að uppruna, en
hefur starfað úti um all-
an heim. Hann er án efa
þekktastur hér á landi fyrir
portrettmyndir sínar af
börnum sem voru á horni
Lækjargötu og Austur-
strætis fyrr á árinu, en
fyrsta bók hans, Goðsögnin,
er nýútkomin og á fimmtu-
dag opnuðu tvær sýningar á
ljósmyndum hans í Ráðhúsi
Reykjavíkur og Norræna
húsinu.
„Ég á alltaf í erfiðleikum með að
segja hvaðan ég er, en ég kenni
mig aðallega við Norður-Atlants-
hafið, Ísland og Grænland,“ segir
Fiann Paul. Fiann, sem er 29 ára
gamall, er menntaður arkitekt og
leikskólakennari, en sneri sér að
leiklist og ljósmyndun eftir dvöl
sína í Himalajafjöllunum þar sem
hann kenndi meðal annars bar-
dagalist. „Ég starfaði fyrir lög-
regluna á stað sem kallast Litla-
Tíbet og kenndi bardagalist. Áður
en ég fór þangað keypti ég mína
fyrstu filmumyndavél og það var
byrjunin á ljósmyndaferlinum,“
útskýrir hann og segist meðal
annars hafa fengið innblástur frá
því fólki sem þangað kom í trúar-
legum tilgangi.
Fiann eyddi alls þremur árum
í Himalajafjöllunum, en áður
starfaði hann meðal annars með
börnum í Mexíkó og Afríku með
hjálparsamtökunum Chiparamba.
Hann er án efa þekktastur hér á
landi fyrir portrettmyndir sínar
af börnum sem voru á horni Lækj-
argötu og Austurstrætis fyrr á
þessu ári, en fyrsta bók hans, Goð-
sögnin, er nýútkomin og í vikunni
opnuðu tvær sýningar á ljósmynd-
um hans í Ráðhúsi Reykjavíkur
og Norræna húsinu með mynd-
um úr bókinni og frá Grænlandi.
„Ég sé sjálfur um alla stíliseringu
og sit stundum sjálfur fyrir sem
karakter á myndunum mínum,“
segir Fiann, en í bókinni samein-
ast ævintýralegar ljósmyndir úr
íslensku landslagi og þroskasaga
sem vísar bæði inn á við og aftur
í norræna goðafræði. „Bókin er í
ævintýrastíl og myndirnar eru ef
til vill áhrifameiri en textinn, en
sagan fjallar um manneskju sem
reynir að ná settum markmið-
um og láta drauma sína rætast,“
útskýrir hann.
Bókin kemur einnig út á ensku
undir nafninu Legend, en íslensk
þýðing er í höndum Þorgríms
Þráinssonar. Meðfram ljósmynd-
uninni hefur Fiann einnig reynt
fyrir sér í kvikmyndaleik. „Ég
lék í mynd í Los Angeles sem er
nokkurs konar hryllingsmynd og
heitir The Beginning of the End.
Hún er ekki komin út ennþá svo
ég get ekki sagt hvort ég sé stolt-
ur af henni, en ég leik einnig í vík-
ingamynd sem verður tekin upp á
landamærum Póllands og Þýska-
lands á næsta ári og ég er mjög
spenntur fyrir henni. Sjálfan
langar mig að færa mig út í kvik-
myndagerð og einbeita mér að
fantasíumyndum sem yrðu tekn-
ar upp á Íslandi og Grænlandi,“
segir Fiann, en áhugasömum er
bent á heimasíðu hans fiannpaul.
com. alma@frettabladid.is
Gefur út bók og heldur
tvær ljósmyndasýningar
FJÖLHÆFUR Fiann Paul ljósmyndari, 29 ára, er arkitekt og leikskólakennari að mennt,
en hann hefur einnig kennt bardagalist og leikið í kvikmyndum. Hann gefur nú út
sína fyrstu bók, Goðsögnina, og heldur tvær ljósmyndasýningar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Það er óþarfi að syngja alltaf í kring-
um grautinn. Af hverju ekki að fara
bara beint þar sem hann er heitast-
ur?“ segir bolvíski trúbadorinn Einar
Örn Konráðsson. Hann hefur sent
frá sér lagið Jólatól sem er heldur
klúrt og fjallar um jólasvein sem er
langt frá því að vera hreinn sveinn.
„Þetta er gamalt lag frá mér sem hét
áður hringvöðvalagið. Ég samdi bara
nýjan jólatexta ofan í það og var enga
stund að því. Ég tók þetta upp á rúm-
lega klukkustund heima hjá mér, not-
aði hringluna hjá syni mínum og henti
þessu inn,“ segir Einar Örn, sem setti
lagið rakleiðis inn á Youtube- og Face-
book-síðurnar.
Ástarvikan hefur verið haldin í Bol-
ungarvík í ágúst undanfarin ár við
góðar undirtektir. Þrátt fyrir að hafa
gefið út þetta klúra jólalag vill Einar
ekki meina að allir Bolvíkingar séu
með kynlíf á heilanum. „Ég held ég
skeri mig svolítið úr varðandi það
opinberlega. Ég held að hinir haldi
sig bara út af fyrir sig inni í herbergi.
Þetta liggur svolítið létt fyrir mér að
semja einhverja kúk- og pissbrandara
inn í textana.“
Einar stundar nám í Keflavík um
þessar mundir en fer alltaf vestur um
páskana og spilar fyrir heimamenn í
Kjallaranum. Hann hefur verið trúba-
dor í rúm tíu ár og gefið út eina plötu,
Lognið á undan storminum. Einn-
ig vann hann trúbadorakeppni Suð-
urnesja fyrir nokkrum árum. En er
hann alltaf svona klúr? „Ég er svona
tvískiptur. Annars vegar er ég þessi
klúri Einar Örn en síðan er alveg hinn
póll inn á móti. Þessi dúnmjúki Einar
sem er alveg með ballöðurnar á krist-
altæru.“ - fb
Bolvíkingur með klúrið jólalag
EINAR ÖRN KONRÁÐSSON Einar hefur sent frá
sér jólalagið Jólatól sem fjallar um jólasvein
sem er langt frá því að vera hreinn sveinn.
Í versluninni Búrinu við Nóa-
tún, verður gestum boðið upp á
að smakka fyrsta íslenska geita-
mjólkurísinn í dag.
Það er Jóhanna B. Þorvaldsdótt-
ir, geitabóndi á Háafelli í Borgar-
byggð, en hún hefur verið með
geitur í ein tuttugu ár og segir þær
skemmtileg dýr. „Mig hafði langað
í geitur frá því að ég man eftir mér
þannig að það fyrsta sem ég gerði
þegar ég tók við búi var að fá mér
geitur. Þetta eru yndisleg dýr, þær
eru mjög spakar og miklir félagar
manns, en þær eiga það til að vera
pöróttar og fara ekki alltaf eftir
þínu höfði,“ útskýrir Jóhanna og
bætir við að ólíkt því sem margir
halda þá eru geitur í raun skyldari
dádýrum og kúm heldur en kind-
um.
Jóhanna segir íslenska geita-
stofninn líklega hreinasta geita-
stofn í Evrópu og það sem gerir
íslensku geitina sérstaka er að í
mjólkina vantar það prótín sem
veldur oftast mjólkuróþoli hjá
mönnum og því henti hún vel fyrir
þá sem glíma við mjólkuróþol.
Jóhanna er með hundrað og
fjörutíu geitur á býlinu og segir
mikla vinnu fylgja þeim. „Ég er
sú eina sem mjólka þær reglulega
og vinn úr afurðunum og stund-
um eru dagarnir einum of stutt-
ir fyrir öll þau verk sem þarf að
vinna. Ég mjólka í ís- og ostagerð
og svo seljum við auðvitað kjöt-
ið líka,“ segir Jóhanna og bætir
við að eftirspurnin eftir kjöti hafi
aukist til muna undanfarið. „Ég er
búin að selja næstum allt kjöt sem
ég átti en ég held ég eigi nóg eftir í
eina sparimáltíð handa mér og fjöl-
skyldu minni,“ segir hún og hlær.
Ísinn sem verður til sölu í Búr-
inu er framleiddur af Holtsels
Hnossi og segir Jóhanna að ísinn
sé með eindæmum góður. Einnig
er verið að vinna að geitapaté sem
verður að öllum líkindum einnig til
í versluninni. Jóhanna verður við-
stödd í Búrinu í dag á milli klukk-
an 15.00 og 18.00 þar sem hún
leyfir viðskiptavinum að smakka
vörurnar. - sm
Geitabóndi býður í smakk
GEITABÓNDI Jóhanna B. Þorvaldsdóttir
geitabóndi býður fólki upp á að smakka
geitamjólkurís í Búrinu á fimmtudaginn.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Heimilistæki, stór og
smá, ljós og símar í
miklu úrvali.
Líttu inn og gerðu
góð kaup. Við tökum
vel á móti þér.
A
T
A
R
N
A
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
fyrir
> LÆKNIRINN ÁBYRGUR
Bræður Michaels heitins
Jackson eru sannfærð-
ir um að læknir popp-
stjörnunnar eigi sök á því
hvernig andlát Jacksons
bar að. Þetta kemur fram í
viðtali við þá í spjallþætti
Larry King sem sýndur er
á CNN. Þeir segjast sann-
færðir um að dr. Conrad
Murray sé sekur.