Fréttablaðið - 10.12.2009, Síða 51

Fréttablaðið - 10.12.2009, Síða 51
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2009 Fólk tekur myndir af fjölmörg- um ástæðum en flestir taka samt myndir til að skrásetja dýrmæt- ar minningar. Sumarfríið á Snæ- fellsnesi, brúðkaupið hjá litla frænda, fyrstu myndirnar af litla barninu og allir afkomendurnir samankomnir á áttræðisafmæli langömmu lifa lengur og betur í minningunni ef til eru myndir til að hressa upp á þær. Myndatökur af daglega lífinu og fjölskyldunni eru líka fjár- festingar í framtíðinni. Þegar fólk er spurt hvaða hlut það myndi bjarga úr brennandi húsi segja mjög margir að þeir myndu reyna að bjarga myndaalbúmun- um þegar fólk og gæludýr væri komið í heila höfn. Það skiptir máli að vanda sig við allar myndatökur, þó að nú á tímum stafrænna myndavéla sé hægt að smella af svo til enda- laust í þeirri von að komi góð mynd án þess að þurfa að bíða eftir niðurstöðunni úr framköll- un eða hafa áhyggjur af filmu- verði. Það borgar sig samt alltaf að hugsa áður en myndin er tekin, velta fyrir sér lýsingu, sjónar- horni og samsetningu myndar- innar til að eiga lítið listaverk af þeim sem þér þykir vænt um. Og svo þarf náttúrulega helst að eiga góða myndavél. Fjölskyldumyndirnar má auðvitað ramma inn og þá geta þær verið sann- kölluð listaverk. Ómetanlegar minningar úr daglegu lífi. Fyrst út úr brennandi húsi Flestir Íslendingar þekkja Canon-myndavélarnar að góðu. Þar hafa tækninýjung- arnar heldur ekki farið hjá garði eins og Halldór J. Garðarsson, vörustjóri Sense, kann að lýsa. „Eiginleikar í litlum myndavélum á borð við Canon Ixus og Power Shot, sem gera notendum kleift að taka enn betri myndir við mismunandi aðstæður og háskerpuvídeó í þeim stærri eru meðal nýjunganna hjá okkur. Fjórða kynslóð DIGIC-ör- gjörvans frá Canon er komin í flestar vélar en hann sér meðal annars um háhraðavinnslu þannig að við fáum skarpari og hreinni myndir.“ Þetta telur Halldór upp í byrjun þegar hann er beðinn að lýsa nýjustu Canon-vélunum. „Myndavélamarkaðurinn er mjög líflegur og skemmtilegur og Canon leggur ríka áherslu á að framleiða vélar fyrir marga hópa þannig að hver og einn geti valið þá myndavél sem hentar,“ segir Halldór og tiltekur að myndgæð- in hjá Canon séu ávallt í fyrirrúmi enda snúist allt um að fá hágæða ljósmyndir. „Þetta byrjar allt með linsunni og Canon býr yfir ára- tuga langri ljósfræðilegri reynslu sem gerir kleift að framleiða litl- ar myndavélar, samanber Ixus og PowerShot, með mjög góðum lins- um. Nokkrar vélar eru með 28mm linsu og í einni nýrri Ixus-vél er 24mm gleiðlinsa og 5x optical-að- dráttur. Með gleiðlinsu er hægt að ná góðum myndum inni í mjög litlu rými og þær henta líka vel í hóp- myndatökur og landslagsmyndir.“ Halldór nefnir líka Canon Power- Shot-vélar með miklum aðdrætti eða allt að 560 mm sem er tuttugu- faldur aðdráttur. „Það veitir ótrú- legan sveigjanleika að vera með svona mikinn aðdrátt og svo erum við líka með vatnshelda mynda- vél sem þolir tíu metra dýpi og tíu stiga frost þannig að breiddin er mjög mikil.“ Litlu Canon-myndavélarnar eru allar tíu megapixlar og yfir, að sögn Halldórs, og hann segir Canon vinna stöðugt að því að gera notendaviðmótið þægilegra. „Snertiskjár er eitt dæmi og einn mjög góður eiginleiki er Smart Auto sem byggir á Scene Detect- ion tækni til að ákvarða birtu við- fangsefnis, skerpu, fjarlægð og fleira. Þá velur myndavélin bestu tökustillinguna fyrir viðfangsefn- ið eða aðstæðurnar. Einnig eru ákveðnar Canon-myndavélar með handvirkar stillingar fyrir þá sem eru vanir þeim eða vilja prófa sig áfram í myndatöku með eigið hug- vit að vopni.“ Að sögn Halldórs hefur áhugi á ljósmyndun vaxið gríðarlega hér á landi undanfarið. „Segja má að sprenging hafi orðið á síðustu tveimur til þremur árum og til að mæta þessari þróun býður Canon upp á mjög sterka vörulínu í EOS D-SLR myndavélum. Við erum með þrjár týpur fyrir byrjendur, EOS 1000D, 450D og 500D en í þeirri síðastnefndu er til dæmis hægt að taka upp myndskeið í háskerpu. Fyrir lengra komna áhugamenn og atvinnumenn eru síðan orðnar enn betri vélar og við erum að sjá dæmi um að menn séu að taka upp sjónvarpsauglýsingar, þætti og tónlistarmyndbönd á Canon EOS ljósmyndavél. Þetta er mjög spenn- andi þróun.“ En er boðið upp á námskeið í meðferð myndavélanna? „Já, við höfum verið í samstarfi við Þór- hall Jónsson sem gaf út kennslu- bók um EOS 400D, vorum með tvö námskeið nú í haust og yfir 60 manns mættu,“ svarar Halldór. „Útgangspunkturinn í þeim er að læra á alla möguleika vélanna og taka enn betri myndir.“ Stefnt er á að bjóða upp á fleiri námskeið eftir áramót. Hægt er að finna upplýs- ingar á www.sense.is Útgangspunkturinn að taka enn betri myndir „Þetta byrjar allt með linsunni,“ segir Halldór. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Canon EOS 1000D EISA Award: „Best Consumer Camera 2008–2009“ • 10.1 megapixla CMOS sensor • Tekur 3 ramma á sek. • 7 punkta fókuskerfi • 2.5” skjár m/ Live View • DIGIC III örgjörvi • Innbyggt rykhreinsikerfi Jólatilboð á EOS 1000D body: Aðeins 89.900 kr. Jólatilboð á EOS 1000D m/ EF-S 18–55 linsu: Aðeins 109.900 kr. Canon EOS 500D Full HD vídeó – EISA Award: „Best SLR Camera 2009–2010“ • 15.1 megapixla CMOS sensor • Full HD vídeó (1080p) • High ISO allt að 12800 fyrir léleg birtuskilyrði • Tekur 3.4 ramma á sek. • 9 punkta fókuskerfi • 3.0” há-upplausna skjár m/ Live View • DIGIC 4 örgjörvi • Innbyggt rykhreinsikerfi Jólatilboð á EOS 500D body: Aðeins 154.900 kr. Jólatilboð á EOS 500D m/ EF-S 18-55 linsu: Aðeins 179.900 kr. Canon IXUS 95 IS Notendavæn myndavél fyrir byrjendur – Nokkrir litir í boði • 10 megapixlar • 3.0x optical aðdráttur með Image Stabilizer linsu • Frábærar myndir án erfiðis með Scene Detection • Face Detection tryggir frábærar andlitsmyndir • Komið í veg fyrir blörr með Motion Detection tækni • Hámarks skerpa með i-Contrast • 2.5” LCD skjár Jólatilboð 44.900 kr. Canon PowerShot A480 Notendavæn myndavél fyrir byrjendur – Nokkrir litir í boði • 10 megapixlar • 3.3x optical aðdráttur • 2.5” LCD skjár • 15 tökustillingar fyrir ákveðnar aðstæður • 1cm macro stilling • Face Detection tryggir frábærar andlitsmyndir • Sjálfvirk leiðrétting á rauðum augum Jólatilboð 25.900 kr. • 8GB SDHC minniskort fylgir með á meðan birgðir endast • 8GB SDHC minniskort fylgir með á meðan birgðir endast • 2GB Lexar minniskort fylgir með Sony Center
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.